Bændablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 33
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kannaðu málið á
akur.is
og pantaðu frían
húsabækling
Margar stærðir
og gerðir frá
93 - 227m2
„Grænir sprotar og nýsköpun“
FAGRÁÐSTEFNA SKÓGRÆKTAR 2020
HÓTEL GEYSI HAUKADAL 18.-19. MARS
skogur.is/fagradstefna2020
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Grænir sprotar og nýsköpun_bbl.pdf 1 26.2.2020 09:57:04
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson. Mynd / Sigurborg Jóhannsdóttir
Tveggja vikna leiðangur Hafrannsóknastofnunar:
Ástand sjávar vaktað
Bjarni Sæmundsson, rannsókna
skip Hafrannsókna stofnunar,
lauk nýverið tveggja vikna
rannsóknaleiðangri kringum
landið. Leiðangurinn er hluti
af vöktunarverkefninu Ástand
sjávar.
Í leiðangrinum var mældur
hiti og selta á föstum sniðum
út frá landinu, en auk þess voru
tekin sýni á völdum stöðvum
til greiningar á næringarefnum,
súrefni og koldíoxíði. Ekki tókst
að mæla á öllum stöðvum vegna
veðurs, sem var óvenju leiðinlegt
þetta árið.
Þá var einnig sinnt nokkrum
smærri verkefnum, meðal annars
var lagt straummælabaujum í
Patreksfirði og í Reyðarfirði og
ásamt fleiri athugunum, sem
er hluti af gagnaöflun vegna
sjókvíaeldis. Slíkar athuganir
voru einnig gerðar í Eyjafirði.
Safnað var sýnum fyrir
Geislavarnir ríkisins vegna
vöktunar á magni geislavirkra efna
í sjó. Þá voru sett út hlustunardufl
fyrir Háskóla Íslands, til að
fylgjast með hvalaferðum djúpt
út af Austurlandi og rekdufl, sem
mæla umhverfisþætti og voru þau
sett í sjóinn á fjórum stöðvum
umhverfis landið fyrir erlenda
samstarfsaðila.
Greiningu gagna úr
leiðangrinum er ekki lokið, en
niðurstöðurnar munu birtast á
„Vefur um sjórannsóknir“, á
heimasíðu stofnunarinnar og í
skýrslu, „Ástand sjávar“, sem
gefin er út reglulega. /VH
Tölvugerð eftirmynd af því hvernig talið er að Proterocladus antiquus hafi
litið út í grunnum sjó fyrir hundruð milljónum ára.
Mynd / Dinghua Yang/Virginia Tech/PA.
Undur náttúrunnar:
Gamall grænþörungur
Talið er að steingervingur sem
fannst í norðanverðu Kína geti
verið af elstu grænu plöntu sem
vitað er um. Steingervingurinn
er af grænþörungi sem kallast
Proterocladus antiquus og er
talinn vera eins milljarða ára
gamall.
Tegundin, sem í eina tíð er sögð
hafa þakið grunnan hafsbotn á stórum
svæðum, er sögð hafa verið svipuð
og meðal hrísgrjón að lengd en
steingervingasýnið er ekki nema um
tveir millimetrar. Þrátt fyrir að þessi
tegund hafi verið smá er sagt að magn
hennar hafi verið svo mikið að hún
hafi breytt þróun lífsins á jörðinni.
Raunar er Proterocladus antiquus
fremur stór af grænþörungi að vera
og líklega var þörungurinn með stærri
lífverum á sínum tíma. Plantan sem
ljóstillífaði í hafinu og þróaðist síðar í
plöntur á landi er forveri allra plantna
í heiminum í dag. /VH