Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 42

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 42
M I N N I N G Sigurgeir Benediktsson Sigurgeir Benediktsson. Fæddist 16. maí 1914. Hann var ráðinn bruna- vörður 20. mars 1943 og skipaður 1. júní 1944. Hann var skipaður varðstjóri 1. apríl 1963 og aðalvarðstjóri 1. janúar 1967. Sigurgeir varð fyrstur til að sækja varðstjóranámskeið í Norges Brann- skole í Osló ásamt Tryggva Ólafssyni árið 1967. Sigurgeir var leigubílstjóri á yngri árum en stundaði sendi- bílaakstur í aukastarfi á milli vakta. Sigurgeir fór á eftirlaun 1. febrúar 1980 en starfaði í nokkur ár eftir það hjá ríkisútvarpinu. Sigurgeir lést þann 26. maí 1997. Eiginkona hans var Sigríður R.B. Bjarnadóttir Gunnar Ólason Gunnar Ólason fæddist 30. október 1931. Hann hóf nám í Vélsmiðjunni Hamri og útskrifaðist þaðan sem vélvirki. Gunnar fór síðan í Vélskólann og útskrifaðist sem vélstjóri. Hann var til sjós um nokkurn tíma m.a. sem vélstjóri á olíuskipinu Hamrafelli. Hann hóf síðan nám í tæknifræði og réðst til starfa hjá slökkvistöðinni 8. janúar 1966 og tók við starfi umsjóna- manns eldvarna árið 1971 er Einar Eyfells sagði stöðunni lausri. Gunnar lést eftir erfið veikindi 28. maí 1997. Eftirlifandi eiginkona Gunnars er Guðrún S. Sverrisdóttir, fædd 8. janúar 1933. Þorkell Eggertsson Þann 18. júni síðastliðinn andaðist Þorkell Eggertsson fyrrverandi varð- stjóri hjá Slökkviliði Akureyrar. Þorkell fæddist á Bakkaseli í Öxnadal en ólst upp í Skagafirði. Um tvítugt fluttist Þorkell síðan til Akureyrar þar sem hann bjó alla tíð. Að morgni mið- vikudags 18. júní bárust okkur starfs- félugum Kela en það var hann ávalt kallaður í okkar hópi, þau tíðindi að hann væri látinn. í gegnum hugann þjóta á augabragði atburðir liðinna ára og samverustunda. Það var gott að hafa Kela, þennan stóra og sterka mann, sér við hlið þegar barist var við eldinn, mesta óvin slökkviliðsmanns- ins. Þar var maður sem hægt var að treysta. Hann stóð eins og klettur sama hvað á gekk, þrautseigja hans og seigla áttu sér fáar hliðstæður. Þorkell hóf störf hjá Slökkviliði Akureyrar árið 1953 en það ár hófust fastar vaktir hjá Slökkviliði Akureyrar. Þorkell var lag- hentur mjög og viðgerðir á vélum virt- ust honum meðfæddur hæfileiki og nýttist það vel í starfi hans hjá slökkvi- liðinu þar sem nóg er af gömlum tækjum sem þurfa mikið viðhald og góða umönnun. Ráðning þessara fyrstu slökkviliðsmanna markaði tíma- mót í sögu Akureyrarbæjar og var mikið í húfi að þar væru traustir menn að störfum, vinnusamir og ósérhlífnir. Alla þessa þætti hafði Keli til að bera. Þorkell var varðstjóri frá árinu 1973 og gegndi þeirri stöðu þar til hann hætti störfum hjá slökkviliðinu sökum veikinda. Þorkell var giftur Sigurlaugu Páls- dóttur úr Skagafirði en hún lést 5. ágúst 1995. Þau áttu fjögur börn sem öll eru uppkominn. 42 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.