Bændablaðið - 23.04.2020, Síða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 2020 37
Er hægt að benda á eitthvert
dæmi um að sjúkdómsfaraldur
hafi haft áhrif á þróun
tungumáls? Já, ég hef nýlega
heyrt um eitt slíkt tilfelli og ég
ætla að rekja þá sögu hér.
Árið 1348 barst Svartidauði
til Suðaustur-Evrópu frá Asíu að
því er talið er. Hann barst síðan
hægt norður eftir álfunni enda
voru samgöngur þá með öðrum
hætti en nú tíðkast. Árið 1350 kom
hann til Noregs og lagðist þungt á
marga, m.a. á áhafnir þeirra skipa
sem áttu að sigla til Íslands þá um
sumarið. Ekki tókst að manna
skipin í stað þeirra sem veiktust
illa eða dóu, svo siglingar féllu
niður það sumarið. Ísland var sem
sagt sett í sóttkví að „frumkvæði“
Svartadauða og slapp þess vegna
alveg við veikina í það skiptið.
Veikin lagðist mjög illa á
Norðmenn, ekki síst presta og
munka sem voru oft tilkallaðir að
sjúkrabeðum til að veita dauðvona
fólki sakramentið, og þeim fækk-
að í kjölfarið svo mikið að varla
voru nokkrir eftir sem kunnu að
lesa og skrifa í Noregi. Til þess
að geta gert kaupsamninga eða
annað sem þurfti nauðsynlega
að festa á skinn þá voru fengnir
lærðir menn frá Danmörku og upp
frá því fór norskan að breytast og
líkjast dönsku, þó sérstaklega í
kaupstöðum en minna á afskekkt-
um svæðum þar sem enn má heyra
orð sem láta kunnuglega í eyrum
Íslendinga.
Íslendingar áttu seinna eftir
að finna fyrir áhrifum veikinnar
í Noregi þegar spurn eftir afrit-
um af konungasögum og öðrum
bókmenntum íslenskum fór að
minnka vegna þess að Norðmenn
hættu að skilja íslensku, eins og
lesa má í „Öldinni fjórtándu“ fyrir
árið 1393.
Faraldurinn varð líka til að
veikja konungsvaldið í Noregi
og átti þátt í því að Noregur og
um leið Ísland bundust Danmörku
og Svíþjóð í sameiginlegu
konungsveldi, en það er önnur
saga. – Þorsteinn Guðmundsson
Bændur standa
þétt saman
Meginverkefni Bændasamtaka Íslands er að gæta
hagsmuna stéttarinnar. Félagsleg samstaða er dýrmæt
og öflug starfsemi samtakanna eykur slagkraft bænda.
Með aðild að BÍ njóta félagsmenn ýmissa réttinda og
afsláttarkjara á þjónustu.
Breytingar á félagsgjöldum BÍ voru ákveðnar á síðasta Búnaðarþingi. Framvegis verða
félagsgjöldin þrepaskipt og veltutengd. Núverandi félagsmönnum er bent á að yfirfara
sína skráningu á Bændatorginu og gefa upp sína veltu af landbúnaðartengdri starfsemi.
Gefinn er frestur út apríl til að ganga frá skráningu á Bændatorginu. Þeir félagsmenn sem
ekki skrá sitt veltubil fyrir apríllok geta átt von á að það verði áætlað.
Breytt félagsgjöld
Aðild að Bændasamtökunum borgar sig
Fylgstu með bændum á Facebook og bondi.is
Fyrir okkur öll
Við bjóðum nýja félagsmenn velkomna.
Hægt er að skrá sig í samtökin inni á vefnum bondi.is
Fulltrúar BÍ svara fyrirspurnum í síma 563-0300 og í netfangið bondi@bondi.is.
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
IAE
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
MÁLFAR&MÁLNOTKUN
Áhrif sjúkdómsfaraldra
á tungumál