Bændablaðið - 23.04.2020, Síða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 21
Rannsaka ber til hlítar möguleika á
flugvallarstæðum á Hólmsheiði og
Lönguskerjum með tilliti til veður-
fars og flugskilyrða.“ Hólmsheiði er
nú talin út úr myndinni m.a. vegna
nálægðar við vatnsból. Flugvöllur á
Lönguskerjum er svo talin lítt fýsi-
legur vegna mikils kostnaðar við
uppfyllingar. Einnig vegna sjóroks
og seltu sem erfitt yrði að komast hjá
og er slæm fyrir flugvélar.
Fjórða leitin að flugvallarstæði
Í fjórða sinn var gerður út leitarleið-
angur að flugvallarstæði 2013 og átti
honum að ljúka fyrir árslok 2014.
Starfshópurinn var settur á laggirnar
í október 2013 og hafði það að mark-
miði að skoða kosti undir flugvöll
á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin,
sem kölluð var „Rögnunefndin“
í höfuðið á nefndarformann-
inum Rögnu Árnadóttur, núver-
andi skrifstofustjóra Alþingis,
var stýrihópur á vegum ríkisins,
Reykjavíkurborgar og Icelandair
Group. Í nefndinni sátu Ragna
Árnadóttir formaður, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir fyrir hönd
ríkisins, Matthías Sveinbjörnsson
fyrir hönd Icelandair og Dagur B.
Eggertsson fyrir Reykjavíkurborg.
Átti hópurinn að skila skýrslu fyrir
áramótin 2014 en fékk frest til þess
að skila plagginu þar til í júní 2015.
Var leit að flugvallarstæði gerð
með hliðsjón af stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnar Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins, sem for-
mennirnir kynntu 22. maí 2013 og
sagði:
„Reykjavíkurflugvöllur er grund-
vallarþáttur í samgöngum landsins.
Til þess að hann geti áfram gegnt því
mikilvæga þjónustuhlutverki, sem
hann hefur gert gagnvart landinu
öllu, þarf að tryggja framtíðarstað-
setningu hans í nálægð við stjórn-
sýslu og aðra þjónustu.“
Hvassahraun talið álitlegast en
er á hættusvæði vegna eldgosa
Könnun Rögnunefndarinnar
beindist að fjórum nýjum flugvallar-
stæðum. Þau eru Bessastaðanes,
Hólmsheiði, Hvassahraun og
Löngusker. Þá skoðaði stýrihópur-
inn einnig breyttar útfærslur á legu
flugbrauta í Vatnsmýri.
Taldi Rögnunefndin að hag-
kvæmast væri að byggja nýjan
flugvöll í Hvassahrauni, sem er á
mörkum Hafnarfjarðar og Voga.
Bessastaðanesi var ýtt út af borðinu
að sagt var af umhverfisástæðum.
Í umræðum vegna vax-
andi möguleika á eldgosum á
Reykjanesskaganum að undanförnu
virðist öll skynsemisrök benda til
að flugvöllur í Hvassahrauni sé
endanlega út úr myndinni. Þá er
Hvassahraun sagt vera á mörkum
veðurskila sem oft leiðir til meiri
veðursældar í og við Reykjavík
en á utanverðum Reykjanesskaga.
Samt eru stjórnvöld áfram að eyða
verulegum peningum í að skoða
Hvassahraunið og á sama tíma
er stöðugt verið að þrengja að
Reykjavíkurflugvelli.
Verða skoðanir áfram hengdar
á pólitískan gaddavír eða settar í
farveg skynsamlegrar umræðu?
Reyndar virðast menn oftar en ekki
í umræðum um flugvallarmál í eða
við Reykjavík hafa hengt sig með
öflugum pappírsklemmum á póli-
tískan gaddavír fremur en að taka
tillit til skynsemi eða þjóðhagslegrar
hagkvæmni. Svo ekki sé talað um
hagsmuni landsbyggðarbúa. Þess
vegna hefur niðurstaðan oftast ekki
verið annað en marklítið málskrúð
sem búið er að eyða í hundruðum
milljóna ef ekki milljörðum af al-
mannafé.
Hugmyndir um Bessastaðanes
Ýmsir einstaklingar hafa þrátt fyrir
allt lagt fram sínar hugmyndir,
m.a. um flugvöll á Bessastaðanesi
sem skerða ekki byggingaráform á
Álftanesi. Þannig sýndi Emil Hannes
Valgeirsson t.d. ágæta mynd af slíku
flugvallarstæði í bloggfærslu þann
20. mars 2013. Teiknaði hann inn
á mynd flugvöll með þremur flug-
brautum sem eru jafnlangar þeim
sem eru í dag á Reykjavíkurflugvelli
og með svipaðri stefnu. Þær eru
allar á svæði sem enn er óbyggt og
stendur ekki til að byggja á. Setti
hann einnig inn vegtengingar yfir
Skerjafjörð sem myndi gjörbreyta
álagi á umferðaræðar til og frá mið-
borg Reykjavíkur með tengingu inn
á Suðurgötuna í Reykjavík. Til að
trufla ekki skipa- og skútuumferð
gerði hann ráð fyrir göngum undir
Skerjafjörð sem líklega er þó óþarft
í ljósi lítillar notkunar hafnar í
Kópavogi. Með þessum hug-
myndum Emils þyrftu menn heldur
ekki að keyra í gegnum hlaðið hjá
forseta Íslands. Aðflugsleiðir sýnast
vera nokkuð hagstæðar þarna því
lítið er um byggð allra næst flug-
vellinum og ekki yrði lengur flogið
yfir miðbæ Reykjavíkur.
Hagkvæmni flugvallar
á Bessastaðanesi
Ívar Örn Guðmundsson, arkitekt
hjá Nexus Arkitektastofu, hefur líka
teiknað inn athyglisverðan og enn
stærri flugvöll á Bessastaðanesið
sem honum þótti álitlegt stæði fyrir
flugvöll sem bæði gæti þjónað inn-
anlands- og millilandaflugi. Var sú
hugmynd m.a. kynnt í þætti Björns
Jóns Bragasonar, Sögu & samfé-
lagi, á Hringbraut þann 11. mars
síðastliðinn.
Ívar Örn sagðist í samtali við
Bændablaðið margoft hafa velt
þessum málum upp og hans hug-
myndir hafi m.a. verið skoðaðar af
Rögnunefndinni svonefndu án þess
að nokkuð frekar hafi verið gert með
þær.
Ívar Örn hefur það með sér í
slíkri umræðu að vera sjálfur flug-
maður með góða þekkingu og inn-
sýn í þarfir flugs. Þá hefur hann
starfað við gerð skipulags og hefur
kynnt sér vel aðstæður í öðrum
löndum með hliðsjón af nálægð
alþjóðaflugvalla við höfuðborgir
og margháttaða hagkvæmni sem
af slíku hlýst. Hann býr sjálfur fast
við Reykjavíkurflugvöll og starfar í
miðborginni. Hann segist stoltur af
að búa og starfa á miðborgarsvæð-
inu, en rekur samt uppruna sinn
ekki af síðra stolti til Vestfjarða og
Norðausturlands.
Hann segir flugumferðina um
Reykjavíkurflugvöll ekki trufla sig
á nokkurn hátt þótt hann hafi hana
fyrir augunum bæði á heimili sínu
og í vinnunni á hverjum einasta
degi. Þá séu þotur í dag mun hljóð-
látari en áður og t.d. mun hljóðlátari
en gömlu Fokker Friendship flug-
vélar Flugfélags Íslands sem nú er
hætt að nota.
Ívar Örn segist þó alls ekki vilja
hengja sig á Bessastaðanesið sem
ákjósanlegasta kostinn ef menn geti
með rökum sýnt fram á annan þjóð-
hagslega betri kost. Hann bendir á að
rekstrarlega sé mjög óhagkvæmt að
reka Reykjavíkurflugvöll eingöngu
sem innanlandsflugvöll. Hins vegar
er heldur pólitískur vilji um þessar
mundir til að stækka völlinn þannig
að hann nýtist jöfnum höndum fyrir
millilandaflug.
Telur Ívar Örn að vel sé hins vegar
mögulegt að byggja hagkvæman
alþjóðaflugvöll á Bessastaðanesi
sem nýtist jafnt til innanlandsflugs.
Af eigin reynslu telur hann þó að
rekstur lítilla einkaflugvéla flug-
áhugafólks eigi ekkert erindi inn
á slíkan flugvöll. Slíkri starfsemi
ætti að vera hægt að finna annan
samastað.
Ívar Örn miðar við tvær 2.400
metra flugbrautir sem duga myndu
flestum þotum. Bendir hann á að
samkvæmt hans útreikningum
þá verði mun meiri fjarlægð frá
flugbrautum á Bessastaðanesi í
mikilvægar byggingar en nú er á
Reykjavíkurflugvelli. Aðflug og frá-
flug yrði í flestum tilvikum yfir sjó
og þyrfti sjaldnast að fara yfir byggð.
Þegar fara þyrfti yfir byggð væri
fjarlægð og flughæð mun meiri en
nú er varðandi Reykjavíkurflugvöll.
Varðandi ferðamennsku telur
hann að flugvöllur á Bessastaðanesi
verði mun ákjósanlegri kostur en
Keflavíkurflugvöllur. Hann yrði
ekki mikið fjær höfuðborgarmiðju
en helstu flugvellir í stórborgum í
Evrópu, Bandaríkjunum og víðar
þar sem mikil áhersla er lögð á
hagkvæmni af slíkri nálægð. Sem
dæmi nefnir hann vegalengdir frá
nokkrum alþjóðaflugvöllum að
borgarmiðju:
Hagræði fyrir ferðamenn
Flugvöllur á Bessastaðanesi myndi
að mati Ívars auka verulega líkur
á að erlendir ferðamenn fljúgi
beint þaðan til áfangastaða úti á
landi. Ástæðan er sparnaður í tíma,
vegalengdum og kostnaði. Það
myndi auk þess styrkja innanlands-
flugið verulega.
Ívar Örn bendir einnig á að
vesturhluti Reykjavíkur eigi nú
þegar við mikinn umferðarvanda
að stríða sem mætti leysa með jarð-
göngum frá núverandi flugvallar-
stæði í Vatnsmýri. Þau lægju undir
Skerjafjörð með hliðargöngum inn á
Kársnes í Kópavogi, inn á Álftanes
með tengingu við nýjan flugvöll
á Bessastaðanesi. Síðan yrði veg-
tenging yfir í Hafnarfjörð og áfram
suður á Reykjanesbraut.
Eflaust þætti mörgum að flug-
völlur á Bessastaðanesi yrði
óþægilega nálægt forsetasetrinu á
Bessastöðum. Samkvæmt mæling-
um Ívars Arnar yrði austur-vestur
braut vallarins þó í 1.480 metra fjar-
lægð og suður-vestur braut í 500
metra fjarlægð. Til samanburðar er
Alþingishúsið í 1.060 metra fjarlægð
frá Reykjavíkurflugvelli, Háskóli
Íslands í 450 metra fjarlægð og ný
aðalbygging Landspítalans verður
í 390 metra fjarlægð frá flugbraut.
Reykjavíkurflugvöllur
eða Bessastaðaflugvöllur?
Án efa yrði mikil tilfinninga-
leg togstreita um byggingu svo
umfangsmikilla mannvirkja á
Bessastaðanesi. Því er trúlega aldrei
heppilegri tími en einmitt núna til að
fara í yfirvegaða umræðu um kosti
þess og galla að setja þar niður flug-
völl. Aðrir kostir á suðvesturhorninu
virðast allir vera verri, nema þá að
fara í breytingar og stækkun á nú-
verandi Reykjavíkurflugvelli.
Um þetta verða menn að ná
niðurstöðu, eða að flytja stjórn-
sýsluna og ýmsa bráðaþjónustu
að verulegu leyti til Keflavíkur og
byggja mögulega upp varaflugvöll
í Árnessýslu. Höfuðborg án öflugra
samgöngutenginga við landið allt
og umheiminn er engin höfuðborg.
Hjá okkur
færðu allt fyrir
háþrýstiþvottinn
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Í hugmynd Emils Hannesar Valgeirssonar er Reykjavíkurflugvöllur einfald-
lega fluttur yfir á Bessastaðanesið í nær óbreyttri mynd og virðist rúmast
þar ágætlega.
Fjarlægðir frá nokkrum þekktum
flugvöllum að borgarmiðju
• Keflavíkurflugvöllur, 47 km.
• París, Charles De Gaulle, 20 km.
• París, Orly, 15 km.
• Lúxemborg 5 km.
• London, Heathrow, 10 km.
• London, City, 12 km.
• Amsterdam, Schiphol, 10 km.
• Kaupmannahöfn, Kastrup, 7 km.
• Stokkhólmur, Bromma, 6 km.
• New York, John F. Kennedy, 18 km
• New York, LaGuardia, 12 km (6,6 km í Central Park).
• Washington, Ronald Reagan að Hvíta húsinu, 4 km.
• Boston, Logan, 3 km.
• Baltimore, International, 12 km.
• Toronto, Person, 18 km.
• Toronto, Billy Bishop, 2,7 km. Heimild: Ívar Örn Guðmundsson