Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Side 9

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Side 9
Stór verkefni á döfinni Auka þarf enn frekar virkni félags- manna og styrkja starfið í deildum LSS svo og fjölga fundum á landsbyggð- inni, stuðla að markvissri og skjótri uppbyggingu Brunamálaskólans, koma í framkvæmd fyrsta kjarasamningi fyrir hlutastarfandi landsbyggðar slökkviliðsmenn, bæta menntunar - og réttindastöðu slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli það á einnig að nokkru leyti við félagsmenn starfandi hjá flugmálastjórn. Stuðla þarf að styrkari stöðu landsbyggðarslökkviliða m.a. með því að þrýsta á setningu reglugerðar um starfsemi slökkviliða og verksvið slökkviliðsstjóra, knýja á um að sjúkraflutningar verði alfarið á vegum slökkviliðanna í landinu, efla samstarf fagfélaga innan BSRB (og annarra samtaka) með breytta fram- tíðarsýn verkalýðshreyfingarinnar að leiðarljósi. Þá þarf LSS að ganga form- lega frá tengslum og samstarfi við Landssamband sjúkraflutningamanna eins og lengi hefur staðið til en félagsmenn Landssambands slökkvi- liðsmanna sinna nær 80% allra sjúkra- flutninga í landinu. Auk þessa bíður vinna að framkvæmd á þeim bókunum er fylgja nýgerðum kjarasamningum og ber þar einna hæst bókun um starfslok slökkviliðsmanna, en krafa LSS er að þau verði við 55 ára aldur. Koma þarf á bættum og skipulegri tengslum nýja fagstéttarfélagsins við sambærileg samtök erlendis. Fylgja þarf eftir niðurstöðu nefndar um- hverfisráðherra um mengunaróhöpp og stöðu slökkviliðanna þ.a.l. Þá eru miklar væntingar bundnar við vinnu starfshóps Sambands íslenskra sveit- arfélaga og LSS um bættar fjár- mögnunarleiðir vegna starfsemi slökkviliða en fagna ber þeim góða áfanga sem endurgreiðsla á virðis- aukaskatti er af tækjabúnaði slökkvi- liða. Fjölbreyttara félagsstarf Allt frá upphafi samtaka slökkvi- liðsmanna hafa þeir rekið félagsstarf sitt á breiðum grundvelli og af miklum stórhug. Mikil og aukin áhersla er lögð á sameiginlegar stundir fjölskyldna slökkviliðsmanna. Við höfum alla tíð verið meðvitaðir um mikilvægi þessa eins og sjálfur stofnfundurinn í Mun- aðarnesi vitnar um, en hann var jafnframt nokkurskonar fjölskyldu- hátíð. A sínum tíma fóru slökkviliðsmenn í hópferðir til útlanda. Við höfum mikinn hug á því að efna á ný til fjölmennrar hópferðar félagsmanna erlendis um sumarmál að ári. Þá er og vilji til þess að fagstéttarfélagið standi fyrir veglegri ráðstefnu um fagleg málefni starfsins og væri það til- hlýðilegt á þeim tímamótum sem félagstarfsemin stendur nú á.Þá er og á döfinni að efna á ný til þinghalds utan höfuðborgar til að skapa góðan félagsanda og stemmningu. Þannig nær félagsandi slökkviliðs- manna lengra en eingöngu að starfinu sjálfu. Það sýnir mikil gróska og samheldni við íþróttaiðkun og fleira í frístundum. Nýverið hefur verið tekin sú ákvörðun að næsta landsmót LSS í golfi fari fram á Akureyri í ágúst- mánuði 1998 en í þetta sinn var það haldið á Grafarholtsvelli. Mun það vera í sjöunda sinn sem LSS-mótið er haldið og hefur það notið mikilla vinsælda frá upphafi 1991. Bjart framundan Á þeim fimm árum sem fagstéttar- félagið hefur verið starfandi má sjá mikinn árangur á flestum sviðum starfsins en eindrægni og samstaða slökkviliðsmanna hefur fyrst og síðast skapað árangurinn.Það er alltaf jafn ánægjulegt þegar nýir félagar bætast í hópinn nú síðast frá Grindavík, Þórs- höfn og á næstunni slökkviliðsmenn frá Stöðvarfirði og úr Rangárvallar- sýslu. Jafnframt er fyrirhuguð fundar- ferð fulltrúa LSS til Vestmannaeyja í haust í sama tilgangi. Það var viðamikið og í raun áhættu- samt verkefni að ráðast í stofnun nýs stéttarfélags því þar liggur m.a. kaup og kjör manna undir og fyrir lá að slíku ferli fylgdi óhjákvæmilega langt óvissutímabil. Tiltrú þurfti því að skapast á málinu, markmiðin urðu að vera skýr en fullur vilji var til að ráðast í félagsstofnunina með öllum þeim tröllauknu verkefnum sem henni fylgdu. Það að stéttarfélagsgjöld slökkviliðsmanna rynnu áfram á annað ár til fyrri starfsmannafélaga kom ekki í veg fyrir áformin en afleiðingar þessa voru óhjákvæmilega rekstarhalli á félaginu sem nú er unnið markvisst að að rétta við. Þá var orlofsaðstöðu slökkviliðsmanna fórn- að en nú er hafin enduruppbygging hennar. Faglegur metnaður slökkviliðs- manna hefur skilað sér í öflugri og góðri þjónustu slökkviliðanna. Slökkviliðsmenn, það er bjart fram- undan! Uppskera áratugalangrar vinnu hefur verið að skila sér. Þeim slökkviliðsmönnum sem valist hafa til trúnaðarstarfa er hér með sérstaklega þakkað giftusamlegt starf og ekki má gleyma að minnast á þá frumherja sem lagt höfðu grunninn m.a. með stofnun fagfélagsins árið 1973. Slökkvi- liðsmenn halda fullir bjartsýni og áræðni inn í tuttugustu og fyrstu öldina tilbúnir til að takast á við þau verkefni er framtíðin ber í skauti sér sameinaðir undir merkjum Lands- sambands slökkviliðsmanna. 77/ hamingju með 5 ára afmœlið Guðmundur Vignir Óskarsson formaður LSS Bruni í Þingholtum. Slökkvilið að störfum með fjölbreyttum tœkjabúnaði. - (Mynd Júlíus Mbl.) SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 9

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.