Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Blaðsíða 30
stórviðri og ekld reynandi að nota
brunastúta nema undan vindinum.
Enda brann húsið hratt. Sem betur
reyndist maðurinn ekki hafa verið í
herberginu.
- Á þessum tíma sem liðinn er
síðan ég hóf afskipti af þessum bruna-
málum hefur okkur vissulega farið
fram í byggingum og í öryggismálum.
Á móti kemur að svæðið hefur stækk-
að mikið sem Brunavarnir Suðurnesja
ná til, og húsum og fólki hefur fjölgað
gífurlega. Svæðið nær nú til 15 þúsund
manna, þannig að það er full þörf á
öflugu atvinnuliði á svæðinu.
Góður félagsskapur - liðið
kvatt
Brunar drógu jafnan að sér mikinn fjölda áhorfenda.
svæðinu. Sem betur fer urðu sjaldan
stórbrunar, en oft var eins og þetta
gengi í bylgjum. Fjöldi bruna getur
verið mismunandi. Það kom t.d.
tímabil sem var dálítið erfitt þegar
verið var að skipta frá kolakyndingu
yfir í olíukyndingu. Ekki urðu heldur
stórbrunar á því tímabili, en margir
smábrunar. Fólk kunni ekki á þessa
sjálftrekkjandi katla. í logni brann
OKKARLAUSN
er góður kostur
Gámaþjónustan hf. býður til leigu snyrtileg og falleg E60 og
1100 lítra sorpílát úr galvanhúðuðu stáli.
ílátin eru einstaklega sterk og meðfærileg og búin margvíslegum
kostum sem gera þau að hagkvæmustu lausninni á sorpmálum
stærri og smærri fyrirtækja:
• Nýtast flestum tegundum atvinnurekstrar
• Sterk og þægileg í meðförum
• Eru á hjólum og hægt að staðsetja þar sem
sorpið fellurtil.
• Einföld að þrífa jafnt utan sem innan
• Létt og þægilegt plastlok tryggir auðvelda losun
á stórum sem smáum hlutum
• Kerin eru læsanleg
minna, skálarnar fylltust sem olían
rann í og það kviknaði í.
- Á því tímabili sem við erum að
tala um er mikill vöxtur í bæjar-
félaginu. Fjölgunin mikil. Um slökkvi-
liðið ríkti yfirleitt góður friður. Áfram
byggðist starfið á þjónustu manna í
aukavinnu. Fyrsti maðurinn sem er
ráðinn í fullt starfi er Ingiþór Geirsson
og það var ekki fyrr en eftir 1970.
Lárus Kristinsson var
reyndar ráðinn nokkru fyrr
til eldvarnaeftirlits í fullu
starfi.
Hafið samband við sölumenn okkar og fáið
nánari upplýsingar.
CÞ
GAMAÞJONUSTAN HF.
BÆTT UMHVEBFI - BETRIFRAMTÍÐ
SÚÐARVOGI 2, 104 REYKJAVÍK, SIMI: 568 8555, FAX: 568 8534
Komist hjá slysum
- Sem betur fór kom það
ekki til meðan ég var slökkvi-
liðsstjóri að fólk slasaðist,
slökkviliðsmenn sluppu með
skrámur og smámeiðsl og
ekki heldur urðu slys á fólki.
Þetta var heppni. - í eitt
skipti urðu menn hræddir.
Það var þegar eldra húsið á
Vatnsnesi brann til kaldra
kola. Þá leigði eldri maður í
herbergi þar en við komum
að logandi húsinu í suðaustan
- Menn entust vel í slökkviliðinu og
það var góður liðsandi meðal okkar.
Þarna voru t.d. allan minn tíma menn
eins og Jón Pálsson skipasmiður, Geir
Þórarinsson og Sigurður Guðmunds-
son sem lengi var starfsmaður hjá
Keflavík. Helgi S. Jónsson var Iengi í
liðinu, varaslökkviliðsstjóri og síðan
arftaki minn. Sumir menn voru svo í
báðum slökkviliðunum, uppi á Kefla-
víkurflugvelli og hér í bænum. Þannig
var t.d. um Björgólf Stefánsson og
Heimi Stígsson ljósmyndara sem var í
báðum liðunum og tók myndir af
ýmsum viðburðum eins og sjá má á
þessum síðum.
- Ég leysti Kristin Jónsson af hólmi
sem slökkviliðsstjóri árið 1940 og
gegndi þeim starfa til 1960. Þá tók við
af mér Helgi S. Jónsson sem kunnur
var m.a. sem skátaforingi.
- En ég var náttúrulega líka störf-
um hlaðinn maður utan þessa, kominn
í útgerð og fiskverkun, stússaði í
bæjarpólitíkinni auk annars, þannig að
í rauninni var ekki nokkur meining í að
ég væri slökkviliðsstjóri öllu lengur. Ég
var semsagt slökkviliðsstjóri í 20 ár og
kvaddi starfið og félaga mína með
feginleika - og reyndar líka söknuði.
Óskar Guðmundsson.
30
SLOKKVILIÐSMAÐURINN