Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 48

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 48
Fréttir frá Brunatæknifélagi íslands Sex fræðslufundir á starfsárinu Að hefðbundnum hætti voru haldnir sex fundir á vegum félagsins á liðnu starfsári (1996-97). Lögð var áhersla á að hafa þar fræðandi efni. Sérstaklega fyrir þá sem starfa á einhvern hátt í þeim geira sem snúa að slökkviliðum, fyrirbyggjandi aðgerðum, hönnun, rannsóknum, fræðslu og nýjungum í geiranum. Fyrsti fundurinn var haldinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur- flugvelli, 4. okt. 1996. Fundarefnið var: Flugstöðin nú, öryggisboðunarbún- aður, slökkvikerfi og fyrirhuguð stækk- un stöðvarinnar. Að fundi Ioknum áttu fundarmenn góða kvöldstund saman yfir ánægju- legum kvöldverði. Kröftugir málaefnafundir Annar fundurinn var haldinn í húsnæði Flugmálastjórnar á Reykja- víkurflugvelli, 13. nóvember 1996. Fundarefni var: Efni sem leysa eiga Halon af hólmi. Þriðji fundurinn var haldinn á sama stað 11. desember 1996. Fundarefnið var: Eldvarnir og sérstakar fyrir- byggjandi aðgerðir vegna jólahátðíð- arinnar. Fjórði fundurinn var haldinn á sama stað, 15. janúar 1997. Fundarefnið var: Helstu eldsvoðar síðastliðins árs. Fimmti fundurinn var haldinn 14. febrúar 1997 og enn á sama stað á Reykjavíkurflugvelli. Fundarefnið var: Forsendur starfsemi neyðarlínunnar. Fjölþættur aðalfundur Sjötti og síðasti fundur starfsársins var síðan aðalfundur félagsins. Hann var haldinn í húsnæði Rafiðnaðar- skólans, Skeifunni llb, 15. mars 1997. Að afloknum hefðbundnum aðalfunda- störfum ávarpaði formaður alþjóða- samtakanna sem félagið er aðili að, „The Institution of Fire Engineers“, George Almond, fundinn. Að því loknu voru haldin þrjú fræðandi erindi: Björgun úr rústum, mat á öryggi fólks í brennandi bygg- ingum með líkindalegum aðferðum og síðast en ekki síst, uppbygging slökkvi- þjónustunnar í Englandi. Inga nýr formaður Tveir stjórnarmenn í félaginu höfðu ákveðið að gefa ekki kost á sér í stjórn félagsins áfram, það voru þeir Birgir Ólafsson slökkviliðsstjóri á Reykja- víkurflugvelli og Ásbjörn Björgvinsson öryggisráðgjafi hjá VSl. Einnig varð samkvæmt lögum félagsins að skipta um formann. Björn Ingi Sverrisson rafmagnstæknifræðingur sem verið hefur formaður í tvö ár, hætti og við tók Inga Hersteinsdóttir verkfræð- ingur. Auk hennar sitja í stjórn Guðmundur Gunnarsson varafor- maður, Helgi ívarsson ritari, Halldór Vilhjálmsson gjaldkeri (og sér um erlend bréfassamskipti) og Björn Ingi Sverrisson meðstjórnandi. lukas ^-ínheim ’S’Ýií s,6kkvi,ið [“‘eytur |r 48 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.