Bændablaðið - 05.03.2020, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202014
HLUNNINDI&VEIÐI
FRÉTTIR
Frá Vetrarhátíð 2017.
Vetrarhátíð við Mývatn
Vetrarhátíð við Mývatn er nú
haldin í fyrsta sinn en hátíð
in hefst á morgun, 6. mars, og
stendur fram á sunnudag 8. mars.
Sannkölluð vetrarstemning verð
ur við völd í Mývatnssveit þessa
daga.
Þetta er nokkurs konar bæjarhátíð
að vetri til þar sem verður fjölbreytt
og spennandi fjölskyldudagskrá
alla helgina, en Mývatnssveit er
sannkölluð vetrarparadís á þessum
árstíma. Sérstaða Vetrarhátíðar
við Mývatn eru þær vetraríþróttir
sem verða í öndvegi en þar má
nefna hestamótið Mývatn Open -
Hestar á ís, Íslandsmeistaramót
Sleðahunda klúbbs Íslands og svo
Mývatnssleðinn þar sem fólk keppir
á heimalöguðum sleðum á vatninu.
Allir þessir viðburðir eiga það
sameiginlegt að vera haldnir á ísi
lögðu Mývatni.
Í ár verður einnig haldið Íslands-
meistara mót í snjókrossi í Kröflu.
Allir þessir viðburðir verða opnir
gestum og gangandi sem vilja koma
og fylgjast með þessum viðburðum.
Veiðifélag Mývatns mun jafnframt
bjóða upp á dorgveiði í Mývatni og
íþróttafélagið Mývetningur ætlar
að halda opnu gönguskíðaspori
alla helgina. Hægt verður að
heimsækja sleðahundana og það
verður barnabraut fyrir fjölskylduna
á Álftabáru, lifandi tónlist og tilboð
í gistingu og mat alla helgina.
/MÞÞ
Eyjafjarðarsveit:
Guðjón og Guðni sletta úr
klaufunum á Kaffi Kú
Guðjón Ragnar Jónasson, annar
höfunda bókarinnar Kinda sögur,
og Guðni Ágústsson, fyrrverandi
ráðherra, koma norður í Eyja
fjarðar sveit laugardaginn 7. mars
og verða með skemmtun á Kaffi
Kú.
Þeir ætla að skemmta fólkinu með
kveðskap, gríni og skemmtisögum,
bæði úr bókinni en líka af hinu og
þessu sem bændur geta lent í eða
hafa lent í. Lofað er skemmtilegri
kvöldstund á Kaffi kú og öðruvísi
þannig að íbúar og nærsveitungar
þeirra eru hvattir til að missa ekki
af því.
Kaffi Kú er staðsett á Garði í
Eyjafjarðarsveit. Árið 2007 var
þar byggt hátækni lausagöngufjós,
eitt hið fyrsta sinnar tegundar hér
á landi. Fjósloftið var nýtt og því
breytt í kaffihús 2011 þar sem boðið
er upp á afþreyingu og gestir geta
þar fylgst með því sem er að gerast
í fjósinu. Eigendur eru þau Sesselja
Ingibjörg Barðdal, sem er lærður
þjónn og með lögfræðimenntun,
en Einar Örn er frumkvöðullinn
og með viðskiptamenntun og er
bóndasonurinn á bænum.
Skemmtun Guðjóns og Guðna
hefst kl. 20.30 þann 7. mars, en
hamingju stund stendur yfir á
veitinga staðnum frá kl. 18 til 20 og
tilboð er á Kaffi Kú hamborgara og
bjór. /MÞÞ
Einar Aðalsteinsson og Sesselja Barðdal reka Kaffi Kú í Eyjafjarðarsveit.
Varðveislugildi gróðurhúsa í Hveragerði
Landform á Selfossi hefur skilað af
sér skýrslu til Hveragerðisbæjar,
sem inniheldur samantekt á
varðveislugildi gróðurhúsa í
Hveragerði. Markmið verkefnisins
er að skrásetja og gera úttekt
á öllum gróðurhúsum innan
bæjarfélagsins.
Eins og kunnugt er byggðist
Hveragerði að stórum hluta upp í
kringum ylræktar- og garðyrkju-
stöðvar og eru þær stór hluti af sögu
bæjarins og áberandi í svipmóti
hans. Þróun undanfarinna ára hefur
verið með þeim hætti að rekstur
margra stöðvanna hefur verið
erfiður og í stað garðyrkjustöðva
hefur íbúðarhúsnæði verið byggt
á lóðum þeirra. Fagrihvammur er
fyrsta ylræktarstöðin í Hveragerði,
stofnuð 1929 af Sigurði Sigurðssyni
búnaðarmálastjóra og Ingimari
syni hans. Búið er að rífa upp-
runalegu gróðurhúsin sem voru frá
1929, en elstu uppistandandi hús í
Fagrahvammi eru frá 1961. Í dag
eru 18 starfandi garðyrkjustöðvar
í Hveragerði en álíka margar hafa
lagt upp laupana á undanförnum
árum. /MHH
Sjötíu milljóna króna samningur
við Lýðskólann á Flateyri
Nýlega undirrituðu þær Ingibjörg
Guðmundsdóttir, skólastjóri Lýð
s kól ans á Flateyri og Lilja Alfreðs
dóttir mennta og menningar
málaráðherra samning um 70
milljóna króna stuðning ríkisins
við skólann.
Lýðskólinn mun þá bjóða upp
á nám sem uppfyllir kröfur nýrra
laga um lýðskóla og sækja um
viðurkenningu sem slíkur skóli á
samningstímanum. Með tilkomu
nýrra laga um lýðskóla var fest í
sessi fagleg umgjörð um starfsemi
slíkra skóla hér á landi en fram að
því hafði engin löggjöf gilt um þá.
/MHH
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
skólastjóri Lýðs kól ans á Flateyri,
og Lilja Alfreðs dóttir mennta- og
menningar málaráðherra við undir-
ritun samningsins.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar vinnu við hugsanleg Tröllaskagagöng:
Telur göngin vera hagkvæmustu
samgöngubótina á landsbyggðinni
– mögulega verið að tala um tvenn 20 km löng göng hlið við hlið
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fagnar fram
kominni þingsályktunar tillögu
um að samgöngu og sveitar
stjórnar ráðherra láti hefja vinnu
við rannsóknir, frum hönnun
og mat á hagkvæmni á gerð
jarðganga á Trölla skaga. Þetta
kemur fram í umsögn byggðar
ráðs vegna þings ályktunartillögu
um Trölla skagagöng milli Skaga
fjarðar og Akureyrar.
Tröllaskagagöng eru samt langt
frá því að vera eini valkosturinn
sem rætt hefur verið um. Ljóst er
að brýn þörf er talin á að gera ný
göng úr Fljótum til Siglufjarðar þar
sem vegurinn að Strákagöngum
er orðinn mjög varasamur vegna
jarðsigs. Þá eru göngin sjálf barn
síns tíma sem næstelstu veggöng
á landinu. Þar yrði líklegast um 6
km að ræða, sem tryggði öruggan
hringveg um Tröllaskaga.
Helst rætt um 20 km göng frá
Hólum í Barkárdal
Hreinn Haraldsson hefur skoð að
jarðganga gerð í gegnum Trölla-
skaga að beiðni sveitar stjórna
í Skagafirði og á Akureyri. Þar
var skásti kosturinn talinn vera
19–20 km göng á milli Hóla og
Barkárdals. Talað er um að þau
geti kostað um 50 til 70 milljarða
króna. Komið hefur fram að svo
löng göng hafa þann annmarka
að samkvæmt erlendum öryggis-
stöðlum þyrfti líklega að gera
þar tvenn göng hlið við hlið. Þá
er verið að tala um allt að 40 km
gangagröft, eða jafn langt og úr
Garðabæ til Keflavíkur. Til saman-
burðar eru Hvalfjarðargöng 5.770
metrar.
Lengstu bílagöng í heimi eru
Lærdalstunnel í Noregi. Þau eru 24,5
km og voru opnuð árið 2000. Vegna
öryggissjónarmiða er nú talað um að
aldrei verði heimilað aftur að gera
slík göng, enda eru engar flóttaleiðir
úr þeim göngum.
Gísli Eiríksson, forstöðumaður
jarðganga hjá Vegagerðinni, sagði
í samtali við RÚV 2. febrúar sl. að
hann efaðist um að Tröllaskagagöng
væru skynsamleg. Í öllu falli ætti að
byrja á því að skoða öryggiskröfur
sem gerðar eru til slíkra ganga.
Þung áhersla lögð á
Tröllaskagagöng
Sveitarfélagið Skagafjörður og
Akureyrar bær hafa á undanförnum
misserum lagt þunga áherslu á að
hagkvæmni og samfélagsleg áhrif
með tilkomu Tröllaskagaganga
verði könnuð til hins ýtrasta.
Sveitarfélögin sendu m.a. áskorun
til stjórnvalda í febrúar árið
2019, þess efnis að þau fjármagni
grunnrannsóknir og samanburð á
kostum á legu mögulegra jarðganga
undir Tröllaskaga, auk rannsókna á
samfélagslegum og efnahagslegum
áhrifum slíkra ganga.
Stækkar vinnusóknarsvæði
Fyrirfram er ljóst að með til-
komu Tröllaskagaganga myndi
vinnusóknar svæði á Mið-Norður -
landi stækka verulega og þjóðhags-
leg og samfélagsleg áhrif yrðu
mikil. Samgöngubót sem þessi
myndi styrkja Mið-Norðurland
verulega sem raunverulegan valkost
við höfuðborgarsvæðið og styrkja
svæðið á margháttaða vegu. Þá eru
ótalin öryggissjónarmiðin en þau
hafa endurspeglast vel í vetur í þeirri
tíðu lokun vega sem verið hefur á
Mið-Norðurlandi.
Vegir um Öxnadalsheiði, Vatns-
skarð, Þverárfjall og Siglu fjarðar-
vegur hafa verið lokaðir óvenju
oft, á milli 20 og 30 sinnum sumir
hverjir. Vegirnir eru í mismunandi
þjónustuflokkum hjá Vegagerðinni
og skýrir það mun á fjölda lokunar-
daga.
Styrkir samfélögin á svæðinu
„Með tilkomu Tröllaskagaganga
yrði því unnt að tryggja mun betur
samgöngur á milli stærstu þéttbýl-
isstaða á Mið-Norðurlandi, auka
öryggi vegfarenda, bæta öryggi
þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjón-
ustu að halda, styrkja samfélögin á
svæðinu, stækka vinnusóknarsvæði,
efla ferðaþjónustu og svona mætti
lengi halda áfram,“ segir í um-
sögn Byggða rráðs Sveitarfélagsins
Skaga fjarðar um hugsanleg Trölla-
skaga göng. Öll teikn séu á lofti
um að þjóð hagslega hagkvæmustu
samgöngu bót sé að ræða sem hægt
sé að ráðast í á landsbyggðinni og
því afar brýnt að nú þegar verði hafin
vinna við rannsóknir, frumhönnun
og útreikninga á hagkvæmni á gerð
jarðganga á Tröllaskaga. /MÞÞ/HKr
Lengstu veggöng í heimi eru Lærdalsgöngin í Noregi. Þau eru 24,5 km að lengd, einföld tvíbreið göng án nokkurra
öryggisganga eða flóttaleiða. Talað er um að svo löng einföld göng yrði aldrei heimiluð aftur af öryggisástæðum.
Tröllaskagagöng sem nú er rætt um yrðu allt að 20 km löng og líklega yrði þar gerð krafa um tvenn göng hlið við hlið.