Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Side 27

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Side 27
Margeir Jónsson var reiðhjólasmiður á unga aldri og gekk til liðs við slökkviliðið árið 1935. Hann var slökkviliðsstjóri frá 1940-1960. Síðarfórhann út í útgerð og rak frystihús og fiskverkun. Hann var i ritstjórn Faxa og bœjarfulltrúi var hann um nokkurt skeið. Enn í dag er Margeir í fullu fjöri og rekur gistiheimili íRöst. byggðasafninu og höfðu áður verið geymdar í bankahólfi.) Það var ekki lögð mikil vinna í skrásetningu eða úrvinnslu eftir bruna, enda voru menn lengst af í öðrum störfum og urðu að sinna þeim eftir getu. Borgarleg þegnskylda - Jú, þetta voru alger aukastörf og enginn atvinnumaður fyrstu ára- tugina. í þá daga var talað um borgara- lega skyldu og þegnskyldu okkar slökkviliðsmanna. Það var ekkert minnst á peninga. Hreppsnefndin skip- aði alla liðsmenn í slökkvilið. - Ég var ekkert að hugsa um hættur á þessum árum, þetta var þegn- skyldan. Á árunum milli tvítugs og þrítugs er maður líka til í hvað sem er. Og ég man ekki til þess að neinir kvörtuðu undan því að starfið væri erfitt. Þetta var ljúf og sjálfsögð þegnskylda. Vatnsskortur og vatnsdælur - Það var Iöngum skortur á vatni hér í Keflavík. Hér voru tjarnir, ís- tjarnir þar sem Flughótelið er núna og þær gátum við notað á svæðinu þar í kring. Annars vorum við á bryggjunum eða annars staðar við sjó við að dæla með véldælunni. Brunnarnir sem notaðir voru til neysluvatns voru of djúpir fyrir þessa dælu. Vatnsveita kemur ekki fyrr en milli 1950-60, þ.e. að brunahanar koma ekki fyrr í gagnið. Áður var vatnsveita þannig að vatni var dælt upp úr brunnunum til einkanota, en það kom slökkviliðinu ekki að notum. Þegar kallið kom - Það var enginn sérstakur bún- ingur fyrir slökkviliðsmenn. Menn voru bara í sínum eigin vinnufötum við slökkvistörfin. Hins vegar fylgdi sérstök vatnskápa sem sumir fóru í , sérstaklega þeir sem voru við slöng- urnar. Við stukkum bara upp úr rúmunum, úr vinnu eða úr veislu, allt eftir því hvernig stóð á og í þeim fötum sem við vorum í þegar kallið kom. Síðan var reynt að slökkva eldana. - í slökkviliðinu hafa verið alla tíð 24 liðsmenn. Liðinu var skipt í deildir eftir störfum; þeir sem rifu þökin, við slöngurnar, stútana, sumir að bera út úr húsunum og loks vélamenn. Allur búnaður hjá slökkvi- liðsstjóra Slökkviðlisstöðin var eiginlega í nokkrum skúrum til að byrja með en svo þar sem rafstöðin var við Hafnar- götuna. - Auðvitað var þetta nokkuð strembið verkefni og tækin léleg. Það var ekkert skemmtilegt að koma að logandi húsum og geta ekki komið tækjunum í gang. - Breytingarnar eru gífurlegar frá þessum tíma. Ég velti þvi stundum fyrir mér þegar ég geng framhjá slökkvistöðinni í dag hversu mikil umbylting þetta er. Umbúnaðurinn allur er svo gjörbreyttur. - í minni tíð fylgdi allur umbúnaður og útbúnaður slökkviliðsstjóranum. Hann varð að sjá um að vélarnar væru til staðar og um allt væri hugsað og allt væri í lagi. Hann hafði einnig umsjón með því að sótað væri í bænum, allir skorsteinar hreinsaðir. Ef ekki fékkst maður í það starf, varð ég sjálfur að fara að sóta. Um síðir fékk ég leyfi til að ráða sótara í starfið, það var Sigurður Sumarliðason sem við því tók. Öryggisreipi í tvílyft hús - Skólun slökkviliðsmanna var engin, og engin námskeið að fá. Ég reyndi að afla mér nokkurs fróðsleiks um málin með samtölum við Erlend Halldórsson í Hafnarfirði sem var eftirlitsmaður og gott ef hann vann ekki hjá vegamálastjóra. Hann var með verkstæði í Hafnafirði og var afar lipur og mikill áhugamaður um brunavarnir. En það var ekki almennt. - Jú fyrir kom að öryggismálum væri sinnt. í jólablaði Faxa 1944 er sagt frá því að slökkviliðsstjóri hafi tekið ákvörðun um það að koma upp öryggislínu í öll tvílyft hús í bænum. Ég kom þessum öryggisreipum fyrir í öllum tvílyftum húsum og kenndi fólki að nota reipin. Þessu kynntist ég einnig hjá Erlendi í Hafnarfirði. Reip- inu var þannig komið fyrir að í öðrum enda þess var krókur sem festur var í gluggakarminn og kaðallinn hringaður niður og hugsað þannig að hægt væri að setja hann út og láta sig síga niður. Þessari nýbreytni var afar vel tekið. Breytingar í stríðinu - Ég var náttúrulega líka í póli- tíkinni og vissi hvernig fjárhag bæj- arins var háttað, en hann var ósköp aumur. Maður reyndi því að spara. Það þótti bara í alltof mikið ráðist að kaupa hjálma fyrir mannskapinn. Ég held að hjálmar og brunakápur hafi ekki komið til sögunnar fyrr en eftir að ég hætti. - í stríðsbyrjun breyttist allt. Þá voru gefin loftvarnarmerki og við áttum allir að koma okkur niður á slökkvistöð. Samstarf við setuliðið var ekki mikið alveg til að byrja með en oddviti okkar Keflvíkinga, Alfreð Gísla- son, átti tal við setuliðið og stóð fyrir samkomulagi um það að við mættum SLÖKKVI LIÐSMAÐURI NN 27

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.