Bændablaðið - 05.03.2020, Síða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202038
MENNING&SAGA
landgræðsluflug
Nú er unnið að því að rita
sögu landgræðsluflugsins með
minni flugvélunum. Verkið
er unnið í samstarfi við Land
græðsluna en það eru undir
ritaður, Sveinn Runólfsson,
fyrr verandi landgræðslustjóri,
og Páll Halldórsson, flugstjóri
Landhelgis gæslunnar og flug
maður í landgræðsluflugi í 14
sumur, sem vinna verkið.
Nú biðjum við lesendur Bænda
blaðsins að líta í gömul albúm og
kanna hvort þeir finni ekki myndir
af flugvélunum frá þessum tíma.
Auk þess væri afar dýrmætt ef fólk,
sem man þessa tíma og kann sögur
frá því er þessar litlu vélar hófu sig
á loft og dreifðu áburði yfir landið.
Sagan sem verið er að rita tekur yfir
árin 1958–1992.
Það kom strax í ljós þegar farið
var að nota landgræðsluflugvélarn
ar sumarið 1958 að afköst við upp
græðslustarfið jukust til muna. Þá
varð unnt að sá grasfræi og bera til
búinn áburð á miklu erfiðari svæði
til yfirferðar, sem voru á þeim tíma
ófær fyrir litlar dráttarvélar og
áburðardreifara á hjólum.
Talið var að flugvélarn
ar væri mun hagkvæmari
kostur til að dreifa áburði
og grasfræi en þeirra tíma
dráttarvélar, vegna mun
meiri afkasta.
Þegar flugvélarnar
stækkuðu og burðargeta
þeirra jókst urðu þær
langódýrasti dreifingar
mátinn vegna mikilla af kasta
og tiltölulega lítils rekstrar
kostnaðar. Gæði dreif ingar áburðar
og grasfræs með flugvélunum voru
mjög jöfn og góð.
Unga kynslóðin sem nú tekur við
landinu og gæðum þess getur ekki
gert sér í hugarlund hversu ömurleg
ásýnd landsins var á þessum tíma.
Trúir varla sögnum um þegar sáð
menn sandanna unnu myrkranna
á milli við að hlaða grjótgarða og
setja upp girðingar, bryðjandi sand
alla daga og rata ekki á milli bæja
fyrir moldrokinu. Á þessum árum
var nánast aldrei hægt að hengja
upp þvott utan dyra í Gunnarsholti
vegna moldroksins svo dæmi sé
nefnt.
Við þurfum að varðveita þessa
sögu og því er verið að rita hana.
Ef við fáum fólk í lið með okkur
er víst að sagan, sem við Páll erum
að skrifa, verður mun betri. Áttu
til gamalt albúm með myndum
sem gætu komið okkur að notum?
Kanntu sögur frá þessum tíma?
Getur þú bent okkur á eitthvað
sem gerir söguna réttari og betri?
Hafðu samband. Ég er með síma
893 0830 og netfang .sveinnrun@
gmail.com. Ef þú vilt senda okkur
eitthvað í tengslum við flugið þá
er póstfangið: Sveinn Runólfsson,
Tröllhólum 39, 800 Selfoss.
Sveinn Runólfsson,
fyrrverandi landgræðslustjóri.
Fyrsta landgræðsluflugið þann 14. júní 1958. Flugmaður Karl Eiríksson. Mynd / Magnús Sigurlásson
Páll Halldórsson við stýrið á Piper Super Cub og Sveinn Runólfsson á
dráttarvélinni. Mynd / Úr myndasafni Páls Halldórssonar
Ófært vegna moldroks. Air Tractor flugvélin TF-TUN. Mynd / Úr myndasafni Landgræðslunnar
Áburði og grasfræi hlaðið í P
iper Brave flugvélina TF-TUN
.
Mynd / Úr myndasafni Landgræðslun
nar
Páll Halldórsson í aðflugi að Kiðafelli í Kjós. Mynd / Árni Guðmundsson