Bændablaðið - 09.01.2020, Side 19

Bændablaðið - 09.01.2020, Side 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 2020 19 SELDU HRYSSUR TIL LÍFS Hrossabændur óska eftir hryssum Mega vera þriggja til fimmtán vetra Greiðum 30.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna. Sækjum frítt á Suður-, Vestur- og Norðurland. Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 581-4138. Geymið auglýsinguna! Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu í WorldFeng. Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði Hafðu samband 568 0100 www.stolpigamar.is Gámurinn er þarfaþing  Þurrgámar  Hitastýrðir gámar  Geymslugámar  Einangraðir gámar  Fleti og tankgámar  Gámar með hliðaropnun Til leigu eða sölu:  Gámahús og salernishús  Færanleg starfsmannaðstaða  Bos gámar og skemmur UTAN ÚR HEIMI Gróðureldarnir í kjölfar mikilla þurrka í Ástralíu eru gríðarleg- ir og um leið og einir eldar eru slökktir hafa nokkrir aðrir kvikn- að. Þúsundir manna eru á flótta undan eldunum og ótölulegur fjöldi dýra hefur drepist af þeirra völdum. Talið er að rúmlega 48,5 þúsund ferkílómetrar lands hafi orðið eldinum að bráð. Eldarnir í Ástralíu, sem eru mestir í kjarr- og skóglendi, loga nánast um álfuna alla en eru mestir í New South Wales-, Victoria- og Queensland- héruðum. Eldarnir hafa vaxið hratt í kjölfar eins mesta þurrka- og hita- tímabils í Ástralíu í manna minnum þar sem hitamet hafa verið slegin og ekki rignt í nokkra mánuði. Þúsundir manna eru á flótta undan eldunum og þúsundir slökkviliðsmanna og sjálfboðaliða berjast við hann. Eldtungurnar þar sem þær eru mestar eru sagðar ná 70 metra í loftið. Þykkur reykur liggur í loftinu og haft hefur verið eftir íbúum þar sem kófið er mest að loftið sé mettað og það eins og að reykja marga sígarettupakka á dag að anda því að sér. Að minnsta kosti 23 hafa látist vegna eldanna. Ástralski herinn leggur einnig sitt af mörkum og hafa Ný-Sjálendingar einnig sent slökkviliðs- og hermenn til Ástralíu og ríkisstjórn Papúa Nýju Gíneu hefur einnið boðist til að senda herlið til að aðstoða í bar- áttunni við eldinn. Líf manna og dýra í hættu Þurrkarnir og eldarnir í kjölfar þeirra hafa haft gríðarleg áhrif á dýralíf í álfunni og fjöldi dýra sem hafa drepist vegna þeirra óteljan- legur. Jafnvel er talið að eldarnir hafi útrýmt tegundum sem bundnar eru við ákveðin búsvæði og hafa orðið eldinum að bráð. Skemmdir á gróðri eru einnig miklar, sérstaklega þegar kemur að gömlum trjám. Runnagróður mun aftur á móti ná sér fljótt aftur þar sem í sumum tilfellum þarf elda til að grisja gróðurinn og til að fræ spíri. Stjórnvöld gagnrýnd Scott Morrison forsætisráðherra og stjórnvöld í Ástralíu hafa verið harðlega gagnrýnd innanlands fyrir að hafa ekki gripið fyrr til ráðstafana vegna mikilla þurrka undanfarinna mánaða og síðan eldanna í kjölfar þeirra. Morrison, sem hefur opinberlega afneitað hlýnun jarðar af manna- völdum, er sagður hafa stungið hausnum í sandinn og neitað að hafa horfst í augun við staðreyndir og alvarleika málsins. Gróðureldar víða um heim Síðastliðin tvö ár hafa gróðureldar geisað víða um heim. Árið 2018 er talið að eldar hafi logað á rúm- lega 8 þúsund ferkílómetra svæði í Kaliforníu og á síðasta ári er talið að tæplega 9 þúsund ferkílómetrar skóglendis hafi orðið eldi að bráð í Amason-regnskógunum. Á síð- asta ári loguðu líka miklir eldar í Síberíu sem náðu yfir rúma 27 þúsund ferkílómetra. Þrátt fyrir að allt séu þetta miklir eldar sem náð hafa yfir stór svæði og valdið gríðarlegu tjóni eru þeir smáir miðað við gróðureldana sem geisa í Ástralíu um þessar mundir og áætlað er að hafi farið yfir rúma 48,5 þúsund ferkílómetra með skelfilegum afleiðingum fyrir menn, dýr og gróður. Eldarnir í Kaliforníu vöktu mikla athygli þar sem þeir brunnu í nágrenni við íbúabyggð og ollu talsvert miklu tjóni í byggð. Eldar í Amason vekja yfirleitt mikla athygli enda nátengdir barátt- unni við ólöglegt skógarghögg og nautgriparækt í Suður-Ameríku. Skógareldarnir í Síberíu áttu sér stað á afskekktum svæðum í Norður-Rússlandi þar sem er lítil byggð og ekki er vitað til að þeir hafi valdið tjóni á mannvirkjum. /VH Ástralía brennur 10AFSLÁTTUR ef pantað er fyrir 31. janúar % Austur vegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Gróðurhús í öllum stærðum og gerðum!

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.