Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 17
Landsmót LSS í g
í Grafarholti
Sjöunda Landsmót LSS í golfi fór fram á Grafar-
holtsvelli Golfklúbbs Reykjavíkur þann 15. ágúst
s.l. Sextíu og tveir þátttakendur tóku þátt í mótinu
þ.a. 10 gestir. Næsta landsmót verður haldið á
Akureyri í ágúst 1998.
Mótið hófst kl 10.30 með því að fyrstu kepp-
endur voru ræstir út og luku þeir síðustu keppni
um 19.30. Fjölgun byrjenda er sérstakt ánægju-
efni enda eitt af aðalmarkmiðum mótsins að fá
sem flesta til þátttöku. Allar aðstæður voru hinar
bestu, þokkalega hlýtt, væg gjóla og vottaði fyrir
sólarglennu.
Verðlaunaafhending fór síðan fram í Slökkvi-
stöðinni við Tunguháls. Eftir velheppnað mót var
boðið uppá góðan pottrétt með öllu tilheyrandi
áður en til verðlaunaafhendingar kom. í móts-
nefnd að þessu sinni sátu Jón Fr. Jóhannsson og
Lárus Petersen Reykjavík og Stefán Halldórsson
f.h. stjórnar LSS. ÖIl framkvæmd mótsins var
með miklum ágætum og eru nefndinni færðar
bestu þakkir fyrir vel unnin störf.
Viðar Þorleifsson formaður deildar LSS Akureyri tilkynnir
boð Akureyringa þess efnis að nœsta landsmót LSS verði
haldið á Akureyri. Frá vinstri Jón Fr. Jóhannsson, Viðar
Þorleifsson, Stefán Halldórsson og Lárus Petersen.
Næsta mót
Næsta Landsmót LSS mun fara fram á Akureyri
í ágústmánuði 1998. Afar góður rómur hefur
verið gerður að þeirri fyrirætlan og eru slökkvi-
liðsmenn nú hvattir til að taka strax frá helgina
eftir verslunarmannahelgi 1998 því „ekki er ráð
nema í tíma sé tekið“. Þegar er hafinn undir-
búningur og munu eftirtaldir skipa næstu móts-
nefnd: Viðar Þorleifsson og Jón Knudsen Akureyri
og Einar M. Einarsson f.h. stjórnar LSS.
TAPAÐ - FUNDIÐ
Á landsmótinu tapaðist golfkylfa, 9 járn. Ef ein-
hver hefur fundið kylfuna er hann vinsamlegast
beðinn að hafa samband við Sigurð Sveinsson
Slökkvistöðinni í Reylqavík s. 5702040.
Hér hampa Skagamenn bikar glaðbeittir á heimleið. Valdimar Sólbergsson, Jóhann
Karl Engilbertsson, Rúdolf Jósepsson, Leó Ragnarsson, Efri röð frá vinstri: Gísli
Gíslason, Þráinn Ólafsson, Steinn Helgason, Haukur Þórisson, Gissur Agústsson,
Björn Þórhallsson og loks gamla kempan Þorsteinn Þorvaldsson.
Sveitakeppni án forgjafar:
1. sæti A-sveit Akraness á 275 höggum
Sveitina skipa: Björn Þórhallsson, Leó Ragnarsson
og Gissur Ágústsson.
2. sæti B-sveit Keflavíkurflugvallar á 283 höggum
Sveitina skipa: Eiínborg Sigurðardóttir, Gunnar Þórðarson
og Rúnar Þórmundsson.
3. sæti A-sveit Keflavíkurflugvallar á 288 höggum
Sveitina skipa: Kristján Björgvinsson, Jón E. Árnason
og Björn Ólafsson.
Sveitakeppni með forgjöf:
1. sæti B-sveit Keflavíkurflugvallar á 213 höggum
2. sæti A-sveit Reykjavíkur á 234 höggum
3. sæti A-sveit Keflavíkurfiugvallar á 236 höggum
A-sveit Reykjavíkur skipa: Stefán Halldórsson, Jón Fr. Jóhannsson og Þuríður Söivadóttir
í kvennaflokki með forgjöf:
1. sæti Elínborg Sigurðardóttir Keflavíkurflugv 72 höggum
2. sæti Þuríður Sölvadóttir Reykjavík 78 höggum
3. sæti Sigríður Kristjánsdóttir Keflavíkurflugvelli 80 höggum
Einstaklingskeppni án forgjöf:
1. sæti Leó Ragnarsson Akranesi 86 höggum
2. sæti Kristján Björgvinsson Keflavíkurflugvelli 89 höggum
3. sæti Stefán Halldórsson Reykjavík 91 höggi
4. sæti Halldór Guðnason Flúðum 91 höggi
Einstaklingskeppni með forgjöf:
1. sæti Gunnar Þórðarson Keflavíkurflugvelli 70 höggum
2. sæti Rúnar Þórmundsson Keflavíkurflugvelli 71 höggi
3. sæti Helgi Guðmundsson Flúðum 74 höggum
Þessar konur slökkviliðsmanna hömpuðu verðlaunum í mðtslok. Elfnborg
Sigurðardóttir, Sigríður Kristjánsdóttir og Þuríður Sölvadóttir.
SLÖKKVILIÐSM AÐURI N N
17