Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202022
Í byrjun ferbúar var umfjöllun í
Bænda blaðinu um flugvelli á Suð
ur landi. Þar var rætt um mögu
lega nýja millilandaflugvelli á
Suðurlands undirlendinu. Þar á
meðal voru vangaveltur um risa
stóran flugvöll sem sést úr gervi
hnöttum en er hvergi skráður og
fáir virðast vita af.
Í greininni var leitt líkum að því
að flugvöllur á Geitasandi austan við
Hellu hafi upphaflega verið gerður
af breska flughernum sem vitað er
að vann að flugvallargerð á þeim
slóðum í heimsstyrjöldinni síðari.
Flugvöllur gerður að frumkvæði
fimm einstaklinga
Við upplýsingaöflun vegna þessa
flugvallar var fátt um svör, en eftir
útkomu blaðsins 19. mars kom í ljós
að þessi risastóri flugvöllur var alls
ekki verk Breta, heldur var hann
gerður fyrir um 30 árum að frum-
kvæði fimm íslenskra einstaklinga
og áhugamanna um flug. Þessi
mannvirkjagerð hefur þó ekki farið
hátt og á tiltölulega fárra vitorði, auk
þess sem framkvæmdamennirnir hafa
ekkert verið að flagga þessu verk-
efni. Þeir voru hins vegar tilbúnir að
upplýsa lesendur Bændablaðsins um
þessi afrek sín.
Árið 1990 tóku nokkrir svifflugs-
áhugamenn land á leigu af Land-
græðslunni í Gunnarsholti. Nánar til-
tekið á Geitasandi á Rangárvöllum.
Þetta voru þeir Baldur Jónsson, múr-
ari og flugmaður, Garðar Gíslason
tannlæknir, Gunnar Arthursson,
flug maður og fyrrverandi flugstjóri,
Marvin Friðriksson flugvirki og
Sigurður Benediktsson, verkfræðing-
ur og áhugaflugmaður, sem lést 2002.
Landið var bara grjót og melar
Baldur Jónsson er múrarameistari,
flugmaður og landsþekktur svifflug-
maður. Hann segir svo frá fyrir hönd
félaga sinna:
„Landið var bara grjót og melar
og ljóst að ekki væri hægt að koma
upp flugbrautum nema með mik-
illi vinnu þar sem handaflið eitt
nýttist. Byrjað var á grjóttínslu
og síðan borið á og sáð grasfræi.
Vinna við fyrstu brautina tók allt
fyrsta sumarið. Samhliða hófst
bygging vélageymslu. Næstu ár
á eftir var unnið í að fjölga braut-
um og eru þær nú fjórar fyrir utan
akstursbrautir.“
Samtals 8 km af brautum og
sú lengsta nær 3 kílómetrar
„Þegar best lét voru brautirnar sam-
tals um 8 km og lengsta brautin var í
upphafi tæpir 3 km. Ekki hafa komið
fram nein merki eða vísbendingar
um að áður hafi verið flugbraut á
þessu svæði.
Völlurinn er mikið notaður af
áhugafólki um flug. Brautum er vel
við haldið, þó aðeins hafi dregið úr
viðhaldi lengstu brautanna á síðustu
árum.
Á hverju ári er borið á og valtað
og slegið eftir þörfum. Trjárækt
hefur verið reynd á svæðinu frá
upphafi , aðallega birki. Hún fór
hægt af stað enda jarðvegur mjög
snauður. Hún hefur þó tekið við sér
síðustu árin og eru leiguhafar þátt-
takendur í Hekluskóga-verkefninu
Þetta hefði aldrei tekist nema
fyrir samheldni og elju leigutaka,
fjölskyldna og vina að ógleymd-
um stuðningi og hvatningu Land-
græðslunnar,“ segir Baldur Jónsson.
Hann sagði í samtali við Bænda-
blaðið að hann hafi vitað af ætlun
Breta að koma upp flugvelli fyrir
herflugvélar á þessum slóðum.
Sjálfur hafi hann leitað að þessum
flugvelli af landi og úr lofti árum
saman en ekki fundið lengi vel. Nú
telur hann sig vita að flugvöllurinn
sé skammt norðan við þjóðveginn
sem liggur ofan við Hótel Rangá.
Aldrei mun hafa verið lokið við
flugvallargerðina af hálfu RAF,
flughers bresku krúnunnar, m.a. þar
sem erfitt var um aðdrætti vegna
hafnleysis á Suðurlandi. Þá varð
mannvirkið mun umfangsminna
en það sem íslensku félagarnir
fimm gerðu í kyrrþey með sínum
fjölskyldum og vinum og er nú
sýnilegt úr gervihnöttum.
Flugvöllur fimmmenninganna á
Geitasandi, eða Geitamel eins og
þeir kalla svæðið, hefur, eins og
Baldur segir, mikið verið notaður
af áhugaflugmönnum, ekki síst í
svifflugi. Þá hefur landgræðslu-
flugvélinni Páli Sveinssyni verið
lent þar vandræðalaust enda hafði
hún þar nóg pláss til að athafna sig.
VARÚÐ!
Þorlákshöfn – Sími 483 1955 – www.sbskilti.is
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUNHAND WASHING - HAND HYGIENE
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
Nuddið lófum saman
Nuddið bæði handarbökin með lófunum
Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgómaog neglur vandlega Nuddið báðaþumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails ofboth hands together thoroughly Rub thumb ofeach hand thoroughly
Rub each palm thoroughly
2
3
4
5
6
1
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUN
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
HAND WASHING - HAND HYGIENE
Nuddið lófum saman Nuddið bæði handarbökin með lófunum Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgóma
og neglur vandlega Nuddið báða þumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails of
both hands together thoroughly
Rub thumb of each hand thoroughly Rub each palm thoroughly
2 3
4 5 6
1
framleiðum öryggis-
og varúðarmerkingar
FRÉTTASKÝRING
Landgræðsluflugvélin Páll Sveinsson á Geitamelsflugvelli á Geitasandi. Mynd / Gunnar Arthursson
Á innfelldu myndinni er landgræðsluvélin í lágflugi yfir svæðið undir stjórn Gunnars Arthurssonar. Mynd / Guðrún M. Halldórsdóttir
Unnið viða að setja niður trjáplöntur við flugvöllinn.
Ein af mörgum grjóthrúgum sem tínd var úr flugvallarstæðinu. Flugvöllurinn sem fimmmenningarnir gerðu á Geitasandi sést vel úr gervi-
hnöttum.
Svifflugan TF-STD á Geitamelsflugvelli.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Flugvöllurinn Geitamelur á Geitasandi austan við Hellu var ekki verk breska flughersins:
Byggður upp af fimm flugáhugamönnum
og fjölskyldum þeirra fyrir um 30 árum
– Lengsta brautin var upphaflega nær 3.000 metrar eða nærri því eins löng og flugbrautirnar á Keflavíkurflugvelli