Bændablaðið - 23.04.2020, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202034
Akureyri · Sími 465 1332
www.buvis.is
H
ér
að
sp
re
nt
Verð frá kr. 579.000.- án vsk.
Kynntu þér málið!
Eitt fullkomnasta alsjálfvirka mælikerfi sem völ er á - EMC
hárnákvæm magnmæling 200 sinnum á sekúndu. Eini
dreifarinn sem stjórnar og leiðréttir flæði áburðar aðskilið
á sitt hvora skífu. Stöðug leiðrétting á flæði áburðar allan
tímann sem dreift er, enn meiri nákvæmni á fyrstu metrum
dreifingar. Hristingur og halli hefur ekki áhrif á EMC.
Sjálfvirk aðlögun vinnslubreiddar að lögun túnsins.
Beggja megin í einu eða öðru megin.
Afburða dreifigæði, einfalt og þægilegt viðmót, stór skjár þar sem gott er
að fylgjast með dreifingu.
Vinnslubreidd frá 12- 42 metrar - allt að 3200 kg. burðargeta.
Drif í lokuðu olíubaði sem eykur endingu og er viðhaldsfrítt.
Tvöföld pólýhúðun sem eykur endingu dreifara og viðheldur glæsilegu útliti.
Gerir þú kröfu um nákvæmni í dreifingu?
- Aukin nákvæmni felur í sér sparnað til lengri tíma,
betri nýtingu af hverjum hektara og betri hey.
Framúrskarandi
áburðardreifarar frá RAUCH
www.rauch.de
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
UTAN ÚR HEIMI
Landbúnaður á Norðurlöndum í COVID-19 krísu:
Skortur á erlendu starfsfólki og
hækkandi fóðurverð áhyggjuefni
– Svíar hafa áhyggjur af skógariðnaði vegna hruns í útflutningi til Bretlands
Norrænu Bændasamtökin eiga í
samstarfi í gegnum NBC-samtökin
og hafa fundað vikulega eftir að
kórónakrísan fór að hafa veruleg
áhrif á Norðurlöndunum.
Það sem er sammerkt með
löndunum er áhyggjuefni af að
útvega starfsfólk erlendis frá í land-
búnaði ásamt hækkandi fóðurverði
sem hefur sérstaklega áhrif á eggja-
og kjúklingabændur. Að öðru leyti
gengur landbúnaður sinn vanagang
í löndunum og innlend framleiðsla
fær alls staðar mikinn meðbyr í þjóð-
félagsumræðunni.
Eftir páska var Danmörk opnuð
aftur í áföngum eins og til dæmis
for- og barnaskólar. Skólar á ung-
linga- og háskólastigi eru enn lok-
aðir. Frá og með 20. apríl var „einn
á einn“-fyrirtækjum, eins og tann-
lækna- og hárgreiðslustofur, opnað
aftur. Veitingastaðir, barir og smærri
verslanir verður haldið lokuðu fram í
miðjan maí sem hefur neikvæð áhrif
á verð matvæla.
Stærri hátíðahöldum, tónleik-
um og mörkuðum er frestað í það
minnsta til ágústmánaðar. Þetta
hefur áhrif á fyrirtæki í matvæla-
iðnaði sem þjónusta þessa staði þar
sem velta þeirra hefur hrunið og
verða því þau háð ríkisstyrkjum til
að halda velli.
Í Danmörku hafa umræður,
líkt og á hinum Norðurlöndunum,
um starfskrafta verið í fyrirrúmi.
Í Danmörku hafa ekki verið sótt-
kvísreglur fyrir erlent starfsfólk sem
kemur inn í landið sýni það fram á
heilbrigði, en fagfélög hafa staðið
í ströngu við stjórnvöld að fá inn
ákveðnar sóttkvísreglur varðandi
þennan málaflokk.
Landbúnaður gengur vel í
Danmörku ásamt útflutningi en þó
er hætta talin á að bændur innan
græna geirans komi verst út úr þessu
tímabili.
Viðræður eru við stjórnvöld um
að tryggja að Evrópusambandið
verði í framtíðinni uppbyggilegra
og betur í stakk búið að huga að því
hvernig innri markaður sambandsins
virki sem best. Hætta er á aukinni
þjóðernishyggju og verndarstefnu
við slíkar krísur sem hefur að vissu
leyti sýnt sig.
Áhyggjur af að útvega starfsfólk
Í Finnlandi hafa menn áhyggjur
af að fá nægilega margt starfsfólk
til að starfa í landbúnaði í ár en á
ári hverju starfa um 20 þúsund
manns tímabundið við landbúnað
þar í landi. Sóttkvísreglur í 14 daga
gilda um þá sem koma erlendis frá
en um 1.500 manns hafa komið
undanfarnar vikur til starfa í land-
búnaði erlendis frá, flestir með bát
frá Eystrasaltslöndunum. Mestar
áhyggjur eru af því að útvega
starfsfólk í græna geirann og hafa
vinnumiðlunarskrifstofur sett í gang
átak til að fá fleiri til liðs við land-
búnaðinn. Margir starfsmenn óska
eftir að koma frá Úkraínu, um þús-
und manns, og aðstoða nú finnsku
bændasamtökin við að finna hag-
kvæmar flutningsleiðir fyrir þá. Líkt
og í Danmörku eiga fyrirtæki sem
afhenda beint til matvælaþjónustu-
fyrirtækja erfitt uppdráttar en stjórn-
völd hafa lofað að koma til móts
við þennan geira. Mestar áhyggjur
eru af skógariðnaði í Finnlandi,
líkt og í Svíþjóð, þar sem smærri
sögunarmyllur eiga erfitt uppdráttar
og nokkrum þeirra hefur verið lokað
sem skýrist helst í hruni á útflutningi
á timbri. Landbúnaður stendur að
öðru leyti ágætlega í Finnlandi, verið
er að breyta ræktunarkerfum til að
auka innlenda framleiðslu á prótín-
fóðri og ríkisstjórnin hefur komið
fram með björgunarpakka upp á 30
milljónir evra til aðstoðar við lítil og
meðalstór fyrirtæki.
Skógariðnaðurinn í vanda
Svíar hafa áhyggjur af skógariðnaði
þar sem útflutningsmarkaður til
Bretlands er hruninn sem hefur
mikil áhrif. Líkt og í Finnlandi herja
skaðræðisbjöllur á grenitré í landinu
svo gripið hefur verið til þess ráðs á
ákveðnum stöðum að taka enn meira
timbur úr skógunum en í venjulegu
árferði og nú eru uppi umræður um
fjárhagslegan stuðning til að geyma
timbrið. Einnig hefur umræðan um
starfsfólk í landbúnaði verið rík hér
líkt og á hinum Norðurlöndunum
og ræddar eru mismunandi lausnir
við vandanum, meðal annars að
stjórnvöld gefi eftir í reglum og sýni
sveigjanleika.
Umræður hafa verið uppi um
að geta útvegað hefðbundið fóður
í stað lífræns ræktaðs prótínfóðurs
sem hefur verið erfitt að útvega
vegna hafta á innflutningi. Sænskum
landbúnaði er hvarvetna lyft upp í
þjóðfélagsumræðunni og mikilvægi
hans aldrei meira en nú.
Gott hljóð í bændum
Í Noregi er byrjað að slaka á höftum
og opnuðu leikskólar 20. apríl og
þann sama dag var bann við að
nota sumarbústaði fellt úr gildi.
Viku síðar, 27. apríl, byrjar skóla-
starf fyrir 1.–4. bekk ásamt nemum í
starfsnámi á efsta stigi. Í apríl verður
„einn á einn“-fyrirtækjum, það er
að segja tannlækna- og hárgreiðslu-
stofum, leyft að opna og frá og með
15. júní verður leyft að halda smærri
menningarviðburði.
Ríkisstjórnin hefur komið til
móts við norsku bændasamtökin
með bætur fyrir vörur sem ekki
er hægt að uppskera vegna skorts
á starfsfólki. Fleiri bótalausnir eru
í farvatninu eins og varðandi upp-
skerubrest og fleira.
Hækkandi fóðurverð er áhyggju-
efni, sérstaklega fyrir eggja- og
kjúklingabændur. Enn eru sóttkvís-
reglur í gildi fyrir erlent vinnuafl og
hefur ríkisstjórnin sagt nei við að fá
inn starfsfólk frá löndum utan EES.
Landbúnaðarráðherra hefur gefið
út yfirlýsingu til bænda að halda
uppteknum hætti og framleiða líkt
og áður. Gott hljóð er í flestum
bændum í Noregi og hafa fáir innan
greinarinnar sýkst af kórónavírusn-
um. /ehg
Viðræður eru við stjórnvöld um að tryggja að Evrópusambandið verði í framtíðinni uppbyggilegra og betur í stakk
búið að huga að því hvernig innri markaður sambandsins virki sem best.
Nýtt nám í sjálfbærum matarupplifunum
Nú nýverið var nýtt nám sam-
þykkt í Noregi í sjálfbærum
matarupplifunum og er það
fyrsta sinnar tegundar í heimin-
um. Fyrir er sérstök námslína í
Harðangursfirði í svæðisbundn-
um matvælum sem hefur verið
rekið undanfarin tvö ár við
góðan róm.
Áætlað er að fyrstu nemendur
geti útskrifast úr nýja náminu frá
fagskólanum í Nordland sumarið
2023. Markmiðið með náminu er
að fara til baka í grunn virðiskeðj-
unnar.
„Samfélagið þarf fagfólk með
heildrænan skilning á þeim áskor-
unum sem heimurinn stendur
frammi fyrir þegar kemur að mat-
vælaframleiðslu og -neyslu,“ segir
Eva Narten Høberg hjá NIBIO en
hún rannsakar matarmenningu og
hefur ábyrgð á nýja námstilboðinu.
„Við verðum að hafa kunnáttu á
framleiðslugrunninum í norskri
náttúru og um það hvaða úrræði þarf
til að framleiða matinn okkar. Hvað
einkennir til dæmis meltingarkerfi
hjá grasætum, eins og hjá kúm?
Hvernig getum við framleitt mjólk
samtímis sem við tökum tillit til
menningarlandslagsins, líffræði-
legs fjölbreytileika, loftslagsins,
dýravelferðar og næringargæða í
mjólkinni? Þetta nýja nám mun
auka sérþekkingu og meðvitund á
náttúru- og menningargildum sem
nýtt er við framleiðsluna.
/Bondebladet - ehg
Áhrif COVID-19 á landbúnað í Bandaríkjunum:
Kjötvinnsla dregst saman, uppskera
skemmist og mjólk hellt niður
Fyrr í þessum mánuði var
einu stærsta svínasláturhúsi í
Bandaríkjum Norður-Ameríku
lokað eftir að rúmlega 200 starfs-
menn greindust jákvæðir fyrir
COVID-19. Um svipað leyti
komu upp smit í kjötafurðastöð
í Colorado-ríki og fimm afurða-
stöðvum í Kanada. Dregið hefur
verið úr starfsemi fyrirtækjanna
eða þeim lokað.
Grænmetisbændur í Suðurríkjum
Bandaríkjanna eiga í vandræðum með
að ráða til sín fólk til uppskerustarfa.
Ekki er þar með sagt að skortur sé
á kjöti í Bandaríkjunum þar sem mikið
er til af frystu kjöti og flest sláturhús
og afurðastöðvar í landinu eru enn
starfandi. Yfirvöld og almenningur í
landinu er þrátt fyrir það áhyggjufull
og óttast að aukin útbreiðsla COVID-
19 muni leiða til frekari lokana.
Bændur sem ala gripi í húsum ótt-
ast að ef fleiri sláturhús og afurða-
stöðvar loki muni safnast upp hjá
þeim sláturgripir sem erfitt er að
hýsa og vandamál að losna við eftir
að faraldurinn gengur yfir. Auk þess
sem mjög gengur á frystipláss vegna
minnkandi sölu.
Sala og verð á svínakjöti hefur
lækkað vegna lokana afurðastöðv-
anna vegna ótta neytenda við að smit
geti borist í fólk með því og vegna
minnkandi sölu til veitingahúsa.
Á sama tíma og grænmetis- og
ávaxtauppskera í Suðurríkjum
Bandaríkjanna er með allra mesta
móti eiga bændur í vandræðum með
að ráða til sín fólk til uppskerustarfa
og víða eru ávextir og grænmeti að
skemmast á ökrunum vegna ofþroska.
Kúabændur í Wisconsin, Vermont
og öðrum ríkjum Bandaríkjanna eru
farnir að hella niður mjólk í miklu
magni eða nota hana sem áburð á
akra. Ástæða þessa er sögð vera
margir samverkandi þættir og að
í mörgum tilfellum sé einfaldlega
hætt að sækja mjólkina til dæmis alla
daga og að hún skemmist af þeim
sökum. /VH