Bændablaðið - 05.03.2020, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202042
Reglulega kemur upp sú undar
lega umræða um að kúamjólk sé
ekki holl og góð næring fyrir fólk
á öllum aldri. Það er auðvitað ekki
rétt og sem betur fer njóta fleiri og
fleiri íbúar heimsins þeirra mik
ilvægu forréttinda að geta neytt
mjólkurafurða, með öllum þeim
kostum sem slíkri neyslu fylgir og
þeim mikilvægu næringarefnum
sem neyslan ber með sér.
Þrátt fyrir að mjólk og mjólkur
vörur hafi verið mikilvægur næring
arefnagrunnur mannkyns í þúsund
ir ára, og er í raun samofin þróun
mannkyns, þá er það því miður svo
að ákveðinn hópur fólks í heiminum
getur af einhverjum ástæðum ekki
notið mjólkurafurða t.d. vegna óþols
eða ofnæmis. Tækninni og þekk
ingunni fleygir hins vegar fram og
eftir því sem bætist í þekkingarbrunn
þeirra sérfræðinga sem vinna við
úrvinnslu matvæla aukast möguleik
ar þeirra sem eru með ofnæmi eða
óþol á því að geta líka notið þessara
mikilvægu matvæla.
Einn af hverjum átta
Þó svo að hlutfall kúabænda og
þeirra góðu starfsmanna sem
vinna við afurðastöðvar hér á landi
skipti ekki tugum þúsunda, þá er
mjólkurframleiðsla og vinnsla ein
stærsta ef ekki stærsta atvinnugrein
heimsins. Samkvæmt áætlun frá
IDF, sem eru alþjóðasamtök um
mjólkurframleiðslu og vinnslu, þá
hafa um 1 milljarður íbúa heimsins
lífsviðurværi sitt af annaðhvort
mjólkurframleiðslu, vinnslu eða
sölu.
Talið er að íbúar heimsins séu
nú um 7,7 milljarðar og þannig er
þessi eina atvinnugrein með um 13%
vægi á heimsvísu. Fáar ef nokkrar
aðrar atvinnugreinar í heiminum eru
jafn umsvifamiklar og mikilvægar
fyrir afkomu og næringu fólks.
Greinin hefur þó átt undir högg að
sækja á heimsvísu að undanförnu og
skýrist það af bæði veðurfarslegum
áhrifum í einstökum heimshlutum
en einnig vegna neikvæðrar umræðu
um sótspor greinarinnar. Því hefur
nú þegar verið brugðist við og er
staðan í dag gjörbreytt frá því sem
áður var og í framtíðinni verður þessi
mikilvæga atvinnugrein að fullu
án sótspors. Þá hefur umræða um
dýraafurðalaust fæði, sem reyndar er
mest bundin við íbúa í hinum ríkari
löndum heimsins, haft einhver áhrif
en þó óveruleg.
Fjölbreytt og staðgóð næring
nauðsyn
Í síðustu viku kom út skýrsla á
vegum FAO, Matvæla og land
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, en hún fjallar um með
hvaða hætti neysla mjólkurafurða
hefur gjörbreytt næringarástandi
íbúa heimsins og hvernig neysla
mjólkurafurða getur hjálpað við að
draga úr vannæringu og hungri á
heimsvísu (Dairy’s impact on red
ucing global hunger, FAO 2020).
Í skýrslunni kemur m.a. fram að
hungur eða vannæring meðal íbúa
heimsins er eitt af allra stærstu og
umfangsmestu vandamálum heims
byggðarinnar í dag. Vannæring
orsakast ekki aðeins af ónógri fæðu
heldur skapast ástandið fyrir tilstilli
margra samverkandi þátta og má
m.a. rekja til neyslu á röngu fæði.
Vannæring er oft nefnd „hið
ósýnilega neyðarástand“ þar sem
skaðleg áhrif hennar eru oft aðeins
toppurinn af ísjakanum og á mörg
um svæðum er vannæring viðvar
andi ástand og verða börn fyrir
skaðlegum áhrifum hennar strax
í móðurkviði.
Skortur á fjölbreyttri og stað
góðri næringu heldur svo áfram
að gera þessum börnum erfitt um
vik, gerir þau móttækilegri fyrir
sjúkdómum og heftir líkamlegan
og andlegan þroska þeirra.
Meira en 800 milljónir svelta
Talið er að árið 2017 hafi því
miður 821 milljón manns búið við
hungur. Þetta svarar til þess að einn
af hverjum níu íbúum heimsins hafi
búið við hungur! Það sem verra
er, er að þessi hópur hefur farið
stækkandi og er talið að fjöldi
hungraðra í heiminum hafi aukist
um 40 milljónir frá árinu 2014.
Þegar talað er um hungur í þessu
samhengi er rétt að taka fram að
skilgreiningin á því er að fólk búi
við fæðuskort og vannæringu auk
þess að vanta upp á nauðsynlegan
daglegan skammt af vítamínum og
steinefnum.
Meirihluti þessa fólks, sem býr
við hungur, býr í löndum þar sem
tekjur eru lágar eða í meðallagi.
Þá er það sameiginlegt að oftast
býr þetta fólk í dreifbýli og hefur
lífsviðurværi sitt af landbúnaði.
Samhengi hlutanna
Fyrri skýrslur frá FAO hafa
bent á skýrt samhengi á milli
neyslu dýraafurða og bættrar nær
ingarefnastöðu barna í dreifbýli
hinna fátækari landa en í þessari
nýju skýrslu er einungis horft til
áhrifa mjólkurvöruneyslu. Skýrslan
byggir á yfirlitssamantekt höfunda
á fjölda rannsókna á áhrifum neyslu
mjólkur og mjólkurafurða á vöxt og
þroska fólks og kemur svo sem ekki
á óvart að skýrt samhengi er þarna á
milli og þá sérstaklega meðal barna.
Börn sem eru vannærð vaxa
minna og þroskast hægar en
vel nærð börn og er munurinn
óafturkræfur. Þá hefur vannæring
barna einnig áhrif á þroska
heilabúsins og eykur líkur á
langvinnum sjúkdómum síðar á
ævinni. Ótal aðrar rannsóknir hafa
svo sýnt fram á jákvætt samhengi á
milli mjólkurvöruneyslu og ýmissa
jákvæðra áhrifa á líkamann eins og
á heilavirkni svo dæmi sé tekið.
Jákvæð áhrif mjólkurneyslu
Í skýrslunni kemur fram að í 16 af
17 rannsóknum, þar sem skoðað
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Framleiðsla líf rænt
ræktaðra mat væla hefur
farið mjög vaxandi á
undan förnum árum í
nágranna löndum okkar.
He i ldar f ram le iðs la
lífrænt vott aðra matvæla
í Dan mörku telur nú
rúm 11% af heildar
framleiðslu þeirra sem
er heimsmet.
Svipaða sögu er að
segja af aukinni framleiðslu líf
rænna landbúnaðarafurða í flest
um Evrópulöndum. Hér eigum
við langt í land með að komast
nærri þeirri tölu, allt of fáir fram
leiðendur sinna þessari hlið mat
vælaframleiðslu og er garðyrkjan
þar engin undan tekning. Mikið er
flutt inn af lífrænu grænmeti og
ávöxtum sem hægt væri að fram
leiða hér á landi því markaður
inn fer ört vaxandi með aukinni
umhverfisvitund neytenda.
Heilnæmar afurðir og virðing
fyrir umhverfinu
Lífrænt ræktaðar matjurtir eru
ekki aðeins framleiddar til að
gefa neytendum kost á heilnæmu
grænmeti án notkunar á tilbúnum
áburði, kemískum varnarefnum
og erfðatækni. Vakin hefur
verið athygli á því að lífrænar
ræktunaraðferðir stuðla að bættu
umhverfi á svo margvíslegan
hátt, til dæmis með nýtingu á
lífrænu hráefni sem næringargjafa
og aukinni kolefnisbindingu
með heilbrigðri jarvegsrækt.
Virðing fyrir náttúrulegum
ferlum og verndun líffræðilegrar
fjölbreytni eru atriði sem lífrænar
ræktunaraðferðir taka mið af og
skiptir meðvitaða neytendur sífellt
meira máli.
Garðyrkjuskólinn býður
upp á nám í lífrænni
matjurtaframleiðslu
Á starfsstöð Landbúnaðar
háskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi
er starfrækt sérstök námsbraut um
lífræna matjurtaræktun svo fjölga
megi menntuðum garð
yrkjufræðingum í þeirri
grein. Fjöl breytni einkenn
ir skólastarfið. Kenndir
eru grunnáfangar eins og
grasafræði og plöntu líf
eðlis fræði en einnig lífræn
ar ræktunar aðferðir í gróð
urhúsum og garðlöndum.
Lögð er sérstök áhersla á
umhverfis og samfélags
lega ábyrgð fram leiðenda,
jafnt gagnvart neyt endum
og náttúru. Nemendur fá
fræðslu um umhverfismál,
grundvallaratriði vistfræði
og sjálfbærni. Kennd er býflugna
rækt til hunangsframleiðslu,
gæðamál, dreifing og úrvinnsla
afurða. Kennslan er að hluta til
verkleg og er í boði bæði í staðar
námi og fjarámi.
Hægt er að fá frekari upplýs
ingar og sækja um nám á lífrænu
brautinni á Garðyrkjuskólanum
næsta vetur á heimasíðu Land
búnaðar háskóla Íslands: lbhi.is.
Ingólfur Guðnason,
námsbrautarstjóri
garðyrkjuframleiðslu á
Reykjum.
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Landbúnaðarháskóli Íslands á Reykjum í Ölfusi:
Námsbraut um lífræna ræktun
matjurta á Reykjum
Grænkál og grænir tómatar.
Mjólk er góð bæði
fyrir kálfa og fólk!Kirsiber.
Lífrænt ræktaðar gulrætur.
Í rannsóknum þar sem kafað var nánar ofan í næringarefnin kom í ljós að sterkt samhengi var á milli neyslu
mjólkurpróteins og líkamshæðar og -þyngdar. Þá kemur einnig fram í skýrslunni að vanþroski barna er mun
algengari, ef þau fá fyrst og fremst næringu sem eingöngu byggir á afurðum úr plönturíkinu.