Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202028
REKSTRARLAND ER BAKHJARL BÆNDA
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
Pipar\TBW
A
Í Rekstrarlandi fást allar almennar rekstrarvörur fyrir landbúnað. Nilfisk háþrýstidælur,
Exide rafgeymar, gæðasmurefni og olíur á vélarnar, Ecolab lágþrýstiþvottatæki ásamt
hreinsiefnum, sótthreinsandi og græðandi vökvar fyrir spena og júgur.
Í lok mars var haldinn „kickoff“
fundur í nýju verkefni sem
styrkt er af Norðurslóðaáætlun
Evrópusambandsins, Northern
Periphery and Arctic
Programme (NPA). Fundurinn
átti að fara fram í Cork á Írlandi
en vegna COVID-19 varð hann
að fjarfundaráðstefnu.
Landbúnaðarháskóli Íslands
stýrir nýju alþjóðlegu verkefni,
Sustainable Resilient Coasts
(COAST), sem fjallar um þróun
og skipulag strandsvæða og er
styrkt af NPA. Samstarfsaðilar
eru Oulu University of Applied
Sciences, Finnlandi, University
College Cork og Mayo County
Council, Írlandi og Causeway
Coast and Glens Heritage Trust,
Norður-Írlandi.
Þróun strandsvæða á Norður-
slóðum er mikilvægt viðfangsefni
fyrir Ísland og nágrannaþjóðir
okkar. Tilgangur verkefnisins er
að styrkja samkeppnisstöðu svæð-
anna og hjálpa sveitarfélögum við
að þróa tæki sem geta nýst þeim
við að draga úr hagsmunaárekstr-
um og stuðla að sjálfbærri nýtingu
auðlinda á svæðunum í góðu jafn-
vægi við náttúruvernd.
NPA Norðurslóðaáætlunin
Norðurslóðaáætlunin (NPA) er at-
vinnu- og byggðaþróunarsjóður
samstarfslandanna og spannar sam-
starfssvæðið norðurhéruð Noregs,
Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands,
Írlands ásamt Norður-Írlandi,
Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.
Áætluninni er ætlað að stuðla að
samstarfsverkefnum sem miða að
því að finna lausnir á sameiginlegum
viðfangsefnum s.s. að efla nýsköpun
og hvetja til frumkvöðlastarfs, hlúa
að orkuöryggi og stuðla að sjálf-
bærri þróun og varðveislu nátt-
úru, samfélags og menningararfs.
Byggðastofnun hefur umsjón með
þátttöku Íslands í áætluninni.
Skipulag haf- og strandsvæða
Haf- og strandsvæði á
Norðurslóðum búa yfir verð-
mætum náttúruauðlindum og
–gæðum. Sívaxandi samkeppni
er um nýtingu þeirra samhliða
því sem aukin áhersla er lögð á
verndunarsjónarmið. Huga þarf í
auknum mæli að því hvaða áhrif
nýting geti haft á sjálfbærni svæð-
isins að teknu tilliti til umhverfis,
s.s. á líffræðilega fjölbreytni
sam félagsins, s.s á uppbyggingu
innviða og loks efnahagslegs
ávinn ings. Nýtingarmöguleikar
eru fjölbreyttir og snúast t.d. um
matvæla framleiðslu, ferðaþjón-
ustu, náttúru- og fuglaskoðun og
aðra afþreyingar starfsemi. Aukin
starfsemi á haf- og strandsvæðum
hefur ýtt undir þörfina fyrir haf- og
strandsvæðaskipulag til að styðja
við stefnumótun á svæðunum.
Landbúnaðarháskólinn hefur
boðið upp á meistaranám í skipu-
lags fræðum í meira en áratug og
samhliða því hefur byggst upp
þekking innan skólans. Nýlega
fékk LbhÍ leyfi frá menntamála-
ráðuneytinu til að bjóða upp á
doktorsnám í skipulagsfræði.
Mikil þörf er á frekari rannsókn-
um á skipulagsmálum á Íslandi og
er þetta rannsóknarverkefni, sem
styrkt er af Norðurslóðaáætluninni,
liður í að byggja upp rannsóknir í
skipulagsfræðum á Íslandi.
Skipulags- og hönnunardeild
LbhÍ auglýsir eftir doktorsnema
Auglýst hefur verið laus til um-
sóknar staða doktorsnema við
Skipulags- og hönnunardeild
Landbúnaðarháskólans tengt verk-
efninu. Gert er ráð fyrir að um-
sækjendur hafi lokið MS-gráðu í
skipulagsfræði, geti unnið sjálfstætt
og í hóp og hafi góð tök á ensku og
íslensku, sjá nánar á vefsíðu skól-
ans www.lbhi.is.
Doktorsneminn mun vinna með
hópi íslenskra og erlendra vísinda-
manna. Nemanum er ætlað, í sam-
vinnu við leiðbeinendur og aðra
samstarfsaðila, að vinna að undir-
búningi, framkvæmd og úrvinnslu
ákveðins hluta rannsóknarinnar.
Einnig er mikilvægt að neminn þrói
sínar eigin rannsóknarspurningar
innan ramma þessarar rannsóknar.
Nánari upplýsingar
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
Sigríður Kristjánsdóttir og
Christian Schultze leiða íslenska
hluta verkefnisins og veita allar
nánari upplýsingar. Þá má einnig
finna upplýsingar á vef verkefnisins
http://coast.interreg-npa.eu/ /VH
Haf- og strandsvæði á Norðurslóðum búa yfir verðmætum náttúruauðlindum
og -gæðum. Sívaxandi samkeppni er um nýtingu þeirra samhliða því sem
aukin áhersla er lögð á verndunarsjónarmið.
Landbúnaðarháskóli og Menntaskóli Borgarfjarðar:
Sameiginleg gráða til stúdentsprófs og
búfræðings eða garðyrkjufræðings
Undanfarin ár hefur verið
boðið upp á sameiginlega braut
Menntaskóla Borgarfjarðar og
Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar
geta nemendur tekið tveggja ára
nám í MB þar sem megin áherslan
er á kjarnagreinar til stúdentsprófs
og valdar raunvísindagreinar.
Seinni tvö árin eru tekin á
Hvanneyri þar sem starfsmennta-
nám í búfræði fer fram. Nemandinn
útskrifast þá með stúdentspróf frá
MB og sem búfræðingur frá LbhÍ.
Námið ætti að veita nemendum góðan
undirbúning undir störf í garðyrkju-
greinum og landbúnaði en einnig
undir frekara háskólanám í náttúru-
vísindum, búvísindum, dýralækning-
um eða umhverfisfræðum svo dæmi
séu tekin.
Bragi Þór Svavarsson, skólameist-
ari Menntaskóla Borgarfjarðar, segir
að við Menntaskóla Borgar fjarðar
hafi frá upphafi verið lögð mikil
áhersla á að vera í nánu samstarfi við
fyrirtæki og stofnanir í nærumhverfi.
„Samstarf MB og LbhÍ hefur því verið
afar ánægjulegt og komið sér mjög
vel fyrir nemendur MB að geta valið
sér námsbrautina Náttúrufræðibraut
– búfræðisvið.“
Samningurinn endurnýjaður
Rektor LbhÍ segri að í framhaldi af
undirritun samningsins hafi verið
rætt við stjórnendur MB um að út-
víkka samninginn til þess að hann
tæki einnig til garðyrkjugreina LbhÍ
að Reykjum auk þess sem rætt var
við Olgu Lísu Garðarsdóttur,
skólameistara Framhaldsskóla
Suðurlands, um möguleika á sam-
bærilegu samstarfi.“
Spennandi möguleikar
Nú stendur til að bæta við þetta sam-
starf og bjóða upp á að taka sam-
eiginlega gráðu til stúdentsprófs og
garðyrkjufræðings. Þá mun nem-
andinn byrja nám sitt í MB og taka
seinni tvö árin á Reykjum í Ölfusi
þar sem starfsmenntanám í garð-
yrkju fer fram.
Að sögn Guðríðar Helgadóttur,
starfsmenntanámsstjóra við LbhÍ,
hefur lengi verið draumur innan garð-
yrkjunnar að fara af stað með sams
konar fyrirkomulag og í búfræðinni,
að vinna með framhaldsskólum að
sameiginlegri prófgráðu stúdentsprófs
og sérhæfðs starfsmenntanáms.
„Við vonum að sem flest ungt
fólk sjái kosti þess að mennta sig
í garðyrkju, það vantar fólk í garð-
yrkjuna,“ segir Guðríður. /VH
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, brautarstjóri búfræðibrautar, Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir, fyrrverandi skólameistari
Menntaskóla Borgarfjarðar, og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, við undirritun á
endurnýjun samningins.
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Landbúnaðarháskóli Íslands og verkefni um skipulag strandsvæða:
Alþjóðlegt verkefni styrkt af Norðurslóðaáætluninni