Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 25

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 25
Hrólfur Ölvisson formaður brunamálastjórnar: Þarf að efla brunavarnir Vantar tugmilljónir af lögskipuðum tekjum til brunavarna - Ahyggjur af öryggismálum í Hvalfjarðargöngum Brunamálastjórn 1997. Fremri röð frá vinstri: Drífa Sigfúsdóttir, Hrólfur Ölvisson formaður og Inga Hersteinsdóttir. Efri röð frá vinstri: Bergsteinn Gissurarson, Hilmar Pálsson og Guðmundur Vignir Óskarsson. glöggt dæmi um það. Sameiginleg krafa faghópa innan BSRB á þinginu i vor byggði í fyrsta lagi á þeirri nauðsyn sem orðin er á því að breyta innbyrðis hlutföllum fagstéttarfélaga og blandaðra starfs- mannafélaga innan stjórnar banda- lagsins eftir þær félagslegu breytingar sem orðnar eru ellefu árum eftir að lögunum var breytt. í öðru lagi byggði krafan á mikilvægi þess að auka um- ræðu á vettvangi samtakanna ss. um fagleg málefni og gildi menntunar. Ekki reyndist vera nægjanlegur vilji til að mæta þessu mikilvæga sjónarmiði fagfélaganna sem of oft hafa átt undir högg að sækja innan samtakanna, þ.e. áherslur og sjónarmið ekki notið nægjanlegs skilnings eða verið að fullu virt. Ekkert skipulagsform er eilíft. Skipulag verkalýðshreyfingarinnar hvort heldur um er að ræða stéttar- félögin sjálf, sérsambönd eða heildar- samtök eiga að vera í stöðugri mótun og taka mið af þróun á vinnumarkaði svo og umbreytingum á þjóðfélags- gerðinni. Mikilvægi samstöðu launa- manna í stórum sem smáum málum hefur ekkert minkað frá því sem áður var. Smærri samningseiningar kalla enn frekar á öflugt heildarsamstarf með skilvirku þjónustuhlutverki. Við verðum að horfast í augu við að verkalýðshreyfingin er í ákveðnum tilvistarvanda. Ég gæti vel hugsað mér allsherjar uppstokkun verkalýðs- hreyfingarinnar á íslandi. Spurningin um hvar LSS sé best borgið skipulagslega snýst ekki aðeins um það hvað gagnast okkur best í kjara- og réttindalegri baráttu heldur einnig hvar fagleg málefni slökkvi- liðsmanna fá best notið sín jafnhliða því að geta sótt og veitt stuðning og styrk í samfélagi stéttarfélaga. Grund- vallaratriði í samstarfi félaga er að þau sjónarmið sem hvert og eitt stéttar- félag fer með séu virt sem slík, að gagnkvæm virðing ríki. Þannig heildar- samtökum tel ég að slökkviliðsmenn vilji tilheyra til framtíðar litið. Nýr samstarfsvettvangur faghópa innan BSRB hefur farið vel af stað og verður látið fullreyna á það. Ég bind miklar vonir við að takast megi að styrkja stöðu faghópa innan bandalagsins þannig að þau njóti sannmælis sem slík jafnhliða því að takast megi að koma á betra jafnvægi innan sam- takanna fagfélögunum og ekki síst BSRB til heilla. Það þarf að stórefla starfið innan Brunamálastofnunar, segir Hrólfur Ölvisson nýr formaður brunamála- stjórnar í samtali við Slökkviliðs- manninn. - Það er sárt að horfa til þess að mikilvægum málaflokkur sem snertir öryggi borgaranna, eins og bruna- varnir gera, skuli verða af um 20 miljónum króna vegna þess að ríkiksvaldið ráðstafar því fjármagni til annarra og óskyldra mála. Bruna- málagjaldið sem lagt er á fasteignir landsmanna til að fjármagna bruna- varnir nemur yfir 90 milljónum króna, en þar af fara einungis um 70 miljónir til hins lögskipaða verkefnis. - Þetta er þeim mun verra mál þar sem okkur sárvantar sérmenntað starfsfólk inn á Brunamálastofnun, s.s. verkfræðinga, til að sinna verklefnum sem bíða úrlausnar. - Jú, Brunamálaskólinn er afar mikilvægur og við leggjum mikla áherslu á að koma menntunarmál- unum í betra horf. Skólinn fær einungis um 8 milljónir króna en þyrfti 16 miljónir. - Hin nýja stjórn hefur vissulega viljað koma öryggismálum í Hvalfjarð- argöngunum í betra horf, hins vegar eru menn ekki búnir að fá það á hreint hvort brunavarnir í göngunum heyra undir forræði Brunamálastofnunar þó við teljum svo vera. Brunamálastjóri hefur ritað viðkomandi ráðuneyti um málið og óskað eftir skýrari niðurstöðu um það hver beri þar ábyrgð, - Brunamálastofnun eða aðrir. Ég neita því ekki að innan stjórnar- innar hafa menn lýst yfir áhyggjum sínum vegna þessa máls, segir Hrólfur Ölvisson formaður brunamálastjórnar að lokum. SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 25

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.