Bændablaðið - 23.04.2020, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. apríl 202042
SAUÐFÉ&BURÐARHJÁLP
Burðarhjálparmynd-
bönd á YouTube
– Íslenskar leiðbeiningar vegna algengra vandamála á sauðburði
Ný myndbandarás hefur verið
stofnuð á YouTube með það að
markmiði að auðvelda bændum
burðarhjálpina á sauðburðinum
þegar snúin vandamál koma upp.
Það er Karólína Elísabetudóttir,
sauðfjárbóndi og rithöfundur í
Hvammshlíð, sem hefur haft veg og
vanda að verkefninu; faglega umsjón
með leiðbeiningunum hefur Axel
Kárason í Vík (Staðarhreppi), dýra-
læknir og búfræðingur. Þau fengu
til liðs við sig sauðfjárbændur víðs
vegar að við upptökur á kennslu-
myndböndunum.
Karólína segir að hún hafi auðvit-
að rekið sig sjálf á að ekki gangi alltaf
allt smurt á sauðburði. „Reyndir
sauðfjárbændur geta auðvitað leyst
flest vandamál en sumar uppákomur
eru sjaldgæfar eins og legsnúningur
eða að lambið ber mjög skakkt að.
Auk þess er sum vandamál erfiðara
að leysa en hin, til dæmis ef stórt
lamb kemur afturábak. Þá er gott
að geta horft á myndbönd þar sem
aðrir bændur sýna hvernig þeir finna
út úr þessu og þar sem dýralæknir
útskýrir með hjálp líkans hvað er
eiginlega að gerast inni í kindinni
á meðan. Ekki síst þegar börnin eru
að læra burðarhjálp eða minna vant
aðstoðarfólk eru upplýsingar sem
þessar ómetanlegar,“ segir hún.
Fyrsta leiðbeiningarefni
sinnar tegundar
„Svoleiðis efni, sem miðar auk
þess við íslenskar aðstæður, hafði
ekki verið til. Jafnvel á öðrum
tungumálum eru skýr og skipu-
lögð leiðbeiningarmyndbönd afar
sjaldgæf. Youtube-rásin heitir
Leiðbeiningarefni um burðarhjálp
og er öllum opin og aðgangur er
ókeypis. Um 15 mismunandi mynd-
bönd – á milli 3 og 17 mínútur að
lengd – eru nú þegar aðgengileg þar
og bætast fleiri við á næstunni. Verið
er að útbúa eins konar ákvarðanatré,
sem hjálpar við að finna myndbandið
sem á best við í hvert skiptið,“ segir
Karólína sem sér sjálf um skipulag,
upptökur og uppsetningu. Axel
kemur sjálfur fram sem leiðbeinandi
í myndböndunum.
Upptökur frá 2016
Að sögn Karólínu hófust upp-
tökurnar á sauðfjárbúum vorið
2016 í Hvammshlíð, en megin-
parturinn hafi verið tekinn upp
2019 á Halldórsstöðum í Skagafirði,
svo í Breiðavaði, Steinnesi,
Sölvabakka og Stafni í Austur-
Húnavatnssýslu. „Auk þess bárust
upptökur frá öðrum bæjum svo sem
Helgafelli á Snæfellsnesi, Hrísum
í Borgarfirði, Hofi í Vatnsdal og
Höfða I í Grýtubakkahreppi. Fram
koma þaulreyndir bændur eins
og Einar Kári Magnússon, Jón
Árni Magnússon, Anna Margrét
Jónsdóttir, Sævar Sigurðsson,
Bjarki Benediktsson, Stefanía
Egilsdóttir, Sigursteinn Bjarnason,
Þórdís Sigurbjörnsdóttir, Lára Björg
Björgvinsdóttir, Jón Gíslason og
Ásta F. Flosadóttir.
Síðan er notast við líkan af
Kallað eftir myndefni og upptök-
um af sjaldgæfum vandamálum
Af sumum frekar sjaldgæfum vandamálum ásamt lausn er enn bara
lítið eða ekkert myndefni til. Því eru upptökur, helst myndbönd,
vel þegnar:
• legsnúningur,
• skeiðarsig,
• notkun magaslöngu hjá lambi sem getur ekki kyngt sjálft
• keisaraskurður.
Myndgæði skipta engu máli í þessu tilfelli og heldur ekki hvort allt sé
vísindalega „rétt“ framkvæmt, öll dæmi gera gagn. Best er ef upplausnin
er góð og ef myndin er lárétt, ekki lóðrétt, en allt efnið er vel þegið. Það
má senda á burdarhjalp@gmail.com eða í FB-skilaboðum (Karólína í
Hvammshlíð) – eins með ábendingar og nýstárlegar aðferðir.Suðurhrauni 12b - 210 Garðabæ | 545 4600 | Fax 545 4601 | metal@metal.is
Skjámynd af rásinni á YouTube.
Afturábak. Skjámynd úr leiðbeiningarmyndbandi.
Afturábak. Ærin á bakinu. Skjámynd af Berglindi Bjarnadóttur og Jóni Árna
Magnússyni, Steinnesi, vinna saman.