Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 34

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 34
 Oliubill valt i Reykjavík Mengunaróhapp í vor eins og áminning til landsmanna. Það þarf að vanda undir- búning og menntun slökkvi- liðsmanna fyrir mengunar- slys. Bæta þarf tækjakost og koma lögum og reglum í nútímalegra horf Miðvikudaginn 21. maí kl. 15.50 barst tilkynning til Slökkviliðs Reykjavíkur um að olíubíll hefði oltið á mótum Suðurlandsvegar og Vest- urlandsvegar. Þegar komið var á staðinn blasti við manni dráttarbíll með 40 tonna tengivagni og var hann á hliðinni á öfugum vegarhelmingi á Suðurlandsvegi, rétt ofan við gatnamót Vesturlandsvegar og Suð- urlandsvegar. Díselolía lak úr full- hlöðnum tanknum á tveimur stöðum fyrir töluvert stórt svæði. Öku- maðurinn lá fyrir framan bílinn og virtist hafa farið í gegnum framrúðuna sem hafði losnaði við veltuna, honum var strax bjargað af svæðinu. Eftir fyrstu skoðun á staðnum kom í ljós að ökumaðurinn var ekki alvarlega slasaður en þurfti þó að fara á sjúkrahús. Aðkoman að slysstað var glæfraleg en betur fór en á horfðist. Dráttarbíll með 40 tonna tengivagni var á hliðinni á öfugum vegarhelmingi á Suðurlandsvegi. Dísel- olía lak úr fullhlöðnum tanknum á tveimur stöðum yfir töluvert stórt svœði og fyrst héldu menn að ökumaður hefði stórslasast. En hann slapp og það tókst að draga úr umhverfismengun, eld- og sprengihættu með réttum viðbrögðum. Mynd: Motiv-mynd Jón Svavarsson. Erlingur Lúðvíksson, aðalvarðstjóri Slökkviliði Reykjavíkur. (I viðtali við Ingimar Sigurðsson skrif- stofustjóra í umhverfisráðuneytinu á bls.10- 11 er einnig fjallað um viðbrögð við meng- unaróhöppum) Mikil umferð var á þessum tíma sem mótaði fyrsta öryggissvæðið sem erfitt var að afmarka. Froða var lögð yfir svæðið sem olían lak á og götum á tanknum tókst að loka með loftlyftipúðum. Rekstrar- aðilar bílsins það er Olíu- dreifing, komu fljótlega með mikið af tækjum og mann- afla. Dælt var af tanknum f aðra bíla áður en reynt var að reisa hann við. Dælubíll sogaði einnig upp olíu af svæðinu þar sem hægt var að koma því við. Síðan voru uppsogsefni notuð við að grófhreinsa götuna en götuþvottatæki þar á eftir til að klára verkið eins vel og mögulegt var. Að lokum var skipt um jarðveg meðfram veginum sem var orðinn olíumengaður. Eftir að búið var að stöðva lekann og tryggja öryggi á vettvangi var haft samband við þá aðila sem með slík mál fara, Heilbrigðiseftirlit og Hollustu- vernd, einnig fengum við ráðgjöf frá Reykjavíkurhöfn. Allir lögðust á eitt að ganga vel frá öllu og var öllum verkþáttum lokið kl. 23.45 þ.e.a.s. átta tímum eftir að slysið varð. í þetta Erlingur Lúðvíksson aðalvarðstjóri stjórnaði að- gerðum á staðnum og í því felst m.a. að veita almenningi upplýsingar ígegnum fjölmiðla. skipti má segja að vel hafi tekist til, ökumaðurinn meiddist lítilsháttar og aðeins 1-2 tonn af díselolíu láku úr tanknum og það á svæði sem tiltölulega þægilegt var að hreinsa. Stjórnun í svona aðgerðum er mikil- vægur þáttur og verður að vera á hendi eins aðila allan tímann ef því er viðkomið. Viðbrögð við mengunaróhöppum eru vaxandi þáttur í starfi slökkviliða en oft á tíðum vanmetinn. Starfi slökkviliða má skipta upp í þrjú megin atriði sem eru: 1. björgun lífa, 2. verndun umhverfis eftir mengunar- óhöpp, og 3. björgun eigna. Sveitarfélög leggja mikinn metnað í sorphirðu og verndun umhverfis, en oft ríkir óvissa um hver eigi að stjórna fyrstu aðgerðum er slys ber að hönd- um. Umhverfið er okkur mikilvægt og það verður að vernda í mun ríkara mæli með fyrirbyggjandi aðgerðum og einnig þarf að byggja upp við- bragðsáætlun ef eitthvað kemur fyrir. Það verður að vera á hreinu hver á að gera hvað og hvernig til að draga úr tjóni af völdum mengunaróhappa. Því miður verður ekki hjá því komist að við lendum í óhöppum, það er ekki spurning hvort eitthvað komi fyrir heldur hvenær. Huga verður betur að menntun og þjálfun slökkviliðsmanna sem og að byggja upp öflugan tækjakost svo allt verði tilbúið þegar kallið kemur. Hér fór vel en það er ekki víst að svo verði alltaf. 34 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.