Bændablaðið - 05.03.2020, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202034
UTAN ÚR HEIMI
Breski ráðherrann Georg Eustice,
sem fer með umhverfismál í rík-
isstjórn Boris Johnsons, tekur
undir orð forvera síns, Theresu
Villiers, um að ekki verði flutt inn
kjúklingakjöt frá Bandaríkjunum
sem þvegið hefur verið upp úr klór.
Breska blaðið Daily Mirror segir að
Bandaríkjamenn hafi verið æfir út
af afstöðu Villiers.
Í röksemdafærslu Theresu Villiers
sem umhverfisráðherra var vísað í
gildandi lög Evrópusambandsins,
sem Bretar eru reyndar að yfirgefa.
Georg Eustice staðfestir að þetta sé
rétt og að bann sé lagt við innflutningi
og sölu á bæði klórþvegnu kjúkl inga
kjöti og kjöti af nautgripum sem hafi
verið meðhöndlað með hormónagjöf
um. Segir hann að Bandaríkjamenn
þurfi ekki að vera æfir út af þessu,
því það séu í raun fáir kjúklingafram
leiðendur þar í landi sem skoli kjötið
upp úr klór. Fleiri noti mjólkursýru
eða „Lactic acid“ [alphahydroxy
acid – AHA]. Er mjólkursýran sögð
víða notuð til að koma í veg fyrir
sýkingar í meðferð á lífrænum vörum
og í lífefnaiðnaði. Segir Eustice í raun
óþarft að ræða þetta, því mjólkur
sýra sé líka notuð í Bretlandi, meðal
annars við meðhöndlun á nautakjöti,
þó hún sé ekki notuð þar í meðhöndl
un á alifuglakjöti. Segir hann að þetta
sé einfaldlega mál sem þurfi að ræða
aðeins betur.
Klór drepur ekki alltaf
allar bakteríur
Georg Eustice hefur hins vegar
ekki gefið út hvort heimilað verði
að flytja inn klórþvegið kjöt frá
Bandaríkjunum eftir að útganga
Breta úr ESB hefur að fullu tekið
gildi. Bretar framleiða um 60% af
því kjúklingakjöti sem þeir þurfa, en
flytja líka inn um 900.000 tonn á ári.
Sumir sérfræðingar segja reyndar að
þótt kjötið sé þvegið upp úr klór sé
alls ekki víst að það dugi til að koma
í veg fyrir allar sýkingar eins og af
völdum salmonellu.
Allt snýst þetta um að svara
kröfum markaðarins um meira og
ódýrara kjöt. Tilgangurinn með að
dýfa kjúklingunum í klór er sagð
ur vera til að drepa utanáliggjandi
bakteríur eins og saurgerla (Ecoli),
salmonellu og kamfílóbakter. Klórinn
drepur hins vegar ekki endilega allar
bakteríur í kjötinu sjálfu.
Í rannsókn sem gerð var 2014 kom
í ljós að 34.000 matareitrunartilvik
af völdum salmonellu koma upp
í Bretlandi á ári. Það þýðir að
55 af hverjum 100.000 Bretum
fengu salmonellusýkingar. Önnur
rannsókn sem Mirror vísar til var
gerð í Bandaríkjunum 2011. Þar voru
smittilfellin 350 af hverjum 100.000
íbúum, eða rétt yfir milljón manns
á ári.
The Daily Mirror var með úttekt á
málinu 23. febrúar þar sem fjallað er
um alifuglarækt í Bandaríkjunum. Þar
vísar blaðið til þeirrar þagnar sem ríkt
hafi um ágreining út af innflutningi
á klórþvegnu kjúklingakjöti frá
Bandaríkjunum. Segir þar einnig að
í bandarískum kjúklingaeldisbúum
lifi kjúklingarnir við mjög slæmar
aðstæður í yfirfullum húsunum áður
en þeim sé slátrað.
Grimmúðlegar aðfarir
með genabreytta fugla
Þar segir að kjúklingunum hafi verið
genabreytt í þeim tilgangi að hraða
vexti þeirra. Byrjað hafi verið að
genabreyta alifuglum árið 1948 til
að auka vaxtarhraða þeirra. Út úr
þessu kom erfðabætt blanda tegundar
sem nefnd er Arbor Acre og verður
fjórfalt þyngri en upprunalegir fuglar.
Sú genabreyting komi nú niður á
heilsufari fuglanna. Er vísað í einn
gagnrýnanda sem segir að slíkar
aðferðir séu grimmúðlegar.
Ófagrar lýsingar
Lýsingar greinarhöfundarins
Christo phere Buctin í Daily Mirror
á bandaríska kjúklingaeldinu eru
ekki fallegar.
„Í kremju í loftlausum húsum og
nánast án nokkurs rýmis og þaktir
sárum, vaxa þessir fuglar upp á
ömurlegum sjö vikum á þessari
jörð í þögulum hryllingi. Eina lausn
þeirra er þegar þeir eru skornir á háls
í sláturhúsinu áður en vél plokkar af
þeim fiðrið og þeir eru þvegnir upp
úr klór.
Ég hélt á einum kjúklingi sem var
tæplega átta vikna gamall í hendi mér
og hjartað hamaðist í bringu hans.
Mér er sagt að þökk sé erfðatækninni,
þá vaxi þeir mun hraðar en ella. Ef
þetta væri maður þá vigtaði hann 47
stones (eða 296 kg).“
Klórþvegið kjöt bannað
í Evrópu í 23 ár
Greinarhöfundur bendir á að
klórþvegið kjúklingakjöt hafi verið
bannað á markaði í Evrópu í 23
ár þar sem þvottur á kjöti upp úr
klór sé talinn leiða til kæruleysis
og lélegs hreinlætis í framleiðslu á
kjúklingakjöti.
„Eftir Brexit heimta bandarískir
kjúklingaframleiðendur að við
tökum upp þeirra reglur um lélegri
dýravelferð,“ segir Buctin.
Bændur hræddir við
stóru matvælakeðjurnar
Buctin fór fyrir Mirror í heimsókn til
kjúklingabónda sem er mjög stór
framleiðandi í Bandaríkjunum og er
með rekstur í Gainsville í Georgíu
ríki. Þessi staður er einmitt kallaður
höfuðstaður kjúklingaræktarinnar í
heiminum. Ætlunin var að blaða
maður sæi með eigin augum hvernig
aðbúnaðurinn væri. Lýsingarnar eru
síst smekklegri en þær fyrri. Hann
segir að bændurnir á svæðinu hafi
ekki viljað úttala sig um reksturinn
af ótta við kjötframleiðslufyrirtækin
sem þeir vinna fyrir. Einn sem ekki
vildi láta nafns síns getið sagði þó
að allur þessi iðnaður væri rekinn
af stórfyrirtækjum líkt og eiturlyfja
bransinn. Ef menn brytu reglur og
þagnarskyldu væru menn sama sem
dauðir í þeirra augum. Hins vegar
sæju framleiðendurnir um allan
pakkann. Þeir útveguðu ungana,
fóðrið, sýklalyfin og allt sem til þarf.
Eins og að eiga við mafíuna
„Við bændurnir erum bara eins og
leiguliðar sem leigjum okkar hús í
sjö vikur í senn. Eitt rangt skref og
þú ert út úr myndinni. Þetta er eins
og að eiga við mafíuna. Á vefsíðum
þeirra segir kannski að þeim þyki
annt um dýravelferð, en þeirra einu
raunverulegu áhyggjur snúast um
gróðann.“
Þessi bóndi benti hins vegar á
að bændunum væri ætlað
að ala kjúklinga. Ef
þeir ættu að vera með
þúsundir lausagöngu
fugla vappandi frjálsa
um landið væri ekki
mögulegt að uppfylla
þarfir markaðarins. Sagði
hann þessa aðferð því vera
næstbestu lausnina.
Mirror bendir á að þeir
sem sjái um kjúklingaeldið
séu að 58% hluta ólöglegir
innflytjendur sem verði bara
að gera það sem þeim er
sagt. Árið 2015 hafi Oxfam
samtökin upplýst að mörgum
þessara landbúnaðarverkamanna
hafi meira að segja verið meinað
að fara á klósett og því neyðst til
að nota bleiur.
Endalausar raðir af
lágreistum kjúklingahúsum
Þarna er ekið um endalausar raðir af
lágbyggðum kjúklingaeldishúsum
sem hvert um sig er um 227 metrar
að lengd (250 yards).
„Yfirþyrmandi lykt af hænsnaskít
og ammoníaki steig upp af tveggja
tommu þykku skítalagi. Lyktin var
svo megn að ég varð að halda fyrir
nef og munn.
Það hljóta að hafa verið yfir 30
þúsund kjúklingar sitjandi á gólfinu
fyrir framan mig, en það var samt
dauðaþögn í húsinu. Fuglarnir
hvorki hreyfðu sig né gögguðu. Allir
aðrir en um þúsund fuglar sem voru
í kringum kornfóðrarana, voru eins
og myndastyttur og voru þarna í nær
algjöru myrkri. Þegar ég tók upp
einn kjúklinginn var mér brugðið að
sjá uppblásinn maga hans. Líkt og
allir hinir fuglarnir hafði hann misst
fjaðrirnar svo það sást í bert holdið.“
Óeðlilega hraður vöxtur
skapar margvísleg vandamál
Buctin segir að vegna þess hversu
óeðlilega hratt fuglarnir vaxi, þá
lifi margir þeirra ekki af að ná
sláturstærð. Ástæðan er hjartaáfall
og samfallin lungu. Hann segir að í
ritinu Poultry Science Journal hafi
það verið reiknað út að ef maður yxi
með sama hraða og þessir nútíma
kjúklingar, þá næði maðurinn 296
kílóa þyngd á átta vikum. Þá ylli
sú eitraða blanda af köfnunarefni
og vetni sem myndast í eldinu því
að fuglarnir geti líka orðið blindir.
Dr. Sara Shields hjá Huan
Society International segir að
neytendur eigi rétt á að fá að vita
um hvað sé á bak við mögulegan
innflutning á kjúklingakjöti frá
Bandaríkjunum. Kjúklingarnir
séu aldir upp í miklum þrengslum
í dimmum húsum þar sem hver
fugl hafi til umráða pláss sem er á
stærð við eitt A4 blað. Þetta skapi
mikla mengun og húðvandamál hjá
fuglum sem veltast um í blautum
skítnum.
Daily Mirror hafði samband við
fjölda framleiðenda sem nota klór
við sína framleiðslu. Aðeins einn
svaraði fyrirspurn blaðsins og sagði
að ef ekki væri notaður klór yrðu
350 milljónir Bandaríkjanna veikir
í hverri einustu viku. /HKr.
The Daily Mirror segir Bandaríkjamenn æfa út af tregðu Breta í viðskiptum með kjöt:
Breskir ráðherrar segjast ekki heimila
innflutning á klórþvegnu kjúklingakjöti
– Bandaríkjamenn segja klórþvott á erfðabreyttum hraðvaxtakjúklingum nauðsynlegan til að koma í veg fyrir sýkingar
Tandurhreinir klórþvegnir bandarískir kjúklingar.
Klórþvottur á kjúklingum.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300
Styrkir til þróunarverkefna
í garðyrkju, nautgriparækt
og sauðfjárrækt
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um styrki
til rannsókna- og þróunar verkefna í garðyrkju, nautgriparækt
og sauðfjárrækt samkvæmt reglugerð um almennan stuðning
við landbúnað nr. 1260/2018.
Í garðyrkju eru styrkhæf ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni,
rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunar verkefni og
endurmenntunarverkefni.
Í nautgriparækt eru verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska
nautgriparækt og fela í sér rannsóknir- og þróunarverkefni.
Í sauðfjárrækt eru verkefni styrkhæf sem talin eru styrkja íslenska
sauðfjárrækt og falla undir það að vera kennsla, rannsóknir,
leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á
www.fl.is/throunarfe, eingöngu er tekið við umsóknum á
eyðublöðunum sem þar er að finna. Umsóknum skal skilað á
rafrænu formi á netfangið fl@fl.is og með hefðbundnum pósti
til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri 311 Borgarnes.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl n.k.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins; sigridur@fl.is.