Bændablaðið - 05.03.2020, Page 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 2020 45
Sauðfjárrækt hefur um langan
tíma verið ein af burðarstoðum
íslensk landbúnaðar. Búgreinin
hefur gengið í gegnum breytingar
undanfarna áratugi. Um áraraðir
hefur íslenskt kindakjöt verið
útflutningsafurð. Afkoma af
útflutningi hefur verið sveiflu
kennd. Koma þar til ýmsar
ástæður svo sem áhrif gengis og
al mennra markaðsaðstæðna í
heim inum.
Hluti framleiðslunnar sem er
fluttur út eru vörur sem ekki eiga
sér markað hér á landi. Megin afurð
sauðfjárræktarinn er dilkakjöt en
til fellur líka kjöt af fullorðnu fé,
hliðarafurðir og síðan er innlend
eftirspurn eftir lambakjöti með þeim
hætti að hlutfallslega selst meira af
hryggjum og lærum sem býr til þörf
til útflutnings á þeim vörum sem
ekki er markaður fyrir hér á landi.
Haustið 2016 lækkaði afurðaverð
á lambakjöti um 9,1% og öðru
kindakjöti um 33,4%. Árið eftir
lækkað afurðaverðið aftur um 30%
og verð á öðru kindakjöti stóð í
stað. Hrun í afkomu á erlendum
mörkuðum fyrir kindakjöt og
hliðarafurðir þeirra samhliða
óhagstæðri gengisþróun var megin
ástæðan fyrir þessari þróun. Síðan þá
beittu Landssamtök sauðfjárbænda
sér fyrir aðgerðum sem myndu
leiða okkur sem fyrst út úr þessari
stöðu. Einkum var horft til aðgerða
sem myndu draga úr framleiðslu
og jafnframt taka á vandamálum í
birgðasöfnun. Ríkisstjórnin kom
til móts við hluta kjaraskerðingar
bænda í upphafi árs 2018 og farið var
í sérstök átaksverkefni í útflutningi
2016-2017 og 2017-2018. Eiginlegar
aðgerðir vegna stöðunnar komu ekki
til framkvæmda fyrr en endurskoðun
sauðfjársamnings lauk í janúar
2019. Inn í þann samning sóttust
sauðfjárbændur eftir verkfærum
sem gætu til framtíðar hjálpað
til við að takast á við ófyrirséða
markaðsbresti. Fullyrða má að nær
öll landbúnaðarkerfi í heiminum eru
byggð upp með slíkum hætti.
Vetrarfóðraðar kindur árið 2016
voru um 474 þúsund. Ekki eru
komnar fram endanlega fjöldatölur
fyrir árið 2020 en gera má ráð
fyrir að að fjöldinn verði um 418
vetrarfóðraðar kindur. Sauðfé
hefur því fækkað um 11,5% á þessu
tímabili.
Framleiðsla á dilkakjöti var árið
2016 um 9.300 tonn og mun á kom-
andi haust verða um 8.100 tonn. Hér
um að ræða samdrátt upp á 1.200
tonn af dilkakjöti eða 12,8%.
Vísitala neysluverðs mælir þróun
smásöluverðs á lambakjöti. Frá upp-
hafi árs 2016 fram á haustið 2018
lækkað smásöluverð á lambakjöti
um 8% meðan almennt verðlag
hækkaði um 5%. Síðan þá hefur
smásöluverð á lambakjöti smám
saman farið hækkandi og er nú um
5% hærra en það var við upphaf árs
2018.
Afurðaverð haustið 2019, að
teknu tilliti til álagsgreiðslna, var
68% af því sem það hefði verið
ef afurðaverð hefði fylgt almennri
verðlagsþróun í landinu frá árinu
2013. Ef þessi mismunur er skoð-
aður nánar og reiknaðar út þær tekj-
ur sem íslensk sauðfjárrækt hefur
orðið af vegna hruns í afurðaverði
þá nemur það fyrir árin 2014-2019
um 7,2 milljörðum.
Framleiðslukostnaður á lamba-
kjöti er um 1.150 kr/kg (1.000-
1.300 kr/kg). Tekjur bænda koma
annars vegar frá afurðastöð og hins
vegar sem opinber stuðningur. Það
er nokkuð breytilegt hversu mikið
hver bóndi fær í opinberan stuðn-
ing en gera má ráð fyrir að stuðn-
ingurinn sé um 450 kr/kg lamba-
kjöts (350-550kr/kg). Afurðaverð til
bænda þarf því að vera um 700 kr/
kg til að standa undir framleiðslu-
kostnaði. Afurðaverð haustið 2019
var 461 kr/kg. Ef horft er til afurða-
verðs í nágrannalöndum okkar má
sjá að afurðaverð á Íslandi var með
því lægsta sem gerist í Evrópu á
sama tíma og kostnaður við fram-
leiðsluna er hærri en í flestum
þessara samanburðar landa. Afkoma
sauðfjárbænda verður að batna.
Nú hafa nokkrar afurðastöðvar
greitt uppbót á afurðaverð haustsins
2019. Það er jákvæð þróun og gefur
okkur væntingar um að afkoma
sauðfjárbænda fari batnandi.
Hins vegar eru líka blikur á lofti.
Framleiðslukostnaður afurðastöðva
fer hækkandi með vaxandi rekstrar-
og launakostnaði. Það sama gildir
um framleiðslukostnað bænda. Ekki
er ljóst hvaða áhrif innflutningur á
hráu kjöti sem hófst nú um áramótin
mun hafa á kjötmarkaði hér á landi.
Þá eru áhrif COVID-19 sjúkdóms-
ins á heimsmarkað með kjöti óviss
og jafnframt er algjörlega á huldu
hvernig viðskipti við Bretland og
Evrópusambandið muni þróast við
útgöngu Breta úr EU. Útflutningur á
kindakjöti til Bretlands er afar mik-
ilvægur þó ekki fari þangað dýrustu
hlutarnir.
Það er aðkallandi að það
fari fram umræða um framtíðar
fyrirkomulag sauðfjárslátrunar.
Sauðfjárbændur hafa bent á að koma
megi á sambærilegu fyrirkomulagi í
sauðfjárslátrun og er við söfnun og
úrvinnslu á mjólk. Í slíku kerfi er
hægt að tryggja bændum viðunandi
afkomu og jafnframt stuðla að því
að samkeppni milli kjötvinnsla sé
virk eftir að búið er að slátra og
grófvinna kjötið. Ekkert kerfi er án
galla og mikilvægt í slíku kerfi að
tryggja öllum framleiðendum jafnan
aðgang að hráefni og þannig tryggja
eðlilegt samkeppnisumhverfi á
síðari stigum. Slíkt kerfi myndi
skapa stöðugleika í afkomu bænda
og bæta hag neytenda.
Stóra verkefnið sem sauðfjár-
bændur standa frammi fyrir er
að bæta afkomu greinarinnar. Ef
afurðaverð hækkar ekki verulega í
haust mun framleiðslan dragast enn
meira saman. Á næstu vikum mun
framkvæmdastjóri og formaður
LS fara á fundi aðildarfélaganna.
Þar munum við ræða afkomu
greinarinnar og önnur verkefni sem
fram undan eru í starfi félagsins.
Verkefnin eru af ýmsum toga. Unnið
er að því að framfylgja stefnu LS í
loftslagsmálum í tengslum við verk-
efnið Loftslagsvænn landbúnaður,
sem er samstarfsverkefni RML,
Landgræðslunnar, Skógræktarinnar
og umhverfisráðuneytisins. Það
þarf líka stöðugt að vinna að því
að auka framlegð í greininni með
því að efla rannsóknir og ráðgjöf.
Á dögunum var haldin ráðstefna á
vegum Fagráðs í sauðfjárrækt til
að miðla niðurstöðum rannsókna
og skiptast á skoðunum um
áherslur og stefnur í sauðfjárrækt.
Ráðstefnuna sóttu um 60 manns
og annar eins hópur fylgdist með
streymi á netinu. Ráðstefnan
var tekin upp og verða upptökur
aðgengilegar innan skamms. Síðar
í þessum mánuði fer fram kynning
á fyrstu niðurstöðum Grólindar
verkefnisins, þar sem unnið er að
því að kortleggja ástand gróður-
og jarðvegsauðlinda landsins og
þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu
auðlindanna. Þetta er verkefni
sem sauðfjárbændur hafa tekið
þátt í að þróa og mun hjálpa okkur
að gera enn betur þegar kemur að
skipulagi beitar og landnýtingu. Við
hvetjum bændur til að fjölmenna
á aðildarfélagsfundina og láta
í ljós sína skoðun um málefni
sauðfjárræktarinnar.
Þegar velja skal vinnuvéla- og landbúnaðar-
dekk skipta gæði, ending og áreiðanleiki
höfuðmáli.
Maxam dekkin eru hagkvæmur kostur
og hafa reynst vel við krefjandi aðstæður.
Gerðu kröfur — hafðu samband við sölumenn
okkar í síma 590 5280 og kynntu þér kosti
Maxam dekkjanna.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Hagkvæm
dekk fyrir
alvöru kröfur
Unnsteinn Snorri Snorrason
framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda
unnsteinn@bondi.is
Afkoma sauðfjárbænda verður að batna
Guðfinna Harpa Árnadóttir
Formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda
gudfinna@bondi.is