Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 26

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 26
Óskar Guðmundsson og Jón Guðlaugsson tóku saman - Myndir: Heimir Stígsson Þetta var sjálfsögð þegnskýlda Viðtal við Margeir Jónsson í Keflavík sem var slökkviliðsstjóri í 20 ár og hóf störf i slökkviliðinu á Suðurnesjum árið 1935! Frá frumbýlingsárum til fjölbreyttra brunavarna Margeir Jónsson athafna- maður með meiru á að baki merka sögu af þátttöku sinni í slökkviliðinu í Keflavík. Tíðindamenn Slökkviliðs- mannsins, undirritaður og Jón Guðlaugsson slökkviliðs- maður í Keflavík, tókum hús á Margeiri á dögunum og þýfguðum hann um söguna. - Ég var 13 ára þegar ég kom til bæjarins úr Innri-Njarðvík árið 1929 og þá var komið slökkvilið í Keflavík. Ég var enn á unglingsaldri er ég hóf störf í slökkviliðinu árið 1935 þá 17 ára gamall. Búnaður slökkviliðsins var ósköp bágborinn. Hér var lítil hand- dæla sem var þannig að koma þurfti vatninu í dæluna. Menn báru vatnið í strigafötum í dæluna og það þurfti fjóra til að dæla vatninu upp í slöng- urnar. Þessi dæla er enn til og var á sýningu fyrir nokkrum árum.(Jón segir að dælan hafi verið prófuð og reynst ennþá í góðu lagi!). Stóri bruninn í Samkomu- húsinu - Meðal fyrstu verka sem ég lenti í með slökkviliðinu var við stóra brun- ann í samkomuhúsinu í Keflavík. Þetta var mikill eldur sem kviknaði á jóla- trésskemmtun og oft verið um fjallað enda fórust þar tíu manns. Sá bruni skildi eftir sig ömurleg sár hér í bænum og hefur líklega leitt til þess að bæjarbúar hafa tekið brunamál alvar- lega frá fyrstu tíð. Utköllin fóru lengi þannig fram að einn úr brunaliðinu hafði það sem sérverkefni að hlaupa með lúður um þorpið og handsnúa lúðri. Þannig var þetta lengi vel en um það leyti sem ég hóf störf var komin sýrena á Raf- stöðina sem heyrðist um alla Keflavík. Iðnaðarmenn eftirsóttir Frá upphafi voru 24 menn í slökkviliðinu. Þeir þurftu ekki að upp- fylla nein sérstök skilyrði. Iðnaðar- menn urðu helst fyrir valinu, - og vélstjórarnir úr frystihúsunum voru sérlega eftirsóttir sem vélamenn við dælurnar þegar véldæla kom til sög- unnar. Menn báru dæluna á kjálkum á milli sín út að sjó og þaðan var pumpað upp vatni. Astæða þess að iðnaðarmenn urðu sérstaklega fyrir valinu var sú að þeir voru alltaf á staðnum, en ekki var hægt að reiða sig á að sjómennirnir væru í landi þegar bruni varð. Þá skipti handlagni og verklagni auðvitað miklu máli við slökkvistörf. (Þá eins og nú, skýtur Jón inn í.) Skipaður slökkviliðsstjóri - Ég varð slökkviliðsstjóri um þetta leyti árið 1940, var þá með reið- hjólaverkstæði í miðbænum og þótti heppilegur í þetta. Samt var ég ekki nema rúmlega tvítugur. Ég fékk skip- unarbréf frá sveitarstjórninni og ég minnist þess ekki að það hafi hvarflað að manni að andæfa gegn því, skylda var skylda. - Ég minnist þess ekki heldur að mínir menn væru ósáttir við að ég væri svo ungur gerður að slökkvi- liðsstjóra. Þetta voru allt elskulegir menn og enginn með derring út af því að ég væri yngri. - Jú, brunarnir voru færðir inn í dagbækur, en ég veit ekkert hvað varð af þeim. (Jón upplýsir að bækurnar séu allar ennþá til og hafi verið færðar Vatnið var borið íþessa handdœlu með strigaskjóðum. Þessi dœla var í brúki þegar Margeir kom til starfa í slökkviliðinu, - og enn er hún í nothæfu ástandi. 26 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.