Bændablaðið - 23.04.2020, Side 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202010
FRÉTTIR
Design. Build. Export.
www.frameandlogcabins.co.uk
High quality timber frame cabins and structures from the UK.
All buildings designed and engineered to Icelandic regulations.
Samningar fyrir íslenska
hestinn undirritaðir
Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegs og landbúnaðar ráðherra
hefur undirritað samning við Félag
hrossabænda, Landssamband
hestamannafélaga, Félag tamn-
ingamanna og Íslands stofu um
áframhald markaðsverkefnisins
Horses of Iceland, til kynningar
á íslenska hestinum.
Við sama tilefni undirritaði ráð-
herra samning við Félag hrossa-
bænda og Tilraunastöð Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum
um prófun á forvarnarbóluefni gegn
sumarexemi í útfluttum hrossum.
Þetta kemur m.a. fram í tilkynningu
frá ráðuneytinu.
Horses of Iceland
Tilgangur markaðsverkefnisins
Horses of Iceland er að byggja upp
orðspor íslenska hestsins um heim
allan til að leggja grunn að auk-
inni verðmætasköpun og útbreiðslu
hestsins á heimsvísu. Um er að ræða
samstarf aðila í hestatengdri starf-
semi, sem aðilum um heim allan
stendur til boða að gerast þátttak-
endur að. Atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið og Íslandsstofa
gerðu með sér samning um verk-
efnið árið 2016 til fjögurra ára.
Samningurinn rann út um áramót,
en hefur nú verið framlengdur til
30. júní 2021. Ráðuneytið leggur
að hámarki 19.000.000 kr til verk-
efnisins á umræddu tímabili þar
sem fjárframlag sem því var ætlað
hefur ekki verið fullnýtt síðustu ár.
Þá leggja hagsmunaaðilar til sam-
bærilegt mótframlag.
Sumarexem í hrossum
Verkefnið felur í sér að hópur af
hrossum verða bólusett gegn sum-
arexemi með aðferð sem þróuð
hefur verið á Tilraunastöð Háskóla
Íslands að Keldum. Eftir bólusetn-
inguna verða hestarnir fluttir á
flugusvæði í Sviss til að athuga,
við raunaðstæður, hvort bólusetn-
ingin ver þá gegn ofnæminu. Gerð
verður samanburðarrannsókn á
þekktu svæði í Bern í Sviss þar sem
sumarexem hefur verið til mikilla
óþæginda fyrir hross sem fædd eru
á Íslandi.
/MHH
Samningarnir voru undirritaðir við nokkuð sérstakar aðstæður að þessu
sinni vegna kórónuveirunnar, eða í gegnum fjarfundabúnað þar sem allir
staðfestu samninginn með undirritunum sínum.
Bænda
7. maí
Hundrað milljónir króna settar
í lagningu rafstrengja í jörðu
Atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið hefur gengið frá
útfærslu 100 milljóna króna fjár-
festingar á lagningu dreifikerfis
raforku í jörðu í samræmi við
sérstakt tímabundið fjárfestingar-
átak stjórnvalda.
Verkefnin eru á undirbúningsstigi
og framkvæmdir hefjast í sumar.
Vegna þessa hefur verið gengið frá
því gagnvart RARIK og Orkubúi
Vestfjarða að fjármunirnir verði
nýttir á árinu 2020 til þess að flýta
mikilvægum framkvæmdum við
jarðstrengjavæðingu dreifikerfis
raforku.
„Með þessu framlagi úr fjár-
festingarátaki stjórnvalda getum við
flýtt enn frekar lagningu dreifikerfis
raforku í jörðu á þessu ári, til sam-
ræmis við tillögur átakshóps stjórn-
valda frá í febrúar. Þessir fjármunir
munu nýtast vel strax í sumar við að
hefja þær mikilvægu framkvæmd-
ir,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
Fjármununum verður skipt þannig:
• 50 milljónir króna fara í
streng lagningarverkefni hjá
RARIK við Laxárdal og
Fellsströnd í Dalabyggð,
strenglögn frá Seyðisfirði til
Mjóafjarðar, strenglögn frá
Vík að Kirkjubæjarklaustri
og strenglögn frá Hvolsvelli
að Þverá. Alls er um 30 km að
ræða af raflínu í jörð og fram-
kvæmdakostnaður samtals 150
milljónir kóna. Mun framlagið
dekka öll þau verkefni.
• Hjá Orkubúi Vestfjarða mun 50
milljóna króna framlag ríkisins
verða nýtt í að hefja það verk-
efni að koma Rauðasandslínu
(frá Sauðlauksdal að
Rauðasandi) í jörðu í nokkrum
áföngum (Sauðlauksdalur -
Hnjótur - Breiðavík - Örlygs-
höfn - Láginúpur - Breiða-
vík - Bjargtangar - Örlygs-
hafnarvegur - Rauðisandur).
Alls er þar um 70 km að ræða og
heildarfjárfestingarkostnaður um
370 milljónir króna. Mun framlagið
nýtast fyrir fyrsta áfanga þess verk-
efnis. /MHH
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa
dóttir, ferðamála, iðnaðar og
nýsköpunar ráðherra.
Aflvélar ehf. í Garðabæ keyptu þrotabú Jötunn véla ehf.:
Jötunn verður rekinn með nær
óbreyttu sniði á Selfossi
Fyrirtækið Aflvélar ehf. í Garða-
bæ keyptu í byrjun apríl þrotabú
Jötunn véla ehf. á Selfossi. Ráðgert
er að halda þar uppi svipaðri
starfsemi með órofinni þjónustu
við landbúnaðinn og hafa margir
af lykilstarfsmönnum í Jötni verið
endurráðnir til fyrirtækisins.
Friðrik Ingi Friðriksson, for-
stjóri Aflvéla, sagði í samtali við
Bændablaðið að vissulega væri
svolítið sérstakt að fara út í slíkar
aðgerðir á jafn undarlegum tímum
og nú ríktu vegna COVID-19 far-
aldursins. Þeir þyrftu að treysta nær
alfarið á sjálfan sig og eigið fé við
að koma þessum kaupum í kring,
þar sem aðgengi að lánastofnunum
væri nú mjög skert vegna ástandsins.
Verður rekið á kennitölu Aflvéla
„Það er í raun með ólíkindum að láta
sér detta það í hug að fara í svona
aðgerð á þessum tímum og búið að
vera mjög erfitt. Jötunn verður hluti
af starfsemi Aflvéla og verður rekið
á kennitölu Aflvéla. Við erum búnir
að ráða margt af því fólki sem áður
vann hjá Jötunn vélum og það mun
halda sínu starfi óbreyttu. Á Selfossi
mun því að mestu starfa sami kjarni
og áður.“
Aflvélar flytja úr Garðabænum
á Selfoss síðar á árinu
„Svo erum við með fyrirtækið
Aflvélar í Garðabæ, en það er
stefnt á það síðar á þessu
ári að Aflvélar flytji líka
starfsemi sína á Selfoss.
Þó þetta verði allt saman
rekið á sömu kennitölu, þá
verður landbúnaðarhlutinn
áfram rekinn undir merkinu
Jötunn. Þá verður heima-
síðan jotunn.is óbreytt og
áfram verða sömu símanúmer og
áður voru hjá Jötni vélum. Fyrir við-
skiptavinina ætti þetta því að verða
lítil breyting,“ segir Friðrik Ingi.
Munu reyna að
halda í vélaumboð
– Nú voru Jötunn vélar með öflug
umboð á borð við Massey Ferguson,
og Valtra, verða þau áfram?
„Já, ég vonast til að við verðum
með eitthvað af þeim umboðum, en
það er verið að vinna í þeim málum
og mun skýrast betur á næstunni.
Allt tekur þetta smá tíma. Við erum
allavega með alla varahluti í þau
tæki sem þarna voru til sölu.“
Aflvélar urðu til 2004
Fyrirtækið Aflvélar var stofnað
árið 2004 og á rætur að rekja til
Burstagerðarinnar og Besta sem
voru í eigu sömu aðila. Í raun hafa
Aflvélar selt tæki frá árinu 1984
þegar innflutningur á Beilhack og
Danline flugbrautarsópunum byrj-
aði í kjölfar sölu Burstagerðarinnar
á burstum fyrir flugvallarsópa frá
árinu 1979.
„Við höfum í gegnum árin verið
með mikið af snjóruðningstækjum
og búnaði fyrir Isavia og flugvellina,
Vegagerðina, bæjarfélög um land allt
og einnig til bænda,“ segir Friðrik
Ingi. „Það skarast svo sem ekkert við
þá þjónustu sem Jötunn hefur verið
að bjóða. Hjá Aflvélum höfum við
verið að selja mikið af búnaði fyrir
verktaka og m.a. verið að breyta
vörubílum í snjóruðningstæki.“
Bjartsýnn á þjónustu
við verktaka og bændur
Friðrik Ingi segir að þrátt fyrir
erfiða stöðu í landinu vegna
COVID-19 faraldursins, þá horfi
hann með nokkurri bjartsýni til
áforma ríkisins um aukin umsvif
við uppbyggingu vega og annarra
samgöngumannvirkja.
„Þá er maður líka á horfa á þau
tækifæri sem felast í þjónustu við
landbúnaðinn sem heldur áfram
starfsemi og þarf sín tæki og tól.
Það var líka dálítill hvati til að fara
út í þessi kaup að menn hafa verið
að horfa á nauðsyn þess að auka
innlenda framleiðslu á landbúnað-
arafurðum.“
Með um 17 starfsmenn
á Selfossi og í Garðabæ
Friðrik Ingi segir að á Selfossi muni
starfa um tíu manns til að byrja
með og þá séu um sjö starfsmenn
í Garðabænum. Hann segir að það
sé hins vegar ekki í kortunum í bili
að halda úti starfsemi á Akureyri og
Egilsstöðum.
Aflvélar með fjölda umboða
Meðal umboða og þjónustu sem
Aflvélar eru með er ASH Aebi
Schmidt Holding sem er stórfyr-
irtæki í sumar- og vetrarvélum
með höfuðstöðvar í Zürich í Sviss.
Fyrirtæki í eigu ASH eru m.a. AEBI
í Sviss, Schmidt í Þýskalandi, Nido
í Hollandi, Beilhack í Þýskalandi,
DMI (hugbúnaðarfyrirtæki) í Þýska-
landi, Tellefsdal í Noregi og Meyer
í Bandaríkjunum.
Hundruð tækja frá ASH Aebi
Schmidt til snjóruðnings og sum-
arstarfa eru nú í notkun á landinu
og þau eru þjónustuð af
starfsmönnum Aflvéla ehf.
Einnig er Aflvélar með
umboð fyrir ýmis tæki fyrir
sumar og vetur frá Pronar
í Póllandi, veghefla frá
Veekmas oy í Finnlandi,
ásamt fleiri umboðum s.s.
Weber burstaverksmiðjun-
um í Þýskalandi, GMI í Noregi
og Monroe í USA, slitblöðum frá
Kuper í Þýskalandi og Nordic steel
í Noregi ásamt vélum til innanhúss-
þrifa; i-Team og Cleanfix frá Sviss.
Aflvélar er með stórt og
full komið eigið verkstæði að
Vesturhrauni 3, sem getur tekið
við öllum stærðum af tækjum. Á
verkstæði fyrirtækisins starfa sér-
þjálfaðir starfsmenn og sinna þeir
öllum viðgerðum auk þess að veita
tæknilega aðstoð. /HKr.