Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Side 46
NBS 60 ára - Reykjavík 1997
Námsdagar norrænna slökkviliðsmanna á íslandi
Eftir um tveggja ára undir búning
var loks komið að því að halda hina
árlegu Námsdaga norrænna slökkvi-
liðsmanna (Nordiska brandmáns
studiedagar) en þessi félagsskapur
fagnar í ár merkum tímamótum. Sextíu
ár eru liðin frá því komið var fyrst
saman í Svíþjóð til að skiptast á
þekkingu og reynslu úr starfinu. Það
var okkur því mikill heiður að fá að
halda Námsdagana á 60 ára afmælinu,
ekki síst þar sem 40 ára afmælið var
einnig haldið hér, 1977. Þetta er í
fjórða sinn sem námsdagarnir eru
haldnir hér á landi, en þeir voru hér
fyrst 1966.
Þessu er þannig komið fyrir að
slökkviliðin í Osló, Stokkhólmi, Kaup-
mannahöfn, Helsinki og Gautaborg
skiptast á að halda dagana en
Reykjavík og Bergen koma svo inní
tólftahvert ár. Einnig voru Færeyingar
samþykktir nú með aukaaðild að
ógleymdum Bretum sem sitja dagana
sem gestir.
Fimmtudagurinn 22. maí kom eins
og ekkert hafi í skorist nema hvað að
flugi Flugleiða hafði seinkað og því var
bið á að menn kæmust til Iandsins í
norðri. Ekki létum við það á okkur fá
enda ekki svo ströng dagskrá
komudaginn. Allir skiluðu sér, alls 85
slökkviliðsmenn en vegna seink-
unarinnar þurfti að fresta stjórnar-
fundi sem átti að vera kl. 17 til 22.
Föstudagurinn heilsaði hinum góðu
gestum með sönnu Reykjavíkurveðri
en kl 9:45 var blásið í lúðra. Engum
varð meint af rigningarúðanum.
Á slaginu tíu voru ljósin slökkt í
Vinabæ (Gamla Tónabíó) og mynd-
band með laginu „ísland er land þitt“
sýnt. Þetta myndband er sennilega sú
besta landkynning sem hægt er að
sýna á sem stystum tíma.
Á meðan hinir erlendu gestir voru
að losna við undrunarsvipin á and-
litinu eftir hið stórfenglega mynd-
band, nýtti formaður B.R. sér tæki-
færið og setti dagana.
Þá voru flutt ávörp gesta; Helgu
Jónsdóttur borgarritari, Páls Péturs-
sonar félagsmálaráðherra og Ögmund-
ar Jónassonar, formanns BSRB.
Arnþór Sigurðson afhenti BR gull-
merki sem Geir Hallgrímssyni var veitt
þegar NBS var fyrst haldið hér 1966.
Þetta mun hafa verið eina merkið úr
gulli og verður það vel geymt. Þakkar
félagið fyrir þessa góðu gjöf.
Kór Slökkviliðs Reykjavíkur fór á
kostum þegar þeir félagarnir tóku
nokkur létt lög við góðar undirtektir.
Nú var hægt að hefja dagskrána.
Það var Hrólfur Jónsson slökkviliðs-
stjóri sem reið á vaðið og kynnti
starfsemi SR í máli og myndum. Þegar
hann lauk máli sínu var kominn sá tími
þegar flestir landsmenn setjast niður,
nærast og hlusta á fréttir.
Eftir hádegi var svo tekið að kynna
laun og vinnu, en ekki riðu allir jafn
feitum hesti frá þeirri umræðu. Um
klukkan fimm var gert hlé á frekari
fyrirlestrum til morguns og tóku menn
nú upp léttara hjal. „Vísiteruðu“
félagsmálaráðherra en eftir að hafa
kvatt hann var haldið í Rafveitu-
heimilið þar sem sjávarréttakræsingar
voru bornar fram. Var þessu skolað
niður með efnabættu Gvendar-
brunnavatni, söng og hljóðfæraslætti.
Hver þjóð var svo með sitt skemmti-
atriði. Þessu stjórnaði Hrólfur við
mikla undrun hinna erlendu gesta.
Laugardagurinn var tekinn snemma
því sýna þurfti gestunum hið undur-
fagra Frón.
Um hádegi voru menn svo komnir
og tilbúnir í slaginn.
Þá tók við meginþema námsdag-
anna; hlutverk slökkviliða í almanna-
varnarástandi.
Hafþór Jónsson frá Almanna-
vörnum fjallaði um skipulag almanna-
varna og hlutverk slökkviliða í því
kerfi.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafirði, fjallaði um samstarf
lögreglu, slökkviliða og björgunar-
sveita í almannavarnaástandi.
Hann lýsti fyrir mönnum að-
stæðum, aðdraganda og afleiðingum
snjóflóðanna í Súðavík og á Flateyri.
Hann bar meðal annars saman
skipulag, skilning á aðstæðum og
viðhorf til verkefnisins, lögreglu og
slökkvilið annars vegar og svo
björgunarsveita hins vegar. Það er
augljós skoðun Ólafs Helga að SR hefði
verið rétti aðilinn til að takast á við
stjórnun á þessum erfiðu og við-
kvæmu verkefnum sem björgunar-
störfin á Vestfjörðum voru. Þá var sýnt
myndband frá snjóflóðunum fyrir
vestan.
Ágúst Oddsson, Iæknir í Bol-
ungarvík, kynnti niðurstöður úr
rannsókn sem hann gerði á andlegri
heilsu slökkviliðsmanna samanborið
við hjálparsveitafólk og voru þær
niðurstöður mjög merkilegar.
Sunnudagurinn var notaður til að
uppfylla þá skyldu gestgafanna að
sýna land og þjóð, og var það hinn
Myndin er tekin í kvöldverðarboði Reykjavíkurborgar í Ráðhúsinu. Frá vinstri:
Sverrir Björn Björnsson formaður Brunavarðafélags Reykjavíkur, Jan Frode
Hjellvik formaður félagsins í Bergen og Hrölfur Jönsson slökkviliðsstjóri í
Reykjavík.
46
SLOKKVILIÐSMAÐURINN