Bændablaðið - 23.04.2020, Page 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202036
Á FAGLEGUM NÓTUM
Í ljósi þess heimsfaraldurs
sem nú gengur yfir er farið
að ræða í vaxandi mæli um
leiðir til að bæta bæði fæðu- og
matvælaöryggi þjóða. Á meðal
þess sem nú er víða ofarlega
á baugi er efling rannsókna
og kennslu í búvísindum og
dýralæknisfræðum til að
renna styrkari stoðum undir
l a n d b ú n a ð a r f r a m l e i ð s l u ,
sérstaklega á heimaslóðum. Alltaf
mun reynast best hinn holli,
heimafengni baggi.
Mikill landbúnaður í Wales
Gott dæmi um markvissa viðleitni
til að efla landbúnað er sú ákvörðun
Aberystwyth-háskóla í Wales
frá 28. febrúar sl. að opna nýjan
dýralæknaskóla sem tekur við fyrstu
nemendunum í september 2021.
Þar í bæ hefur verið búvísindanám
á háskólastigi síðan árið 1878 en
háskóli var stofnaður þar árið 1872.
Því eiga kennsla og rannsóknir í
þágu landbúnaðar sér langa sögu
í Aberystwyth, bæði á sviðum
búfjárræktar og jarðræktar, enda
Wales þekkt innan Bretlandseyja
fyrir blómlegar sveitir og mikla
matvælaframleiðslu af ýmsu tagi.
Góður faglegur grundvöllur
Reyndar er liðin rúmlega öld síðan
rannsóknir á búfjársjúkdómum og
kennsla um þá hófst í tengslum
við búvísindanámið í Aberystwyth
og dýralæknar hafa lengi verið
á meðal kennaraliðsins. Naut
höfundur góðs af á námsárunum í
Aberystwyth 1966–1972. Ákveðið
skref var stigið í september 2015
þegar stofnað var til sérstakrar
þriggja ára B.Sc. námsbrautar
í lífvísindum með áherslu á
dýrasjúkdóma. Próf af henni hefur
gefið góða starfsmöguleika og er
sagt prýðilegur undirbúningur undir
námið í nýja dýralæknaskólanum.
Nú hefur skrefið verið stigið
til fulls með stofnun fyrsta
dýralæknaskólans í Wales en
til þessa hafa þeir næstu verið í
Liverpool og Bristol í Englandi.
Tilhögun dýralæknanámsins
Náminu í hinum nýja dýra-
læknaskóla í Aberystwyth verður
þannig háttað að kennslan verður
þar fyrstu tvö árin, en þrem síðari
árunum verja nemendurnir í
Konunglega Dýralæknaskólanum
(Royal Veterinary College - RVC)
í Hawkshead í Hertfordshire,
skammt norður af Lundúnum. Því
verða dýralæknar með B.V.Sc.
gráðu útskrifaðir af skólunum tveim
í sameiningu. Prófessor Christianne
Glossop, yfirdýralæknir í Wales,
og prófessor Stuart Reid, rektor
Konunglega Dýralæknaskólans,
hafa bæði lýst yfir mikilli ánægju
með þetta samstarf skólanna sem
þau telja að muni verða til heilla
fyrir kennslu, rannsóknir og störf
dýralækna í Wales og víðar í
framtíðinni. Nýi dýralæknaskólinn
í Aberystwyth verður hluti þeirrar
stofnunar Háskólans í Aberystwyth
sem sameinar þau vísindi sem
snúa að líffræði, umhverfi og
landbúnaði (Institute of Biology,
Environmental and Rural Sciences
– IBERS) og verður til húsa í
fræðasetri sem er að rísa á Penglais
hæð, kostað að hluta með gjafafé
frá fyrrverandi nemendum. Þess má
geta að þaðan er fögur útsýn yfir
gamla bæinn og Cardigan-flóa.
Áhersla á gæði kennslu
og ánægju nemenda
Flestir okkar ágætu dýralækna hafa
numið í Danmörku, Noregi og
Þýskalandi, fáir á Bretlandseyjum.
Vegna tengsla minna við Háskólann
í Aberystwyth, allt frá námsárunum
þar, er mér kunnugt um að mikið
hefur verið lagt í undirbúning nýja
dýralæknaskólans um all langt
árabil. Því ættu íslenskir stúdentar
sem hafa hug á dýralæknanámi
að kanna þá kosti sem bjóðast
þar þegar kemur að umsóknum
til erlendra háskóla. Eitt er víst
að Háskólinn í Aberystwyth nýtur
mikil álits á Bretlandseyjum.
Bæði árin 2018 og 2019 fékk hann
sérstaka viðurkenningu vegna
gæða kennslunnar og nú í ár, 2020,
hlýtur hann viðurkenningu sem
besti háskólinn í Wales (The Sunday
Times Good University Guide). Þá
fékk hann á liðnu ári næsthæstu
einkunn allra breskra háskóla fyrir
ánægju nemenda með námið og
aðstöðu til þess (National Student
Survey).
Upplýsingar um nýja dýra-
læknaskólann í Aberystwyth er að
finna á https://www.aber.ac.uk/en/
vet-sci/ Einnig má senda tölvupóst
til Arthur Dafis upplýsingafulltrúa í
netfangið: aid@aber.ac.uk
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
oldyrm@gmail.com
Höfundur er fulltrúi Íslands
sem tengiliður í hópi
fyrrverandi erlendra nema
við Háskólann í Aberystwyth í
Wales ( International Alumni
Services).
Fremst á myndinni er elsta bygging Aberystwyth Háskóla í Wales, upprunalega reist sem hótel fyrir járnbrautina
frá London í Englandi, 300 km. í burtu. Í háskólanum eru nú um 8.000 stúdentar. Nýi dýralæknaskólinn er að rísa
á Penglais hæð sem grillir í efst t.v. á myndinni. Þar eru nú flestar deildir og stúdentagarðar háskólans til húsa. Í
baksýn er Rheidol dalur og lengst t.h. á myndinni er Dinas hæð.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Blómleg sveitabyggð í Ceredigion sýslu við Cardigan flóa, skammt frá
Aberystwyth. Helstu búgreinarnar eru sauðfjárrækt og nautgriparækt, bæði
mjólkur og kjötframleiðsla. Bændur í Wales leggja mesta áherslu á að nýta
graslendi sem best, bæði til beitar og fóðuröflunar. Lífræn ræktun, studd
búvísindarannsóknum í Aberystwyth Háskóla, hefur eflst mikið síðustu
áratugina.
Styrkur til fjögurra ferðamannaverkefna:
Fjögur fuglaskoðunarskýli
reist á norðausturhorni
Fjögur verkefni á Norður-
landi eystra hlutu styrki úr
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða sem úthlutað var úr á
dögunum.
Verkefnið Fuglastígur á Norð-
austurlandi hlaut hæsta styrkinn í
fjórðungnum, 23 milljónir króna
til byggingar fuglaskoðunarskýla
á fjórum stöðum; við Nýpslón í
Vopnafirði, fuglaskoðunarskýli
við Skoruvíkurbjarg á Langanesi,
fugla- og selaskoðunarskýli við
Bakkahlaup í Öxarfirði og skýli
til fuglaskoðunar og útivistar í
Skipshólma á Vopnafirði ásamt
göngustíg þangað.
Verkefnið byggir á sérstöðu
Norðausturlands sem eins fjölbreyti-
legasta fuglaskoðunar héraðs landsins
en það sameinar náttúruvæna ferða-
mennsku og snjalla hönnun og er til
þess fallið að auka ferðamennsku á
veiku svæði og á veikri árstíð.
Þingeyjarsveit hlaut 16 millj-
óna króna styrk til úrbóta á sal-
ernisaðstöðu við Aldeyjarfoss.
Mývatnsstofa hlaut 4,5 milljónir
króna til að bæta öryggi og upp-
lýsingagjöf í Dimmuborgum, en
styrkurinn verður nýttur í að auka
upplýsingagjöf með skiltagerð á
Hallarflöt og í Jólasveinahelli þar
sem jólasveinarnir í Dimmuborgum
taka á móti gestum allt árið um kring.
Tjaldsvæðið Systragil hlaut 850
þúsund krónur til að bæta merkingar
og tengingu við Þingmannaleið yfir
Vaðlaheiði. Merkingar verða bættar
og tenging við Þingmannaleið, sem er
gömul þjóðleið yfir Vaðlaheiði milli
Þingeyjarsýslu og Eyjafjarðarsýslu.
Upphaf Þingmannaleiðar er við
Systragil og þar verður sett upp
upplýsingaskilti, gera á göngustíg
og stika leiðina um tveggja kílómetra
leið upp heiði að heiðargirðingu
þar til vörður fara að sjást ofan við
girðingu, en fyrstu vörðurnar kallast
Systravörður. /MÞÞ