Bændablaðið - 05.03.2020, Qupperneq 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202044
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Prófun á „SmartCalfCare“ kálfa-kúa-stíu lofar góðu
– Unnið úr grein Rasmus Lang-Ree úr fyrsta tölublaði Buskap 2020
„SmartCalfCare“ (hér eftir
skamm stafað SCC) er hugmynd
sem þótti best í uppfinningakeppni
landbún aðarins í Noregi 2019.
Þetta er fyrirkomulag þar sem
mjólkur kýr sem mjólkuð er í
mjalta þjóni og kálfur hennar geta
átt samneyti.
Við stíuna eru nemastýrð
að gangs hlið, annað sem hleypir
kúnni inn og hitt sem hleypir henni
út. Í stíunni er svæði þar sem kýr
og kálfur geta átt samneyti og enn
innar í stíunni er kálfasvæði sem er
lokað fyrir kýrnar. Þar er legusvæði,
mjólkurfóstra og kjarnfóðurbásar
fyrir kálfa. SCC stía í prófun er 14x5
m að stærð.
Hugmyndin er lausn sem leit
ar við að auðvelda þörf fyrir
samneyti kýrinnar og kálfsins
innan ramma nútíma mjólkur
framleiðslufyrirkomulags. SCC er
samvinnuverkefni í Noregi milli
Mjólkursamlagsins Tine, Norska
Dýralæknasambandsins, FK Agri,
Sambands lífrænnar framleiðslu
Norsøk, Rannsóknarbús NMBU í
Ås, Maurstad Holding og DeLaval.
Það er of snemmt að álykta en
hingað til hafa prófanir á SCC virkað
í nútímafjósum með mjaltaþjóni.
Prófun fer fram á rann
sókn ar búi NMBU (norski
landbúnaðarháskólinn) við Ås í
Noregi þar sem Julie Føske Johnsen
fer fyrir rannsókninni. Julie segir í
norska landbúnaðarblaðinu Buskap
frá fyrstu athugunum sem fer þar
fram með 34 pör.
Fyrirkomulagið er að kýr og kálf
ur ganga saman í stíu fyrstu þrjá dag
ana eftir burð áður en prófun hefst.
Kálfarnir þurfa að vera tiltölulega
jafngamlir (10 daga mismunur)
og planið er að mæðgin séu í SCC
stíu í fjórar til sex vikur eftir burð.
Hugsunin er að vambarstarfsemi
kálfsins væri komin vel í gang áður
en hann er skilinn frá móður.
Ekkert fyrir kúna í SCC stíunni
Rannsóknin er sett upp þannig að
kýrnar hafi ekkert í SCC stíuna að
sækja nema fyrir samneyti. Kýr hefur
hvorki aðgang að fóðri eða vatni
heldur nýtir kýrin stíuna eingöngu
vegna móðureðlisins, að gá að kálfi
sínum. Prófunin hefur sýnt að kýr
geta komið í heimsókn allt að tíu
sinnum á sólarhring. Mest er að gera
í SCC stíunni á morgnana en þá voru
að jafnaði flestar mæður á sama tíma
inni í stíunni. Samneyti kúnna og
kálfanna er í formi þess að kýrnar
standa og sleikja kálfinn meðan
hann sýgur hana. Ekki er komið
bráðabirgðamat á mjólkurupptöku
kálfanna en vaxtarhraði þeirra er um
1400 grömm á sólarhring.
Málamiðlanir
Þó að SCC prófunin nái að fullnægja
náttúrulegri hegðun um samneyti
kýrinnar og kálfsins er nauðsynlegt
að vera með málamiðlanir þess
efnis. Kýr og kálfur fá ekki tækifæri
til að hvílast saman, sem er þeirra
eðli. Sýnir það sig best í því að
þeir legubásar fyrir kýrnar sem eru
næst legusvæði kálfa eru vinsælastir
meðal mæðranna. Kýr og kálfur fá
heldur ekki að éta saman líkt og þau
myndu gera á beit.
Þrepaskipt aðskiljun
Með nemastýrðu hliði inn í SCC
stíuna er auðveldlega hægt að stýra
aðgang móður að kálfi. Það að venja
undan er framkvæmt þannig að í
fyrstu er kúnum neitað um aðgang
á nóttunni (frá kl. 21 til kl. 06) í
tvo sólarhringa. Í tvo sólarhringa
þar á eftir fá kýr og kálfur bara
að vera saman á morgnana og á
kvöldin. Tvo næstu sólarhringa fá
kýr og kálfur eingöngu að hittast
á morgnana. Að lokum er kýrinni
neitað inngang inn í stíuna en þau
geta snert hvort annað í gegnum
milligerði í þrjá sólarhringa áður
en kálfur er færður burt. Þá á eftir
að rannsaka betur aðskilnaðinn með
upptökum og atferlisrannsóknum.
Viðbótarfóður allan tímann
Kálfarnir hafa aðgang að kjarnfóðri
og mjólkurfóstru ásamt heyi og
vatni allan tímann á meðan prófun
er og er athugað sérstaklega að
kálfarnir séu byrjaðir að éta kjarn
fóður áður en aðskilnaðarferlið fer
af stað. Þar sem kálfar hafa sogið
mæður sínar er tiltölulega lítið hlut
fall af mjólk sem þeir hafa fengið
úr fóstrunni fram að aðskilnaði en
verður meiri í takt við minna sam
neyti við móður.
Samkvæmt Julie munu, í næsta
prófunarholli kúa og kálfa, kýrnar fá
að fara í mjaltaþjón áður en þær fá
aðgang að SCC stíunni til kálfanna.
Annað sem einnig verður tekið tillit
til er að venja af mjólk nokkru eftir
aðskilnað frá móður til að minnka
álag kálfa fyrir breytingum.
Fyrsta kálfs kvígur
geta verið áskorun
Ein fyrsta kálfs kvíga í prófuninni
var léleg að mæta til mjalta í mjalta
þjón og var með leka. Rannsóknir
geta því sýnt að það sé ákveðin
áskorun að vera með fyrsta kálfs
kvígur í SCC.
Rannsakendur héldu fyrirfram
að það gæti verið vandamál að
kálfarnir myndu elta mæður sínar
út úr SCC stíu. Það kom einungis
fyrir í nokkur skipti þegar kálfar
voru við leik við útgönguhlið og
kýrnar hafi þá ýtt þeim með sér út
úr stíunni.
Ekki hefur verið skoðuð árásar
girni kúa gagnvart fólki eða kálf
um. Þó hefur verið lögð til viðbót
við hönnun á SCC stíu að bæta við
mannopi. Að kálfur sjúgi aðra en
móður sína hefur ekki verið vanda
mál fram að þessu og einungis sjá
anlegt í nokkur skipti.
Leitar til sjóða til
áframhaldandi prófana
Julie leggur áherslu á að verkefnið
sé í þróunarferli og ekki hægt að
gera upp tölfræðilegar greiningar
á gögnum ennþá. Kýrnar eru með
virknimæla sem skrá m.a. jórtur
tíma og svo er einnig mikið af
gögnum úr mjaltaþjóni, kjarnfóð
urbási og mjólkurfóstru. Einnig
eru atferlisrannsóknir, myndbönd,
vigtargögn og fleira sem á eftir að
vinna með. Þá hefur verið sótt um
í sjóði með áframhaldandi prófanir
á rannsóknarbúinu á Ås ásamt hjá
nokkrum öðrum bændum.
Skrifað upp úr grein í
Buskap_1/2020, bls 30-31,
af heimasíðu buskap.no.
Innskot höfunda:
Þetta er spennandi verkefni sem
er í gangi í Noregi sem vert er
að fylgjast með. Margt í þessu
er órannsakað, eins og neikvæð
áhrif þess að takmarka vatn við
kýrnar og eins að setja þær ekki
inn í stíuna eftir mjaltir, t.d. fyrir
1. kálfs kvígur. Það eru ekki svo
langt síðan eggjaframleiðsla
breytti um framleiðsluaðferð í
framleiðslu á eggjum úr ham
ingjusömum hænum, nú í dag
þykir það sjálfsagt. Hægt er að
fylgjast með prófuninni á heima
síðu verkefnisins https://www.
smartcalfcare.com/. Áhuga
samir um prófun hérlendis eru
beðnir að hafa samband við
ráðunauta RML.
Sigtryggur V. Herbertsson
ábyrgðarmaður í bútækni
sigtryggur@rml.is
Anna Lóa Sveinsdóttir
ráðunautur, rekstrar-
og umhverfissvið
als@lbhi.is
Mynd 1: Julie Føske Johnsen við legusvæði kálfa. Heimild www.buskap.no
Mynd 2: Aðgangsstýringarhlið. Heimild: www.buskap.no
Mynd 3: Legusvæði kálfa næst legubásum kúa. Heimild: www.buskap.no
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
jardir.is