Bændablaðið - 23.04.2020, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202012
Landstólpi hefur
tekið við umboði fyrir
heyrúlluvélar og annan
vélbúnað frá McHale
sem leiðandi og ört vax-
andi fyrirtæki á sviði
heyvinnsluvéla.
Arnar Bjarni Eiríksson
hjá Landstólpa segir að
McHale sé leiðandi fyr-
irtæki á heimsvísu í fram-
leiðslu á rúllubaggasamstæðum í
dag og að fyrirtækið sé að færa út
kvíarnar í framleiðslu slátur-, snún-
ings- og rakstrarvélum. „McHale
er írskt fyrirtæki sem er stofnað af
tveimur bræðrum og bændasonum
fyrir um þrjátíu árum.“
Arnar segir að til þessa hafi
Jötunn vélar verið með umboð-
ið fyrir McHale og að líklega sé
búið að flytja inn um 200
rúllubaggavélar og önnur
tæki frá þeim.
„Við erum afskaplega
stolt af því að hafa verið
valin sem umboðsað-
ili McHale á Íslandi og
hlökkum til að takast á
við framtíðina með fyr-
irtækinu og íslenskum
bændum og verktökum.
Við munum kynna smávægilegar
breytingar í tilefni þessa nú á
næstunni og okkur metnaðarmál
að þjónusta McHale-eigendur eins
vel og kostur er.“ /VH
FRÉTTIR
Rætt um Sveitarfélagið Suðurland í könnunarviðræðum 5 sveitarfélaga:
Nýtt sveitarfélag með 5.300 íbúa
myndi ná yfir 16% landsins
Sveitarstjórnir Ásahrepps,
Mýrdals hrepps, Rangárþings
eystra, Rangárþings ytra og
Skaftár hrepps hafa skipað
fimmtán manna verkefnahóp
um könnunar viðræður um
sameiningu sveitar félaganna.
Verkefnið hefur hlotið vinnu-
heitið „Sveitarfélagið Suður land“,
en markmið þess er að vinna mat
á kostum og göllum sameiningar
sveitarfélaganna og leggja fyrir
sveitarstjórnir til mats á því hvort
hefja skuli formlegar viðræður á
grundvelli 119. gr. sveitarstjórn-
arlaga.
„Stöðumat verkefnisins byggir
á kortlagningu áherslna og sýnar
hverrar sveitarstjórnar og íbúa til
þeirra tækifæra og hindrana sem
liggja í mögulegri sameiningu
sveitarfélaganna. Byggt verður
á vinnu starfshópa, niðurstöðum
íbúafunda og greiningu ráðgjafa á
stefnuskjölum, áætlunum, fjárhags-
gögnum og öðrum fyrirliggjandi
upplýsingum,“ segir Anton Kári
Halldórsson, sveitarstjóri Rangár-
þings eystra, sem fer fyrir verkefna-
hópnum.
Starfshópar teknir til starfa
Myndaðir hafa verið starfshópar
um tiltekin málefnasvið sveitar-
félaganna. Í þeim hópum starfa
lykilhagsmunaaðilar og starfsfólk.
Markmið vinnu starfshópanna er
að fá fram upplýsingar og sjónar-
mið við stöðugreiningu og fyrir
mótun framtíðarsýnar, og stuðla að
auknum samskiptum milli aðila.
Um 60 manns eiga sæti í starfs-
hópnum en þeir hafa unnið á fjar-
fundum í ljósi aðstæðna í landinu.
Íbúafundir í hverju sveitarfélagi
Anton Kári segir að haldnir verði
íbúafundir í hverju sveitarfélagi
til að kynna kosti og galla sam-
einingar. „Á þeim verður sjónar-
miða íbúa leitað með skipulögðum
hætti með þjóðfundarfyrirkomu-
lagi. Íbúum verður boðið upp á
að fylgjast með fundum gegnum
streymi og senda inn ábendingar
með rafrænum hætti. Í framhaldi
af kynningu stöðumats og fram-
tíðarsýnar á íbúafundum er áætlað
að leggja viðhorfskönnun fyrir
íbúa. Markmið könnunarinnar er
að kanna hug íbúa til þess hvort
hefja skuli formlegar sameiningar-
viðræður sem enda með kosningu,“
segir Anton Kári.
Kosið um sameiningu 2021
Gagnaöflun og stöðumat vegna
sameiningarinnar fer fram þessar
vikurnar og á að vera lokið í maí.
Þá fara íbúafundirnir líka fram og er
áætlað að sveitarstjórnir taki í júní
ákvörðun um hvort hefja skuli form-
legar sameiningarviðræður. Verði
ákveðið að halda áfram viðræðum
er áætlað að sam einingar kosningar
fari fram í nóvember 2021.
„Ákvörðun um að hefja könnunar-
viðræður er tekin í framhaldi af við-
ræðum fulltrúa sveitarfélaganna og
byggir á farsælu samstarfi þeirra
undanfarin ár. Ef íbúar sveitarfélag-
anna fallast á sameiningu verður til
langstærsta sveitarfélag landsins, sem
nær yfir um 16% landsins, með um
5.300 íbúa,“ segir Anton Kári. /MHH
Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri
Rangárþings eystra, sem fer fyrir
sameiningarhópi sveitarfélaganna
fimm sem ræða nú um sameiningu.
Mynd / Úr einkasafni
Þátttakendur frá UMSS á einu landsmóti UMFÍ. UMSS er einn 28
sambandsaðila UMFÍ. Innan UMFÍ eru 18 héraðssambönd, 3 íþróttabandalög
og 7 ungmennafélög með beina aðild. Alls eru um 460 félög innan UMFÍ.
Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS):
Engin kjötveisla á
110 ára afmælinu
„Þetta eru skrýtnir tímar. Við
ætluðum að hafa veglegt ársþing
í apríl, bjóða upp á þriggja rétta
veislu með ljúffengu kjöti úr
Skagafirði fyrir hátt í 90 manns,
þingfulltrúa, gesti og fleiri. Þetta
átti að vera stórt þing, það hund-
raðasta að viðbættu afmælinu, ætli
við gerum nokkuð fyrr en í haust,“
segir Klara Helgadóttir, formaður
UMSS.
Félagið fagnaði 110 ára af -
mæli 17. apríl en það var stofn-
að þann dag 1910. Stofnfélög
voru Ungmennafélagið Æskan,
Staðarhreppi, Ungmennafélagið
Framför, Lýtingsstaðahreppi
og Ungmennafélagið Fram,
Seyluhreppi. Þegar líða tók á
öldina fjölgaði aðildarfélögunum
og starfsemin efldist á allan hátt.
Aðildarfélagin eru nú 10 talsins í
Skagafirði.
Þetta kemur m.a. fram í tilkynn-
ingu frá Ungmennafélagi Íslands.
Stefnt var á að halda ársþing UMSS
7. apríl síðastliðinn. Gert var ráð fyrir
69 þingfulltrúum auk gesta, stjórnar
og starfsmanna. Leitað hefur verið
gamalla mynda frá viðburðum UMSS
í gegnum árin til að sýna á þinginu
og margt fleira. Samkomubann til að
hindra útbreiðslu kórónaveirunnar
sem sett var á í mars setti hins vegar
strik í reikninginn og var þinginu
frestað um óákveðinn tíma. Síðasta
þing sem sambandsaðili UMFÍ hélt
var hjá UMSB 12. mars síðastliðinn
og var þeim sem á eftir komu slegið
á frest.
Allt íþróttastarf liggur niðri
Klara segir lítið í gangi nú enda
liggi allt íþróttastarf niðri. Sjálf er
hún bóndi að Syðri-Hofdölum í
Skagafirði og hefur í nægu að snúast
fram að sumarlokum. „Við skoðum
þetta síðar, í sveitinni er vorið ekki
besti tíminn til að halda þing og varla
tími til þess aftur fyrr en í haust,“
segir hún og býst við að þá fari fólk
að hugsa sér til hreyfings. Þangað til
verði þingið undirbúið og verði það
veglegt.“ /MHH
Klara Helgadóttir, formaður Ung
menna sambands Skagafjarðar
(UMSS) og bóndi á SyðriHofdölum
í Skagafirði. Myndir / UMFÍ Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar:
Mikilvægt að endurnýja dreifikerfi raforku
sem verst fóru út úr veðrinu í desember
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fagnar afar góðri
vinnu átakshóps um úrbætur á
innviðum og þakkar stjórnvöld-
um fyrir skjót og góð viðbrögð
í kjölfar fárviðrisins sem gekk
yfir Ísland í desember síðast-
liðnum. Tillögur til aðgerða sem
fram koma á vefsíðunni innvid-
ir2020.is séu góðar og mikilvægt
að hraða þeim sem kostur er.
Fram kemur í bókun frá fundi
Byggðarráðs að það vilji þó benda
á mikilvægi þess að hraðað verði
enn frekar aðgerðum sem felast í
jarðstrengjavæðingu dreifikerfis
raforku og þrífösun því samfara.
Mikilvægt er að þeir hlutar dreifi-
kerfis raforku í Skagafirði sem
verst fóru í veðrinu verði endur-
nýjaðir strax á árunum 2020–
2021. Er þar m.a. um að ræða
Skagalínu, Reykjastrandarlínu og
Glaumbæjarlínu.
Lagfæringu á sjóvarnar-
görðum verði hraðað
Þá þurfi að tryggja að flutningskerfi
raforku geti staðið undir hlutverki
sínu en mikilvægir þættir byggða-
línunnar duttu m.a. út í desember.
Eins ítrekar ráðið að lagfæringum
á sjóvarnagörðum við Strandveg
og Skarðseyri verði hraðað sem
nokkur kostur er, að framkvæmdir
við nýjan hafnargarð á Sauðárkróki
hefjist hið fyrsta og að fjárveiting
verði veitt strax á árinu 2020 til
kaupa á nýjum hafnsögubát fyrir
Skagafjarðarhafnir. Allir þessir
þættir lúta að auknu öryggi og við-
brögðum til að koma í veg fyrir
stórtjón og stöðvun atvinnulífs á
og við hafnarsvæðið á Sauðárkróki.
Að lokum er áréttað að öll atriði
sem lúta að aukinni getu viðbrags-
aðila, s.s. heilbrigðisstofnana,
sjúkraflutninga og sjúkraflugs,
öryggi fjarskiptakerfis o.s.frv.
eru mjög brýn og verða að njóta
alls forgangs. Byggðarráð fagn-
ar þeirri ákvörðun um að setja
Alexandersflugvöll aftur inn í
grunnnet innanlandsflugs og brýnir
fyrir stjórnvöldum að hann fari sem
slíkur inn í samgönguáætlun. /MÞÞ
Landstólpi með umboð fyrir McHale