Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 21
Hvað eru ALMANNAVARNIR ?
Ef við lítum nánar á uppbyggingu almanna-
varnanefndanna, kemur í ljós, að við val nefnd-
armanna er einmitt gert ráð fyrir slíkri heildar-
samhæfingu, þar sem í þær eru valdir þeir aðilar,
sem eru yfirmenn hins opinbera afls sveitarfé-
laganna.
Meginhlutverk Almannavarna nú, er, að vinna
að slíku samhæfingarskipulagi um allt land, þann-
ig að tryggt verði í framtíðinni, að hvenær sem
vá ber að dyrum, verði unnt að virkja neyðar-
þjónustuna hratt, og tryggja að allir þættir henn-
ar vinni samtengdir sem ein heild.
Þggar slík áætlanagerð er framkvæmd, er byrj-
að á því, að gera víðtæka könnun á viðkomandi
umdæmi, á tveimur meginþáttum:
í fyrsta lagi eru kannaðar þær hættur sem
hugsanlega gætu kimið upp á svæðinu.
í öðru lagi er leitað upplýsinga um það afl sem
til staðar er, og beita má við neyðarþjónustuna.
Þegar hættusviðin eru könnuð, kemur nokkur
uiismunur í ljós, eftir landshlutum og legu sveit-
arfélaganna.
Á meðfylgjandi töflu er þessi mismunur skýrð-
ur, og tekið er mið af sex mismunandi sveitarfé-
lögum á landinu, og er krossinn merki þess, að
viðkomandi hættusvið eiga hugsanlega þar við:
‘H > cS s <D u *o u :0 £7 yi T3 H '>» § »rt > rt 4rt cá (rt
cS \o >» d) 44 Cj xh '3 «trt cá
tí C/3 w > w W
Hópslys X X X X X X
Veitubilanir X X X X X X
Mengun eiturefna X X
Mengun geislavirkni X X X X X X
Stórbruni X X X X X
Flóð X X X X X X
Aurskriður X X X
Flugslys í þéttbýli Jökulhlaup X X X X
Sprengingar X X X X X X
Snjóskriður X X X
Fárviðri X X X X X X
Hraunrennsli X X X
Eldgos (í nágrenni) X X X X
Jarðskjálftar X X X X
Hernaðarátök X X X X X X
Samkvæmt venju og í framtiðinu mun verða
sagt: „Slökkvilið barðist við eldana, lögregla ann-
aðist umferðarstjórn og löggæslu, björgunarmenn
björguðu fólki af hættusvæðum og sjúkraþjónusta
annaðist þá slösuðu". Þá mun fólk spyrja: „hvar
voru Almannavarnir þá?“
Hér komum við að kjarna hugtaksins „Al-
mannavarnir". Almannavarnir eru ekki og munu
aldrei verða stofnun, sem kemur með tæki sin
og mannafla, og tekur við öllu hjálparstarfi á
neyðarstundu. Almannavarnir eru afl þjóðarinn-
ar á hættunnar stund. Eða með öðrum orðum, hið
sameinaða afl hennar.
Hinn almenni borgari, öll tæki þjóðarinnar og
stofnanir eru sameiginlegar Almannavarnir, sam-
eiginlegt risavaxið afl okkar allra, beitt að einu
verkefni, að bjarga og verja líf og eignir.
Ef við látum hugann reika og gerum okkur ljósa
mynd þess þjóðfélags, sem við lifum í, sjáum við
að starfræktar eru á vegum ríkis og bæja, fjöl-
margar stofnanir, sem allar miða að því, að
þjónusta þjóðfélagið i heild, skapa öryggi, þæg-
indi og betra mannlíf. Allar þessar stofnanir taka
til sín mikið fjármagn, og hafa gnótt tækja og
mannafla, sem vinnur stöðugt að hinum fjölmörgu
þáttum daglegs lífs.
Það er þetta mikla afl þjóðfélagsins, sem eru
almannavarnir þess og það er stofnunin Almanna-
varnir, sem virkjar það á hættunnar stund, og
samræmir nýtingu þess.
Slökkviliðsmenn munu halda áfram að berjast
við eldana, ekki síður á neyðartímum en daglega.
En afl þeirra verður margfaldað, ef bruni er meg-
inþáttur neyðarinnar. Hliðstætt því munu slökkvi-
liðsmenn virkjaðir til annarra starfa en bruna-
varna, ef neyðin felst í einhverri annarri vá, sem
beita má tækjum og mannafla slökkviliðsins við.
Það er hryggileg staðreynd, ekki síður hér á
landi en annars staðar, að oft tapast mannslíf og
verðmæti vegna óskipulagðra vinnubragða og lé-
legrar samhæfingar neyðarþjónustu, og kemur
slikt aldrei eins berlega í ljós, og þegar neyðin er
stærst, en sem betur fer hefur ekki enn sem komið
er orðið meiriháttar neyðarástand á íslandi, þótt
Vestmannaeyjagosið hafi tvímælalaust verið
nokkuð stórt á okkar mælikvarða.
Því er mjög mikilvægt, að einhver aðili hafi
ávallt yfirumsjón með heildarmynd neyðarþjón-
ustunnar, og í því liggur hlutverk Almannavarna.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 19