Bændablaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. mars 202048
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Á Gamla Hrauni 2 hefur verið búið
nánast óslitið síðan við landnám.
Hjónin Jón Ingi Jónsson og Jóhanna
Sveinsdóttir keyptu jörðina árið
2009 sem hafði þá verið í eyði
í nokkur ár og húsakostur var
nánast að hruni kominn.
„Við byrjuðum á að endurbyggja
íbúðarhúsið og breyta gamalli hlöðu
í fjárhús og fyrstu kindurnar komu
þar inn haustið 2010. Við fluttum svo
inn í íbúðarhúsið í júní 2011, en áður
höfðum við stundað svínabúskap í
15 ár í Hrunamannahreppi og Ölfusi.
Síðan 2011 höfum við svo verið að
gera upp gamalt fjós, bátaskýli og eins
hefur einn hrútakofi bæst við,“ segir
Jóhanna.
Býli: Gamla Hraun 2.
Staðsett í sveit: Í Eyrarbakkahreppi
hinum forna, sem heitir í dag
Sveitarfélagið Árborg.
Ábúendur: Við hjónin Jón Ingi
Jónsson og Jóhanna Sveinsdóttir,
ásamt dætrum okkar, Maríu Eir 22
ára og Önnu Sigríði 20 ára og fóstur-
börnum.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): 6
manna fjölskylda, kettirnir Mollý og
Torres og hundurinn Lubbi.
Stærð jarðar? 50 hektarar, þar af
15 hektara tún.
Gerð bús? Sauðfjárbú af minni
gerðinni.
Fjöldi búfjár og tegundir? Í dag
erum við með 40 kindur, 5 hross
og 5 hænur. Við gerðum heiðarlega
tilraun til að vera með geitur og ali
grísi en það var ekki alveg að ganga
upp þar sem þau voru með einbeittan
brotavilja sem reyndi verulega á
þolrifin hjá ábúendum.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnu dagur fyrir sig á bænum?
Hér er farið á fætur kl. 7 alla virka
daga, en þá fer húsbóndinn til sinnar
vinnu utan heimilisins og sinnir svo
bústörfunum þess á milli. Frúin sinnir
börnum og búi yfir daginn, en við
erum líka fósturforeldrar, ásamt því er
hún handverkskona og stendur vaktir
í Gallerý Gimli á Stokkseyri. Svo fer
það auðvitað eftir árstíð hvað verið
er að gera á bænum en dagurinn er
sjaldan nógu langur að okkar mati.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er einfaldlega bara
allt skemmtilegt sem viðkemur
bústörfunum, en þó alltaf leiðin-
legt að þurfa að fella dýr.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Ætli hann verði ekki
bara svipaður og hann er, þó það eigi
alltaf að fækka fénu á hverju hausti,
en frúin fyllist alltaf valkvíða þegar
velja á lífgimbrar og endar alltaf
með of margar að mati bóndans. En
svo stefnum við að því að fara út í
skógrækt líka.
Hvaða skoðun hafið þið á félags
málum bænda? Við teljum að
félagsmál bænda séu mjög mikilvæg
og eigi þeir bestu þakkir fyrir sem
þeim sinna.
Hvernig mun íslenskum land
búnaði vegna í framtíðinni? Okkur
finnst slæm þróun að stöðugt sé verið
að auka innflutning á erlendu kjöti
og grænmeti. Einnig höfum við
áhyggjur af framtíð hefðbundinna
fjölskyldubúa sem gæti orðið undir
í samkeppni við verksmiðjubúin.
Hvar teljið þið að helstu tæki
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara? Við teljum að helstu
tækifærin í útflutningi íslenskra
landbúnaðarafurða liggi í því að
viðhalda hreinleika, heilbrigði
og gæðum þeirrar vöru sem við
framleiðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, ostur, smjör og svo slatti af
sultum og sósum.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt og fiskur.
Eftirminnilegasta atvikið við
bú störfin?Ætli það sé ekki bara
þegar við sóttum fyrstu kindurnar
okkar haustið 2010, en þær koma frá
Hofi í Öræfum. Við lögðum af stað
að morgni með fullan bíl af börnum
og hestakerru en þegar komið var á
Vík bilaði bíllinn en bóndinn á Hofi
var svo almennilegur að koma á móti
okkur með kindurnar og góður vinur
okkar kom svo með annan bíl og
kerru til Víkur til að flytja menn
og dýr heim á Gamla Hraun.
Bleikir fiskar úr eldi eða ám
Margir elska bændableikju eða
bara lax úr næstu matvörubúð.
Það er hægur leikur að elda
fljótlega og góða rétti úr slíku
hráefni.
Bleikja með lauk, steinselju og
piparrót
› 8 litlir vorlaukar eða litlir blaðlaukar
› 3 bleikjuflök
› salt og sykur og sítrónubörkur
› 200 ml rjómi
Skerið laukinn niður og leggið til
hliðar. Sjóðið blaðlaukinn í 6-10
mínútur í saltvatni. Kælið og geymið.
Notið ögn af rjóma til að hita
blaðlaukinn upp í, áður en maturinn
er borinn fram.
› 2 knippi steinselja
› 200 ml góð ólífuolía
Setjið nokkur lauf af steinselju í ísbað
og notið sem skraut.
Gott er að strá salti, sykri og
sítrónuberki yfir fiskinn og láta liggja
á fisknum í 20 mínútur. Síðan skolað
af saltið og þerrað. Svo má létt steikja
eða sjóða eftir smekk.
Bleikja elduð að 50 gráðum í kjarna
á pönnu því hún er ekki eins góð
ofelduð.
Sett á disk ásamt rjóma, soðnum
blaðlauk og ögn af olíu sem er búið
að vinna steinselju saman við í
blandara eða mortéli.
Gott er að rífa ferska piparrót yfir
með fínu rifjárni.
Lax, fennel, agúrka og spínat
› Hrökkbrauð/laufabrauð
› 180 g próteinríkt hveiti
› 80 g af vatni
› 1 knippi salt
› 2 msk. ólífuolía
› 30 g þari af eigin vali, til dæmis söl
eða beltisþari
› 10 g fennelfræ
› Olía til steikingar
Dagur 1: Hrærið saman mjöli, vatni,
salti og ólífuolíu í deig. Setjið deigið
í plastpokann og látið kólna yfir nótt.
Dagur 2: Fletjið út með pastavél
eða fínt með höndum (erfitt). Toppið
með þara og söxuðum fennelfræjum.
Bakað undir fargi – með smjörpappír
í ofni á 170 gráðum í um fimm
mínútur. Takið fargið og haldið
áfram að baka í um fjórar
mínútur til viðbótar. Takið þá
úr ofninum.
› Ein og hálf matskeið fennelfræ
› 1 dl majónes
› hálf sítróna safi
› salt
Ristið fennelfræ og bætið í
majónesið. Látið liggja þar
að lágmarki í tíu mínútur.
Smakkið til með sítrónu og
salti.
Hrátt fennel
› 4 stk. fennel
Skerið fennel þunnt með
rifjárni og geymið í köldu
vatni.
Fennelsafi og gúrka
› Hálft fennel
› 0,5 dl olía
› 1 tsk. salt
› 0,5 gúrka
Kryddið gúrku sem búið er að
skera í bita.
Skraut
› 10 g dilllauf
› 10 g lauf af fennel
Penslið hrökkbrauðið með fennel-
majó, steikið laxinn þar til hann er
eldaður og setjið ofan á hrökkbrauðið.
Skreytið með fennel, spínati og dilli.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
Gamla Hraun 2