Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 11

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 11
Brýnt er að fest verði í lög ákvœði um stjórnun aðgerða á vettvangi. Slökkviliðin gegna lykilhlutverki við fyrstu viðbrögð. Frá mengunaróhappinu á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar sl. vor. - (Mynd: Motivmynd Jón Svavarsson) ríkisins. Þessi nefnd hefur skilað áliti til Guðmundar Bjarnasonar, umhverf- isráðherra, og ég veit að hann hefur mikinn hug á að koma þessum málum í betra horf. Menn hafa uppiifað ýmislegt á undanförnum mánuðum og misserum og nægir þar að nefna strand Víkartinds og hreinsun Háfs- fjöru. - Tillaga nefndarinnar er sú að sett verði samræmd löggjöf um varnir og viðbrögð við mengunaróhöppum og að ekki verði í löggjöf greint á milli óhappa er gerast á landi, í lofti og á legi. - í dag er alltof mikið í lausu lofti í þessum málaflokki. Það vantar t.d. skilgreiningar á ýmsum þáttum s.s. um flutning eiturefna og hættulegra efna, um meðferð þeirra og merkingar og viðbrögð við slysum eða óhöppum. Enn fremur skortir tilfinnanlega í lög skilgreiningar á eftirlitsaðilum og hver skuli stjórna á vettvangi. í dag annast og stjórna slökkviliðin aðgerðum í tengslum við mengunaróhöpp á landi án þess að fyrir liggi nein lagafyrir- mæli þar um. Það eru fyrst og fremst hagkvæmnisástæður sem hafa leitt til þessa. Óljóst er um skyldur hins opin- bera og óljóst er hver ber ábyrgð á hreinsun, hvernig skuli farið með skaðabótareglur, tryggingar o.s.frv. Einnig vantar reglur um tilkynninga- skyldu og um samræmingu aðgerða s.s. um gagnabanka. Stjórnun á slysstað. - Einnig er brýnt að fest verði í lög ákvæði um stjórnun aðgerða á vett- vangi. Slökkvilið og lögregla fá oft fyrstu tilkynningu um mengunar- óhöpp. í framhaldi af því ætti þannig að vera búið að lögum að þeir gerðu ákveðnum ábyrgum aðilum viðvart s.s. heilbrigðiseftirlit viðkomandi svæðis, Hollustuvernd ríkisins, Vinnu- eftirliti ríkisins og jafnvel Aimanna- vörnum ríkisins sé málum þannig háttað. - Slökkviliðin gegna lykilhlutverki við fyrstu viðbrögð og finnst mörgum því eðlilegt að slökkviliðsstjóri fari með stjórnun á mengunarstað t.d. við hreinsun með sama hætti og hann fer með nokkurs konar allsherjarvald á brunastað. Evrópsk hugmynafræði - Vissulega tengist væntanleg lagasetning og viðhorfsbreytingar lög- gjafans hér á landi því alþjóða- samstarfi sem ísland tekur þátt í. í norrænu samstarfi höfum við fallist á að samræma norræna löggjöf á þessu sviði eftir því sem unnt er og hag- kvæmt þykir og um gagnkvæma tilkynningarskyldu. - Sama er að segja um Evrópu- samstarfið þ.e.a.s. EES- samninginn og ESB- löggjöfina. Þar höfum við reyndar skuldbundið okkur til að innleiða þá hugmyndafræði sem er grunnur Evrópulöggjafar á sviði umhverfis- mála. Því er ekki að neita að Evrópu- samstarfið og aðild okkar að evrópsku efnahagssvæði hefur ýtt og flýtt fyrir framgangi umhverfislöggjafar hér á iandi. Sem dæmi um umfang Evrópu- sambandsreglna vil ég nefna að um 70% þeirra laga og reglna sem Holl- ustuvernd ríkisins starfar eftir „koma frá Brussel", en Hollustuverndin sinnir matvælamálefnum, mengunarvarna- málefnum, bæði á sjó og landi, eiturefnamálum sem og rannsóknum sem því tengjast. - Þær tilskipanir og reglur sem Hollustuverndinni ber að framkvæma og “koma frá Brussel” eru um 400. Áður var stuðst við nokkrar megin- reglugerðir s.s. heilbrigðisreglugerð, mengunarvarnareglugerð, eiturefna- reglugerð og matvælareglugerð. Þetta sýnir hvérsu flókið kerfið er orðið og felur í sér tilhneigingu til skrifræðis. Kostirnir eru hins vegar töluverðir en hugmyndafræðin byggir á vernd umhverfis og þess lífs sem í því þrífst. Neytendavernd er og annar grunn- tónninn í hugmyndafræðinni. Með stuðningi almennings - Vissulega er hætta á árekstrum í svo viðkvæmum málaflokki. Um- hverfisráðuneytið hefur einsett sér að vinna náið með atvinnulífinu sem og neytendum, s.s. frjálsum félagasam- SLÖKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.