Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201820
Háir vextir, verðtrygging og
húsnæðisþáttur í neysluvísitölu
eru líklega þeir þættir sem hafa
haft skaðlegust áhrif á efnahag
fjölskyldna á Íslandi á liðnum
árum og áratugum. Þótt þorri
landsmanna virðist meðvitaður
um þetta vandamál hefur nær
ekkert miðað í að bæta úr
stöðunni þar sem pólitískan vilja
skortir.
Í umræðum um lausnir á
þessum málum virðist fólk hafa
gefist upp á að ræða möguleika
á að hinir hefðbundnu bankar á
íslenskum markaði hafi nokkurn
vilja til að breyta stöðunni. Enda
horfir almenningur á ofurhagnað
bankanna einmitt vegna ofurvaxta
og margvíslegs innheimtukostnaðar
af almennum viðskiptavinum.
Fjöldinn virðist því ekki reikna með
því lengur að nokkur vilji sé fyrir
breytingu í bankakerfinu, jafnvel
þótt stærsti hluti bankakerfisins sé
í eigu ríkissjóðs.
Umræður um samfélagsbanka
hefur skotið upp kollinum af og
til á undanförnum misserum. Hún
hefur snúist um væntingar og að
kannski sé von til að slíkur banki
í eigu fjöldans eða samfélaganna á
starfssvæði slíks banka geti breytt
stöðunni. Einhvern veginn hefur
sú umræða þó aldrei komist á
framkvæmdastig og stoppað á því
að einhver væri tilbúinn að draga
þann vagn af stað. Þó hafa verið
uppi vangaveltur um að Sparisjóður
Suður-Þingeyinga gæti verið sú
stofnun sem mögulega hrinti af
stað atburðarás sem leitt gæti til
stofnunar samfélagsbanka. Ástæðan
er væntanlega sú að innan þeirrar
stofnunar er starfandi fólk sem er
mjög samfélagslega sinnað og hefur
jafnvel lýst andúð sinni á núverandi
vaxtastefnu í þjóðfélaginu.
Horft til þýska Sparkassen sem á
yfir 200 ára sögu
Sem leið til stofnunar samfélags-
banka hefur töluvert verið horft
til hins þýska sparisjóðs, eða
„Sparkasse“, sem á sér yfir 200
ára sögu í bankamálum þar í landi.
Náði sá áhugi það langt í sumar að
einn af framámönnum Sparkassen-
Finanzgruppe í Þýskalandi,
var fenginn til að setjast niður
með áhrifamönnum úr íslenska
sparisjóðakerfinu.
Þessi maður heitir Wolfram
Morales og er forstöðumaður
skrifstofu forstjóra austurþýsku
sparisjóða samtakanna „Finanz-
gruppe Ostdeutscher Sparkassen-
verband“. Hann kom hingað til
lands í sumar til að gifta sig á
Siglufirði og lét sig hafa það að
halda þennan fund á Akureyri í
brúðkaupsferðinni með konu sinni,
Annette Seiltgen [nú Morales]. Á
fundinn voru m.a. mættir fulltrúar
Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Í
framhaldinu hélt Wolfram Morales
annan fund í Reykjavík 31. júlí
að tilstuðlan Helgu Þórðardóttur,
formanns Dögunar, með áhugafólki
um samfélagsbanka. Þar mættu
einnig fulltrúar nokkurra stærstu
verkalýðsfélaga landsins, lífeyris-
sjóða, sparisjóða, Samtaka
heimilanna og fleiri til að ræða þessi
mál að viðstöddum tíðindamanni
Bændablaðsins.
Wolfram Morales hefur farið
víða til að kynna starfsemi
Sparkasse keðjunnar, m.a. til Írlands
og Kaliforníu í Bandaríkjunum
þar sem mikill áhugi hefur verið á
stofnun samfélagsbanka.
Sparkassen-Finanzgruppe
tilbúinn að veita ráðgjöf
Á fundinum í Reykjavík lýsti hann
sögu Sparkassen og hvað þyrfti
til að slíkt kerfi gæti gengið upp.
Þá lýsti Wolfram Morales því yfir
að Sparkassen-Finanzgruppe væri
tilbúinn til að veita ráðgjöf og
aðstoða á einhvern hátt ef áhugi
væri á að stofna samfélagsbanka sem
byggður yrði á svipaðri hugmynd og
hinn þýski Sparkasse.
Vilhjálmur Bjarnason, ekki
fjárfestir eins og hann kallar sig, og
varaformaður Hagsmunasamtaka
heimilanna, lýsti því á fundinum
hvernig hópur áhugafólks hafi um
langan tíma rætt þessa hugmynd um
stofnun samfélagsbanka á Íslandi.
Auk þess að kynna Wolfram og
Annette konu hans til leiks, þá
kynnti hann Gerði Sigtryggsdóttur
og Jón Sigtryggsson frá Sparisjóði
Suður-Þingeyinga, sem einmitt
sátu fyrri fundinn með Wolfram á
Akureyri fyrr í júlí.
Sagði Vilhjálmur að líklega þyrfti
um einn milljarð króna til að stofna
banka af þessum toga auk þolinmóðs
fjár sem innlegg í slíkan banka.
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
býður fram aðstoð sína
Auk þess að starfa hjá Sparisjóði
Suður-Þingeyinga, þá hefur Jón
starfað hjá Sambandi íslenskra
sparisjóða og situr þar í stjórn.
Hann sagði að sparisjóðurinn
hafi fylgst náið með umræðunni
um samfélagsbanka enda teldu
stjórnendur þeirra að spari-
sjóðirnir störfuðu á svipuðum
hugmyndagrunni. Taldi hann
sparisjóðina vera í þokkalegri
stöðu til að styðja við uppbyggingu
hér á landi á stærra kerfi eins og
Sparkassen Finanzgruppe vinnur
eftir. Mögulega gæti Sparisjóður
Suður-Þingeyinga verið beinn
þátttakandi í slíku eða veitt
hlutaðeigandi aðgang að kerfum
sem nauðsynleg eru til að reka slíkar
stofnanir.
„Við erum reiðubúin til að
aðstoða eins og við mögulega
getum,“ sagði Jón. Hann benti
á að lög heimiluðu þeim slíkt
samstarf að vissu marki. Ein leið
til að vinna sig inn í stofnun stærri
samfélagsbanka eða hvað það yrði
kallað, væri að ganga til samstarfs
við sparisjóðina fjóra sem eftir eru í
landinu, eða stofna hreinlega nýjan
frá grunni, sem væri þó bæði erfitt
og kostnaðarsamt. Regluverkið í
kringum sparisjóðina setti þeim þó
ákveðnar skorður til að stækka mikið
frá því sem þeir nú eru. Ef það ætti
að nýta sjóðina í þessa veru þyrftu
þeir aukið fjármagn í formi stofnfjár
og aukins lausafjár.
„Ef menn vilja skoða eitthvert
samstarf við okkur, þá erum við
opin fyrir því. Hingað til hefur það
þó verið skortur á fjármagni sem
stoppað hefur slíkar hugmyndir.“
Benti Jón á að ríkið ætti mikið
fjármagn í gegnum eignarhald
í þrem bönkum, Landsbanka,
Íslandsbanka og Arion banka. Ýmsar
hugmyndir hafi verið uppi um að
breyta einhverjum þeirra banka í
samfélagsbanka. Ef hugmyndin væri
hins vegar að stofna samfélagsbanka
fyrir utan þessa banka, þá gætu
sparisjóðirnir mögulega verið gluggi
inn í það umhverfi.
Gerður Sigtryggsdóttir tók undir
orð Jóns og sagði að á fundinum á
Akureyri hafi Wolfram Morales
ítrekað boð um aðstoð við að
hrinda stofnun samfélagsbanka
í framkvæmd. Sú aðstoð gæti
m.a. falist í fræðslu og mögulega
á nýtingu kerfa sem Sparkassen
Finanzgruppe hefur yfir að ráða.
„Hvað sem út úr þessu kemur,
hvenær eða hvort af stofnun
samfélagsbanka verður, þá munum
við þiggja það boð og leita til
Sparkassen í Þýskalandi,“ sagði
Gerður.
Spenntur yfir þeim mikla áhuga
sem hér er á samfélagsbanka
Wolfram Morales þakkaði boðið og
sagðist spenntur yfir þeim áhuga sem
væri fyrir stofnun samfélagsbanka
á Íslandi. Hann sagðist vera búinn
að starfa fyrir Finanzgruppe
Ostdeutscher Sparkassenverband,
(austurþýsku sparisjóðasamtökin)
síðan 1992. Þar hóf hann störf
sem hagfræðingur, en þá var þessi
fjármálastofnun rekin í fjórum af
sextán ríkjum Þýskalands, þ.e.
gamla Austur-Þýskalandi, sem
sameinaðist Vestur-Þýskalandi
formlega 3. október 1990 í kjölfar
falls Berlínarmúrsins 9. nóvember
1989.
Nú starfar Morales sem ráðgjafi
forstjóra austurþýsku sparisjóða-
samtakanna þar sem hann hefur
vakandi auga með að Sparkassen
fari ekki út af braut sinni,
hvorki fjárhagslega né gagnvart
samfélaginu, eða í alþjóðlegum
samskiptum. Hann annast líka tengsl
við þýska þingið og á alþjóðavísu
hefur Morales m.a. umsjón með
samskiptum við Mið-Ameríku,
Bandaríkin og Mið-Asíu.
Wolfram Morales gantaðist með
það að Ísland væri, eins og flestir
fundarmenn vissu, ekki ríki í Mið-
Asíu. Hins vegar væri þetta í fjórða
sinn sem hann kæmi til Íslands.
„Eftir að Helga Þórðardóttir
[formaður Dögunar] bauð mér að
koma hingað fyrir tveim árum í
kjölfar meðmæla frá Ellen Hodgson
Braun, stofnanda framkvæmdastjóra
Public Banking Institute í Kaliforníu,
þá hefur Ísland raunverulega orðið
hluti af mínu starfi líka.“
Nær 240 ára gömul bankastofnun
Fyrsti Sparkassen var stofnaður í
Hamborg árið 1779 og spannar
saga þessara bankastofnana því
239 ár. Stærstur hluti sparisjóðanna í
Þýskalandi var stofnaður á fyrri hluta
nítjándu aldar, eða frá Napoleon-
stríðinu og fram undir 1850. Í
dag eru sparisjóðirnir 385 talsins
og strangt skilgreindir samkvæmt
lögum sem svæðisbundnir bankar.
Í hverju ríki sambandslýðveldisins
Þýskalands eru sérstök lög um
Sparkassen. Verður hver slík
bankastofnun að vera með aðild
að Sparkassen samtökunum eða
Sparkassen Finanzgruppe. Þá er
stafsemi hvers banka skilgreind
þannig að hann megi ekki starfa
utan þess byggðarsamfélags eða
sveitarfélags sem hann starfar í.
Saman geta þeir þó unnið á víðara
sviði og á alþjóðavísu.
Segir Morales að þetta sé
lykilatriði, þar sem Sparkassen hafi
verið stofnaður í upphafi sem banki
samfélagsins og hluti af stjórnkerfi
viðkomandi bæjarfélags. Því sé
bæjar- eða borgarstjóri á viðkomandi
svæði alltaf formaður stjórnar í
hverjum Sparkasse. Heyrir bankinn
því undir bæjar- eða sýslustjórnir
hverju sinni upp að vissu marki.
Ýmsar atlögur hafa þó verið gerðar
að þessu kerfi.
Í peningavandræðum í krepp-
unni miklu árið 1931 ákvað
þáverandi stjórn Þýskalands að
skera á völd bæjarstjórna og sýslna
yfir sparisjóðunum samkvæmt
stjórnartilskipun einræðisgreinar
stjórnarskrárinnar. Var öllum
bæjarstjórum þá skipað að láta af
hendi peninga úr sparisjóðunum
til ríkisins. Á þessum tíma ríkti
hálfgerð upplausn á þýska þinginu
og nasistar að brjótast þar til valda.
Samfélagseign og enginn annar
skilgreindur eigandi
Í dag er þetta þannig að hvorki
bæjarfélög né einstök ríki geta gert
eignartilkall til Sparkassen á þeirra
svæði og geta því ekki ráðskast að
eigin vild með þeirra fé.
„Það er einfaldlega enginn einn
eigandi að Sparkassen í Þýskalandi.
Það er einnig rangt að segja að hver
Sparkasse eigi sig sjálfur. Þetta eru
eigur almennings. Því höfum við
sérstök almenningslög sem segja
að enginn, hvorki einstaklingur,
hópar eða fyrirtæki, geti gert tilkall
til þessara banka. Á hinn bóginn er
hver banki nátengdur samfélögunum
sem þeir starfa í og í stjórnum
þeirra eru því alltaf kjörnir fulltrúar
fólksins með bæjar- eða borgarstjóra
sem stjórnarformann. Einn þriðji
stjórnarmanna er úr hópi verkafólks,
einn þriðji úr hópi áhugafólks um
rekstur bankans og einn þriðji úr
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Hagfræðingur og ráðgjafi Sparkassen-Finanzgruppe í Þýskalandi fundaði með íslenskum áhugamönnum í sumar:
Mikill áhugi fyrir samfélagsbanka á Íslandi
– Þýski Sparkassen býður fram liðsinni við skoðun á málinu sem og Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Wolfram Morales, forstöðumaður skrifstofu forstjóra austurþýsku sparisjóðasamtakanna „Finanz gruppe Ostdeutscher
Sparkassen verband“, hélt fundi í sumar með áhugamönnum um stofnun samfélagsbanka. Hann er hagfræðingur
Mynd / HKr.
Fyrsti Sparkassen var stofnaður í Hamborg í Þýskalandi árið 1779 og spannar
saga þessara bankastofnana því 239 ár. Stærstur hluti sparisjóðanna í
Þýskalandi var stofnaður á fyrri hluta nítjándu aldar, eða frá Napoleon-
stríðinu og fram undir 1850. Í dag eru sparisjóðirnir 385 talsins og strangt
skilgreindir samkvæmt lögum sem svæðisbundnir bankar.