Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 50

Slökkviliðsmaðurinn - 01.09.1997, Síða 50
Alyktun um átak í brunamálum starfshópur Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðsmanna 27. júní 1997 Fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lands- sambands slökkviliðsmanna í starfshópi sem ætlað er að fjalla um fjármögnun á starfsemi slökkviliða m.a. með tilliti til gamals og víða úrelts tækjabúnaðar ályktar eftirfarandi: Lagt er til að: 1. BÍ taki þátt í átaki og standi að fjármögnun til endurnýjunar tækja- kosts slökkviliðanna í landinu. 2. BÍ veiti styrk til for- varnastarfa í brunamál- um í þágu sveitarfélag- anna s.s. árlegt Bruna- varnaátak. Brunabótafélag íslands hefur starf- að að brunavörnum og tryggingum með farsælum hætti nú í 80 ár. Það hefur gegnt lykilhlutverki alla þá tíð. Það er því eðlilegt að leitað sé til Brunabótafélags íslands og það hvatt til að koma að sérstöku átaki með því að styrkja endurnýjun tækjakosts slökkviliðanna í landinu. Mikil og brýn nauðsyn er til að koma á slíku átaki. Lagt er til að sett verði á laggirnar sameiginleg nefnd skipuð fulltrúum frá Brunabótafélagi íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landssam- bandi slökkviliðsmanna til að vinna að framgangi málsins. Ljóst er að ástandi tækjakosts slökkviliðanna í landinu er víða veru- lega ábótavant og á þetta ekki síst við um bifreiðakost þeirra. Miklar lög- bundnar skyldur hvíla á sveitar- félögunum vegna þeirra fjölmörgu verkefna er falla undir starfsemi slökkviliða og lúta að grundvallar öryggi íbúa hvers sveitarfélags og varða líf, umhverfi og eignir sam- borgaranna. Eftirfarandi áhersl- ur eru settar fram um framkvæmd: - Komið yrði á stöðluðu heildarútboði vegna bifreiða - og tækjakaupa slökkviliða. - Gerð verði 3ja til 5 ára framkvæmdaáætlun. Markmið BÍ eins og fram kemur í lögum félagsins er að styrkja bruna- varnamál á svæði félagsins. Það verða því að teljast fullgild rök að verja tilteknum hluta fjármuna BÍ til stuðn- ings og uppbyggingar starfsemi slökkviliðanna í landinu en rekstur og ábyrgð þeirra heyrir undir sveitar- félögin. Lina Hertevig er fyrst íslenskra kvenna til að starfa í slökkviliði. Hún er eldvarna- eftirlitsmaður á Keflavíkur- flugvelli. Hún starfar mjög að félagsmálum og er m.a. í varastjórn Lands- sambands slökkviliðs- manna. Á myndinni eru Lína og Óli Ásmundsson eldvarnaeftirlitsmenn með nemendum sínum á Keflavíkurvelli. ltg£ ■ ,4 í* • W !». •) IBflr ' 1 - - j 'Æf* . j k V ■ \ |wr . 1 ’ 50 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.