Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 47

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Page 47
Slökkvilið Reykjvíkur heiðraði samkomuna með nœrveru sinni og sýnishorni af bílakosti. hefðbundni hringur. Farið var með gestina á Þingvelli og Nesjavelli, en í lok dagsins var svo borhola 13 könnuð. En ekki voru allir lausir þegar heim var komið því að stjórnarfundur NBS var þá á dagskrá. Stóð hann langt fram á nótt. A þessum fundi voru Færeyingar teknir inn í samstarfið sem aukaaðilar. Einnig var rædd dagskrá fyrir næstu námsdaga sem haldnir verða í Kaupmannahöfn að ári en þar verður einnig haldið upp á 100 ára afmæli félagsslökkviliðsmanna. Mánudagurinn var sá síðasti. Jón Viðar Matthíasson kynnti mennt- unarmál slökkviliðsmanna, hann kom inn á baráttuna um fjármagn frá yfirvöldum og að á íslandi vanti ákveðið skipulag sem segir t.d. hve margir menn eigi að vera í útkallsliði slökkviliða miðað við ákveðnar forsendur. Einnig útskýrði Jón Viðar brunamála- og sjúkraflutningaskólana og tengsl SR við Pittsburg í U.S.A. Einnig kynnti hann samstarfið við slökkviliðið í Gautaborg um köfun. Hann sýndi einnig tengsl á milli launa við aukna menntun þann tíma sem starfsmaður starfar í slökkviliði. Þar næst voru frjálsar umræður um hlutverk slökkviliða í almanna- varnaástandi. Þátttakendur í því voru Bergsteinn Gizurarson brunamála- stjóri, Hrólfur Jónson og svo einn frá hverju landi sem voru með lauslega kynningu á því hvernig þessum mála- flokki er háttað í þeirra löndum. Ekkert stórmarkvert kom fram í þess- um umræðum. Hrólfur sagði þó frá því að slökkvi- liðsstjórar á Norðurlöndunum hittist reglulega og þar væru þessi mál rædd sem og önnur. Bergsteinn sagði frá samvinnu milli almannavarna og slökkviliða. Spurningunni um hver staða slökkviliða í almannavarnaástandi er á íslandi er ósvarað. Allir þekkjum við söguna um bið- röðina á almannavarnaæfingunni við Borgarspítalann þegar sjúkrabílar voru sendir á ljósum. Var þeim sagt að fara í röðina og voru nr. 17 og 18 í henni. Þegar þessari umræðu var lokið kom Sven Lindgren og sagði frá til- raunaverkefni með konur í slökkvi- liðinu í Stokkhólmi. Þetta er mjög áhugaverð tilraun og vonandi fáum við að heyra meira um hana í framtíðinni. Sýnt var myndband frá deginum áður þar sem menn gátu séð hvernig þeir litu út yfir hákarlsáti og - smökkun. Höfðu menn gaman af þeim grettum sem komu þar á menn! Lesnar voru upp ályktanir. Jón Friðrik þakkaði fyrir hönd NBS- nefndar öllum þátttakendum, fyrir- lesurum, styrktaraðilum og öðrum sem að námsdögunum komu. Síðan var NBS-fáninn afhentur Dönum sem geyma hann þar til þeir draga hann að húni að ári. Sverrir Björn Björnsson formaður Brunavarðarfélags Reykjavíkur Afkvæmi slökkviliðsmanna fá þjálfun á unga aldri. Myndin er tekin í árlegri ferð slökkviðlismanna á Keflavíkurvelli og fjölskyldna þeirra. Að þessu sinni var farið í Þórsmörk og var ferðin vel heppnuð og skemmtileg. Guðrún, Theódór, Tara og Einar Örn blása í glœðurnar. SLOKKVILIÐSMAÐURINN 47

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.