Bændablaðið - 09.01.2020, Síða 42

Bændablaðið - 09.01.2020, Síða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 9. janúar 202042 LESENDABÁS Mig langar að hefja nýtt ár á því að dást að íslensku þjóðinni því hún er svo sannarlega stórkostleg. Í gegnum árhundruðin höfum við sýnt dug, þor, útsjónarsemi og seiglu sem hefur komið okkur svona ótrúlega langt og síðustu áratugina jafnvel lengra en nágrannaþjóðir okkar. Við börðumst fyrir öllu sem við eignuðumst, fullveldinu, lýðræðinu, landhelginni og svo mætti lengi telja. Það kom aldrei sá tími að við létum í minni pokann og gæfumst upp fyrir ofríki, sama hvers lenskt ofríkið var. Þannig fengum við fullveldi árið 1918 og stofnuðum lýðveldi 1944, með því að hætta ekki að berjast. Svo vissir voru Jón Sigurðsson og hans menn um að aldrei nokkurn tímann myndi nokkrum Íslendingi detta í hug að gefa þumlung eftir af fullveldinu að þeir settu ekki einu sinni ákvæði um fullveldið í stjórnarskrána okkar. Það var engin þörf á því. Það kæmi auðvitað aldrei til greina. Svo kemur Evrópusambandið fram á sjónarsviðið og einhverjir efasemdarmenn hefja að garga sig hása um ágæti þess og halda því jafnvel fram að það hafi ágæti umfram ágæti okkar Íslendinga. Ég hlæ ekki bara að slíkum staðhæfingum, ég hnussa í áttina að þeim. Íslendingum verður aldrei betur borgið undir stjórn annars ríkis enda var það ekki að ástæðulausu sem við stukkum í bátana og sigldum í burtu frá Noregi til að finna þessa harðbýlu eyju. Hérna áttum við heima og hérna munum við eiga áfram heima. Ég er orðinn langþreyttur á því að gert sé lítið úr Íslendingum. Íslendingar eru stórkostleg þjóð og það er engin ástæða til að gera lítið úr þeim afrekum sem við höfum áorkað. Við höfum leyst ótrúlegustu vandamál á skynsamlegan hátt. Má þar á meðal nefna þá áskorun sem það var að flytja heita vatnið okkar langar leiðir án þess að það tapaði miklu af varma sínum. Við höfum sett á fót heimsþekkt fyrirtæki; Össur, Marel, CCP og fleiri. Við höfum staðið okkur undursamlega vel í íþróttum. Það er eins og innra með okkur búi einhver fítonskraftur sem knýr okkur áfram því við erum ekki nema rétt rúmlega 360 þúsund og þó höfum við alla þessa sigra að baki. Nú hef ég vissulega búið víða en þó slær hjartað alltaf sterkar á Íslandi því ég er Íslendingur og fyrir mér hefur það mjög mikla merkingu. Það er ekki að ástæðulausu að um okkur leikur sælutilfinning þegar Icelandair segir „Velkomin heim“ í hátalarann eftir að dekkin snerta jörðina heima á Fróni. Því Ísland er og verður alltaf heim og heimili okkar er ekki til sölu. Mig langar því að fara inn í þetta ár fullur af bjartsýni og stolti. Ég vil að við hættum að hlusta á dómsdagsspár efasemdamanna um að okkur verði aldrei borgið nema innan Evrópusambandsins. Ég vil að við endurvekjum trúna á fólkið okkar og landið okkar. Ég vil að við sameinumst og sýnum samstöðu. Hjálpum hvert öðru og brosum framan í náungann. Hættum að tala okkur niður því það er engin ástæða til þess. Við getum allt sem við tökum okkur fyrir hendur og því megum við sem þjóð aldrei gleyma! Það eru nefnilega mikil forréttindi að hafa íslenskt ríkisfang og vega­ bréf en ekki eitthvert útvatn­ að merkingarlaust plagg merkt Evrópusambandinu. Guðmundur Franklin Jónsson viðskipta- og hagfræðingur Tilfinningar og varnarhættir Að gefnu tilefni vil ég leggja orð í belg varðandi umfjöllun frétta- miðla af vetrarhretinu um miðjan desember á Norðurlandi vítt og breitt þar sem aftakaveður varð og setti daglegt líf úr skorðum í miklum mæli. Það var átakanlegt að heyra og sjá og lesa um þær hamfarir sem dundu yfir landið norðanvert þar sem lítið var við ráðið til að sinna eðlilegum störf- um til sveita. Þegar ég var að ljúka námi við Hafnarháskóla í mínu fagi valdi ég að skrifa lokaritgerð um virkni tilfinninga og varnarhátta í sállíkamlegum kvillum fólks. Varð það vegferð sem tók á sig ýmsar krókaleiðir sem ég síst bjóst við. Eins og heitið bendir til varð þetta ferðalag um völundarhús þróunarsögu dýra og manna. Þó þetta eigi ekki að vera endurtekning á öllu því er gott að hafa í huga að spendýr og þá við mannfólkið höfum erft þá eiginleika þróunarinnar sem orðið hefur sl. milljón ár frá skriðdýrum og fram eftir. Það sem markverðast er í þessu er að tilfinningar þróuðust væntanlega sem lausn á tímaskorti dýra í hættu­ legum aðstæðum milli bráðarinnar og rándýrsins þar sem ekki varð mikill tími til að hugsa um úrræði en þeim mun betra að hafa nokkr­ ar öruggar, sjálfvirkar leiðir til að bregðast við eins og að flýja, leika sig dauðan o.s.frv. frekar en að mæta átökunum. Þannig mynduðust 8 grunntilfinningar eða sambland af fleiri viðbrögðum sem eru ómeð­ vituð og koma á sekúndubroti og eru meðfæddir hæfileikar og auka líkur á að lifa af í slíku umhverfi. Hinn meginhæfileikinn sem hefur þróast mest með okkur manninum er sk. vitsmunagreind með tilkomu heilabarkarins og nýtist betur þegar tími er fyrir hendi til að komast að „bestu“ niðurstöðu og með reynsl­ unni nýtist hún líka þar sem tími er ekki eins afgerandi við upplýs­ ingaleitina. Einn af brautryðjendunum í þessum rannsóknum var Bretinn Charles Darwin sem kannaði mikið viðbrögð hunda og andlitsásýnd í þeim aðstæðum. Þetta var nokkrum árum á undan brautryðjendastarfi Sigmund Freud en hefur einskorðast við dýraatferlisfræði að manninum undanskildum því miður. Hver er þá ástæðan fyrir því að nefna þetta núna? Jú, þar sem þessir hæfileikar sem nefndir voru eru með­ fæddir með uppsafnaðri þróunar­ reynslu er gott að hafa það í huga að tilfinningar eru smitandi manna í milli og milli manna og dýra. Þetta er mjög öflug leið til að koma til­ finningalegum skilaboðum til skila með eða án orða þannig að hægt er að fá umhyggju og aðhlynningu strax ef með þarf í tilfinningalega þungbærum aðstæðum og þannig fá stuðning strax og vitneskju um hvort maður standi ein (­n) eða ekki. Þetta er uppistaðan í samhygðinni með öðrum í þungbærum aðstæðum og góð leið til að tengjast betur öðrum tilfinningalega. Þessi hæfileiki er meðfæddur og fer ekki í kyngreiningarálit nema að menningarkimar krefjist þess og reynt sé að bæla hann niður. Það ber að vara við að bæla jafn mikilvæga hæfileika að geta sýnt breidd sína í tilfinningalegum viðbrögðum eftir aðstæðum sem hver og einn hefur til að tjá upplifun sína í ýmsum aðstæð­ um þegar náinn félagi hverfur frá manni í tilverunni oft eftir langar og gagnkvæmar samverustundir með þeirri gleði og fyrirhöfn sem maður getur haft með mökum, börn­ um og dýrum. Þess vegna er það heilandi að geta virt tilfinningaleg viðbrögð sín í aðstæðum sem lík­ leg eru til að skapa betri tengsl og skilning okkar nánustu til að kom­ ast sem fyrst á sporið aftur. Það er þekkt að foreldrar læra fljótt að nýta þessa hæfileika með því að greina hljóð og grát ungbarna þegar þau tjá þarfir sínar fyrir máltöku en þá eru tilfinningaleg samskipti beggja kynja besta samskiptaformið því það greina ungbörnin strax enda meðfætt. Ekki er eðlislægur greinarmunur á körlum og konum hvað þessa hæfileika varðar en maður getur valið að hafna þessum hæfileikum en verða þá af mun ríkari tengslum fyrir vikið. Eitt ber að vara við í leiðinni en það er að nota orðið „grenjuskjóða“ hvort sem er um að ræða börn eða fullorðna því það er eingöngu nýtilegt til að meiða, særa eða fyrirlíta og ber því að varast. Lúðvíg Lárusson, cand. psych. og skógarbóndi Opið bréf til Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra Kain og Abel börðust forðum um nýtingu lands. Jarðarbúar hafa síðan háð sömu baráttu sem hefur lýst sér í óhugnanlegum stríðum um allan heim. Flestar vestrænar menningarþjóðir komu svo fyrir nokkuð hundruð árum með þá lausn sem kallast einkaréttur á landi. Þróaðist þessi lausn í megin- atriðum þannig að þeir sem áttu landið fengu að ráða því hvernig það væri nýtt. Íslendingar telja sig vera eina af þessum vestrænu menningarþjóð­ um og hafa því einkarétt á landi. Nýtingarrétturinn þróaðist hins vegar ekki fyrr en ræktun lands og dýrastofna hófst fyrir um 70 árum. Þá gerðu bændur þau mistök að girða af ræktunarland sitt í stað þess að girða af búfé. Síðan þá hefur gjáin milli þeirra sem vilja rækta landið og þeirra sem vilja frjálsa beit, óháða eigna­ og nýtingarrétti stækkað. Er ekki kominn tími til að láta af þessu stríði þar sem eignir eru skemmdar auk þess að gjörspillt landbúnaðarnefnd hefur komið í veg fyrir nýtingaráform bænda og varið milljónum í tilgangslaus dómsmál? Allt bendir til þess að stríðið muni harðna en fólk er í auknum mæli að opna augu sín gagnvart heilaþvotti og áróðri búfjáreigenda sem hefur varað síðastliðin 70 ár. Guðmundur, þú ert eini maðurinn í landinu sem getur stöðvað þetta brjálæði með einu pennastriki í kjöl­ farið á einni skynsamlegri ákvörðun. Banna lausagöngu alls búfjár og hús­ dýra um allt land. Meðfylgjandi eru nokkrar athugasemdir sem ættu að vekja þig til umhugsunar um þetta málefni. Sagt er að lausaganga búfjár sé réttur búfjáreigenda, réttur sem þeir eigi erfitt með að gefa eftir. Samkvæmt lögum um búfjárhald, sem tóku gildi 2014, kallast það lausaganga þegar búfé getur geng­ ið á annars manns landi í óleyfi. Þessu má líkja við rétt sem þjófur hefur til að taka verðmæti úr ólæstu húsi. Í sömu lögum er lýsing á að lausagöngubann er bann sem sveitar­ stjórn samþykkir fyrir sveitarfélagið í heild eða hluta þess og auglýsir í Stjórnartíðindum til að koma í veg fyrir lausagöngu búfjár. Sagt er að landið muni fyllast af girðingum. Það rétta er að flestir búfjáreigendur hafa nú þegar nóg af girðingum til að halda bústofni sínum á eigin landi. Hins vegar mun ekki verða þörf á girðingum á landi þar sem ekki er haldið búfé eins og vegi, landgræðslusvæði, skóga, sumarbústaðalönd og sauðfjárveik­ isvarnargirðingar ásamt girðingum um þéttbýliskjarna. Sagt er að sauðfjárbændur haldi landi í byggð. Það rétta er að fólk sem langar að búa í strjálbýli held­ ur landinu í byggð en fjallskila­ reglur, skyldur og kostnaður fælir fólk frá því að láta þann draum sinn rætast. Sagt er að íslenska sauðkindin þurfi að komast á fjall til að þríf­ ast eðlilega. Ekkert bendir hins vegar til þess, túnfé afsannar þá staðhæfingu. Sagt er að afurð frá fé sem gengur frjálst sé einstaklega heilnæm, kryddað á fæti eins og það er kallað. Það rétta er að lítið er um kryddplöntur á landi sem þarf að þola óstýrða beit sumarlangt, ár eftir ár. Helstu krydd sem lömbin fá eru blanda af iðnaðarsalti, ösku frá útblæstri bíla, örplasti og gúmmíögnum vegna dekkjaslits sem þau sleikja upp úr moldarslóðum um allt land. Eina leiðin til að vera örugg um að kjötið sé neysluhæft er að fá lífræna vottun en hún fæst þó ekki á lausagöngubúfé. Sagt er að sauðfjárbeit komi í veg fyrir að illgresi vaxi yfir landið og haldi við búsetulandslagi. Að vísu er það að hluta til rétt en búsetulandslag þarf ekki að haldast við uppi á fjöllum þar sem aldrei hefur verið búseta. Annars væri hér í boði ný tekjulind fyrir búfjáreigendur, að leigja út skepnur til að beita niður óæskilegan gróður. Guðmundur, það er því engin ástæða til að banna ekki lausagöngu alls búfjár og gæludýra um allt land og þannig munt þú um leið marka þín fyrstu spor í aðgerðum í loftslagsmálum. Please do not fail on this. Kristján Beekman Bænda Næsta blað kemur út 23. janúar Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur Guðmundur Franklin Jónsson. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, og Svandís Svavars dóttir heilbrigðisráðherra við undirritun samkomulags um byggingu hjúkrunar­ heimilisins. Húsavík: Samkeppni um 60 rúma hjúkrunarheimili Efnt hefur verið til samkeppni um hönnun á nýju 60 rýma hjúkrunarheimili á Húsavík sem leysa mun af hólmi dvalar- og hjúkrunarheimilið Hvamm. Heilbrigðisráðuneytið og sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit standa saman að byggingu heimilisins. Með tilkomu þess fjölgar hjúkrunarrýmum á svæðinu um sex. Framkvæmdasýsla ríkisins stendur fyrir hönnunarsamkeppninni fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélagsins Norðurþings. Skilafrestur tillagna er til 21. febrúar næstkomandi. /MHH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.