Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Qupperneq 40
Samstarf björgunaraðila við leitina að flugvélaflakinu í apríl var til fyrirmyndar. Hér eru köfunarsveitarmenn ásamt
stjórnendum lögreglu og slökkviliðs um borð í Ægi.
Mannraunir á
köfunarnámskeiði
Leitar- og björgunarkafaranámskeið vorið 1997 var erfitt en árangursríkt.
Köfurum fer fjölgandi og sömuleiðis útköllum
Leitar- og björgunarkafaranámskeið
var haldið á slökkvistöðinni í
Reykjavík í apríl og maí 1997 og
voru þátttakendur frá slökkviliðinu
í Reykjavík, Lögreglunni í Reykjavík
og Landhelgisgæslunni. Leiðbein-
endur komu einnig frá þessum
sömu aðilum en hitann og þungann
báru þeir Brynjar Friðriksson og
Óttar Sigurðarson frá Slökkviliðinu
og Ólafur Egilsson frá Lögreglunni í
Reykjavík.
Ströng inntökuskilyrði
í upphafi gengu umsækjendur undir
ströng inntökuskilyrði og æfingar og
minnkaði hópurinn til muna við það.
Fyrstu vikuna var farið í bóklegt fyrir
hádegi en í Sundhöll Reykjavíkur eftir
hádegi við ýmsar grunnæfingar. í
bóklega þættinum var farið inná flest
sem viðkemur köfun t.d. sjúkdóma,
loftpressu, eðlisfræði, afþrýstitöflur,
afþrýstikút, leitartækni, vinnu neðan-
sjávar og margt fleira. Þegar þessu
lauk beið sjórinn, mun flóknari verk-
efni og meira dýpi. Á 10-15 m dýpi
voru leyst ýmis verkefni sem mörgum
þykja erfið á þurru landi. Verkefnin
voru margslungin eins og dagarnir
voru margir, svo sem smíða kassa og
raða 2 1/2” slöngu í slöngugrind.
Einnig að losa í sundur og setja saman
aftur hringlaga járnflans með átta
róm, skinnum og boltum þar sem
gúmmíblaðka var á milli, þetta var
strengt ýmist lóðrétt eða Iárétt við
höfnina í misjöfnu skyggni. Einnig var
kafað með loft frá yfirborði og lært að
stjórna loftpanelnum sem skammtar
loft til kafara sem getur verið mjög
mismunandi. Mikið var lagt upp úr
Það getur tekið á að velkjast í sjónum . Erfiðar æfingar geta verið forsenda góðs
árangurs þegar á reynir.
40
SLOKKVILIÐSMAÐURINN