Bændablaðið - 23.04.2020, Síða 36

Bændablaðið - 23.04.2020, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202036 Á FAGLEGUM NÓTUM Í ljósi þess heimsfaraldurs sem nú gengur yfir er farið að ræða í vaxandi mæli um leiðir til að bæta bæði fæðu- og matvælaöryggi þjóða. Á meðal þess sem nú er víða ofarlega á baugi er efling rannsókna og kennslu í búvísindum og dýralæknisfræðum til að renna styrkari stoðum undir l a n d b ú n a ð a r f r a m l e i ð s l u , sérstaklega á heimaslóðum. Alltaf mun reynast best hinn holli, heimafengni baggi. Mikill landbúnaður í Wales Gott dæmi um markvissa viðleitni til að efla landbúnað er sú ákvörðun Aberystwyth-háskóla í Wales frá 28. febrúar sl. að opna nýjan dýralæknaskóla sem tekur við fyrstu nemendunum í september 2021. Þar í bæ hefur verið búvísindanám á háskólastigi síðan árið 1878 en háskóli var stofnaður þar árið 1872. Því eiga kennsla og rannsóknir í þágu landbúnaðar sér langa sögu í Aberystwyth, bæði á sviðum búfjárræktar og jarðræktar, enda Wales þekkt innan Bretlandseyja fyrir blómlegar sveitir og mikla matvælaframleiðslu af ýmsu tagi. Góður faglegur grundvöllur Reyndar er liðin rúmlega öld síðan rannsóknir á búfjársjúkdómum og kennsla um þá hófst í tengslum við búvísindanámið í Aberystwyth og dýralæknar hafa lengi verið á meðal kennaraliðsins. Naut höfundur góðs af á námsárunum í Aberystwyth 1966–1972. Ákveðið skref var stigið í september 2015 þegar stofnað var til sérstakrar þriggja ára B.Sc. námsbrautar í lífvísindum með áherslu á dýrasjúkdóma. Próf af henni hefur gefið góða starfsmöguleika og er sagt prýðilegur undirbúningur undir námið í nýja dýralæknaskólanum. Nú hefur skrefið verið stigið til fulls með stofnun fyrsta dýralæknaskólans í Wales en til þessa hafa þeir næstu verið í Liverpool og Bristol í Englandi. Tilhögun dýralæknanámsins Náminu í hinum nýja dýra- læknaskóla í Aberystwyth verður þannig háttað að kennslan verður þar fyrstu tvö árin, en þrem síðari árunum verja nemendurnir í Konunglega Dýralæknaskólanum (Royal Veterinary College - RVC) í Hawkshead í Hertfordshire, skammt norður af Lundúnum. Því verða dýralæknar með B.V.Sc. gráðu útskrifaðir af skólunum tveim í sameiningu. Prófessor Christianne Glossop, yfirdýralæknir í Wales, og prófessor Stuart Reid, rektor Konunglega Dýralæknaskólans, hafa bæði lýst yfir mikilli ánægju með þetta samstarf skólanna sem þau telja að muni verða til heilla fyrir kennslu, rannsóknir og störf dýralækna í Wales og víðar í framtíðinni. Nýi dýralæknaskólinn í Aberystwyth verður hluti þeirrar stofnunar Háskólans í Aberystwyth sem sameinar þau vísindi sem snúa að líffræði, umhverfi og landbúnaði (Institute of Biology, Environmental and Rural Sciences – IBERS) og verður til húsa í fræðasetri sem er að rísa á Penglais hæð, kostað að hluta með gjafafé frá fyrrverandi nemendum. Þess má geta að þaðan er fögur útsýn yfir gamla bæinn og Cardigan-flóa. Áhersla á gæði kennslu og ánægju nemenda Flestir okkar ágætu dýralækna hafa numið í Danmörku, Noregi og Þýskalandi, fáir á Bretlandseyjum. Vegna tengsla minna við Háskólann í Aberystwyth, allt frá námsárunum þar, er mér kunnugt um að mikið hefur verið lagt í undirbúning nýja dýralæknaskólans um all langt árabil. Því ættu íslenskir stúdentar sem hafa hug á dýralæknanámi að kanna þá kosti sem bjóðast þar þegar kemur að umsóknum til erlendra háskóla. Eitt er víst að Háskólinn í Aberystwyth nýtur mikil álits á Bretlandseyjum. Bæði árin 2018 og 2019 fékk hann sérstaka viðurkenningu vegna gæða kennslunnar og nú í ár, 2020, hlýtur hann viðurkenningu sem besti háskólinn í Wales (The Sunday Times Good University Guide). Þá fékk hann á liðnu ári næsthæstu einkunn allra breskra háskóla fyrir ánægju nemenda með námið og aðstöðu til þess (National Student Survey). Upplýsingar um nýja dýra- læknaskólann í Aberystwyth er að finna á https://www.aber.ac.uk/en/ vet-sci/ Einnig má senda tölvupóst til Arthur Dafis upplýsingafulltrúa í netfangið: aid@aber.ac.uk Dr. Ólafur R. Dýrmundsson oldyrm@gmail.com Höfundur er fulltrúi Íslands sem tengiliður í hópi fyrrverandi erlendra nema við Háskólann í Aberystwyth í Wales ( International Alumni Services). Fremst á myndinni er elsta bygging Aberystwyth Háskóla í Wales, upprunalega reist sem hótel fyrir járnbrautina frá London í Englandi, 300 km. í burtu. Í háskólanum eru nú um 8.000 stúdentar. Nýi dýralæknaskólinn er að rísa á Penglais hæð sem grillir í efst t.v. á myndinni. Þar eru nú flestar deildir og stúdentagarðar háskólans til húsa. Í baksýn er Rheidol dalur og lengst t.h. á myndinni er Dinas hæð. Dr. Ólafur R. Dýrmundsson. Blómleg sveitabyggð í Ceredigion sýslu við Cardigan flóa, skammt frá Aberystwyth. Helstu búgreinarnar eru sauðfjárrækt og nautgriparækt, bæði mjólkur og kjötframleiðsla. Bændur í Wales leggja mesta áherslu á að nýta graslendi sem best, bæði til beitar og fóðuröflunar. Lífræn ræktun, studd búvísindarannsóknum í Aberystwyth Háskóla, hefur eflst mikið síðustu áratugina. Styrkur til fjögurra ferðamannaverkefna: Fjögur fuglaskoðunarskýli reist á norðausturhorni Fjögur verkefni á Norður- landi eystra hlutu styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða sem úthlutað var úr á dögunum. Verkefnið Fuglastígur á Norð- austurlandi hlaut hæsta styrkinn í fjórðungnum, 23 milljónir króna til byggingar fuglaskoðunarskýla á fjórum stöðum; við Nýpslón í Vopnafirði, fuglaskoðunarskýli við Skoruvíkurbjarg á Langanesi, fugla- og selaskoðunarskýli við Bakkahlaup í Öxarfirði og skýli til fuglaskoðunar og útivistar í Skipshólma á Vopnafirði ásamt göngustíg þangað. Verkefnið byggir á sérstöðu Norðausturlands sem eins fjölbreyti- legasta fuglaskoðunar héraðs landsins en það sameinar náttúruvæna ferða- mennsku og snjalla hönnun og er til þess fallið að auka ferðamennsku á veiku svæði og á veikri árstíð. Þingeyjarsveit hlaut 16 millj- óna króna styrk til úrbóta á sal- ernisaðstöðu við Aldeyjarfoss. Mývatnsstofa hlaut 4,5 milljónir króna til að bæta öryggi og upp- lýsingagjöf í Dimmuborgum, en styrkurinn verður nýttur í að auka upplýsingagjöf með skiltagerð á Hallarflöt og í Jólasveinahelli þar sem jólasveinarnir í Dimmuborgum taka á móti gestum allt árið um kring. Tjaldsvæðið Systragil hlaut 850 þúsund krónur til að bæta merkingar og tengingu við Þingmannaleið yfir Vaðlaheiði. Merkingar verða bættar og tenging við Þingmannaleið, sem er gömul þjóðleið yfir Vaðlaheiði milli Þingeyjarsýslu og Eyjafjarðarsýslu. Upphaf Þingmannaleiðar er við Systragil og þar verður sett upp upplýsingaskilti, gera á göngustíg og stika leiðina um tveggja kílómetra leið upp heiði að heiðargirðingu þar til vörður fara að sjást ofan við girðingu, en fyrstu vörðurnar kallast Systravörður. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.