Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 24

Slökkviliðsmaðurinn - 01.08.1974, Side 24
Af námskeiði nr. VI » Brunamálastofnun ríkisins hélt námskeið í brunavörnum fyrir slökkviliðsstj óra og slökkviliðs- menn dagana 25. marz til 3. apríl sl. Námskeiðið var haldið á Akureyri, og er það nýlunda, því öll önnur námskeið stofnunarinnar hafa verið hald- in í Reykjavík. Námskeið þetta sátu menn af Norður- og Aust- urlandi aðallega, þó voru tveir menn frá Súg- andafirði og einn frá Selfossi. Bjarni Einarsson bæjarstjóri, setti námskeiðið. Hann lýsti ánægju sinni með það, að Akureyri hefði orðið fyrir valinu. Sagði hann að í ráði væri að byggja nýja slökkvistöð á Akureyri, og hefðu heimamenn fullan hug á að efla brunavarnir í héraðinu. Þá tók til máls Bárður Daníelsson, brunamála- stjóri. Hann sagði, að á þessu námskeiði yrði sú breyting gerð, að draga nokkuð úr hinu talaða orði, en auka í þess stað verklega kennslu. Bárður ræddi aðallega starfsemi og verksvið brunamála- stofnunarinnar sem og um starfssvið og skyldur slökkviliðsstj óra. Stjórnendur námskeiðsins voru Gunnar Péturs- son, Guðmundur Guðmundsson og Tómas B. Böðvarsson, varaslökkviliðsstjóri á Akureyri. Við kennsluna aðstoðuðu varðstjórarnir á Slökkvistöð Akureyrar, þeir Guðmundur, Þorkell og Gunnlaug- ur, ennfremur Vikingur, eldvarnaeftirlitsmaður og Gísli Lorenzson. Hafþór Jónsson kynnti starfs- semi Almannavarna ríkisins og Óskar Hallgríms- son Rafmagnseftirlit ríkisins. Sú nýbreytni að auka verklegu æfingarnar á kostnað fyrirlestra mæltist vel fyrir meðal nám- skeiðsmanna, og virtist gefa góða raun. Reykköfun fór fram i bragga á flugvellinum. Æfingar í að slökkva oliuelda fóru einnig fram á flugvallarsvæðinu. Munnleg fræðsla var á Hótel Varðborg. Bátur til að æfa slökkvitækin með milli- froðu var settur upp við Glerárósa. Öll samvinna við Slökkvilið Akureyrar var með ágætum. Starfsmenn Brunamálastofnunar ríkisins senda öllum slökkviliðsmönnum á landinu bestu kveðjur og þökkum við þeim ánægjulegt samstarf. Guðmundur Guðmundsson. Þátttakendur á námskeiði B.M.S.R., er haldið var á Akureyri dagana 25. marz til 3. apríl 1974, voru þessir: Selfoss Húsavik Grímur Sigurðsson Vigfús Hjálmarsson Gunnar B. Salómonsson Halldór Bárðarson Kópasker Fáskrúðsfjörður Dalvík Reyðarf j örður Blönduós Barði Þórhallsson Björgvin Baldursson Valur Harðarson Bjarni Garðarsson Þorleifur Arason Suðureyri Guðjón Jónsson Lárus Hagalínsson Seyðisfjörður Hofsós Egilsstaðir Reykj adalur Guðjón R. Sigurðsson Óttar Skjóldal Sigurður Clausen Snæbjörn Kristjánsson Þórshöfn Kristján Karlsson Kristján Ragnarsson Sauðárkrókur Vopnafjörður Siglufjörður Landhelgisgæslan Guðbrandur Frímannsson Bragi Dýrfjörð Marteinn Jóhannesson Helgi Hallvarðsson Akureyri Bjarni Gestsson Bjarki Þ. Baldursson Vernharð Sigursteinsson Gunnlaugur Búi Sveinsson Sigurður Gestsson Þórir Björnsson Víkingur Björnsson Tómas Böðvarsson Gísli Lorenzson Akureyrarflugvöllur Örn Ragnarsson. 22 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.