Fréttablaðið - 26.05.2020, Page 11
Ríkisstjórnin þarf ekki frekari hvatningu. Þegar ríkið er farið að borga fyrirtækjum
fyrir að reka fólk hljóta allar góðu
hugmyndirnar að vera búnar.
Með hlutabóta-leiðinni átti að
borga fyrirtækjum fyrir að reka
ekki fólk. En skömmu síðar ákvað
ríkisstjórnin að borga laun starfs-
fólks einkafyrirtækja… í uppsagn-
arfresti. Sem sagt: að borga fyrir-
tækjum fyrir að reka fólk.
Hlutafé bjargað
Ef fyrirtæki geta ekki greitt laun
í uppsagnarfresti eru þau í reynd
gjaldþrota og þá er þegar til sjóður,
Ábyrgðasjóður launa, sem gerir
upp vangoldin laun við slíkar
aðstæður.
Þegar ríkið ákveður að greiða
laun í uppsagnarfresti án kröfu um
gjaldþrot er það því varla að verja
atvinnu eða tekjur launafólks. Það
er að verja hlutafé.
Hlutafélög með takmarkaða
ábyrgð eru stórkostleg uppfinning.
Þau gera fólki mögulegt að fara út í
rekstur án þess að hætta á að tapa
aleigunni ef reksturinn gengur
ekki vel. En þeir sem leggja til eða
kaupa hlutafé vita líka að þetta er
alltaf áhættufjárfesting sem getur
auðveldlega glatast öll. Það gerist
líka oft.
Ef þeir sem fyrirtækið skuldar
hafa trú á því að það geti starfað
áfram og greitt til baka þá geta þeir
samið um af borganir og haldið
fyrirtækinu lifandi. En ef kröfu-
hafarnir hafa sjálfir ekki slíka trú
er ekki sjálfgefið að ríkið eigi að
leysa þá af hólmi og gefa fyrirtæk-
inu peninga til að það geti haldið
sér á f loti. Raunar ætti það helst
aldrei að gera það.
Markaðslögmálin skekkt
Mörgum aðgerðum ríkisins er
ætlað hvort tveggja: að a) bjarga
stöndugum fyrirtækjum og b) ekki
gefa pening til fyrirtækja sem þurfa
hann ekki (sem sagt: stöndugra
fyrirtækja). Þetta er augljós inn-
byrðis mótsögn sem skapar furðu-
legar leikreglur á markaði.
Ímyndum okkur tvö fyrirtæki:
Vel rekið ehf. og Illa rekið ehf.
sem eru í samkeppni hvort við
annað. Vel rekið ehf. hefur safnað
í sjóði til að bregðast við breyttum
aðstæðum en Illa rekið ehf. ekki.
Nú kemur kreppa og ríkið hleður í
aðgerðapakka sem fyrirtækin ráða
hvort þau þiggja.
Við vitum að:
Illa rekið ehf. fer á hausinn án
ríkisaðstoðar en tórir með því að
nýta sér hana.
Vel rekið ehf. tórir án ríkisað-
stoðar en dafnar með því að nýta
sér hana.
Stjórnendur Illa rekins ehf. sækja
augljóslega um ríkisaðstoð. Enginn
segir neitt við því. En stjórnendur
Vel rekins ehf. eru í vanda. Stjórn-
endurnir átta sig á því að það kunni
að vekja neikvætt umtal ef sótt er
um ríkisaðstoð sem fyrirtækið þarf
Góðu hugmyndirnar búnar
Pawel
Bartoszek
borgarfulltrúi
Viðreisnar
strangt til tekið ekki.
Niðurstaðan er að bæði fyrir-
tækin tóra. Ríkið hefur því tekið
að sér að auka jöfnuð milli þeirra.
En þótt maður geti hafa þá skoðun
að ríkið eigi að tryggja ákveðinn
jöfnuð milli fólks af holdi og blóði
hefur ríkið einfaldlega ekkert að
gera með að auka jöfnuð milli
fyrirtækja á frjálsum markaði. Þar
á samkeppnin ein að ríkja. Almenn
lækkun opinberra gjalda er sann-
gjarnari leið en einhverjar matar-
gjafir til bágstaddra hlutafélaga.
Nóg af þessu í bili
Auðvitað er rétt að reyna að halda
uppi atvinnustigi og tryggja að
velferðarkerfið geti tekið á móti
þeim sem nú missa vinnuna. En
aðgerðir ríkisvaldsins eru þegar
orðnar mjög dýrar. Það sem kynnt
hefur verið kostar 350 milljarða.
Stór hluti þeirra aðgerða miðar
að því að breyta leikreglum frjáls
markaðar og að lágmarka tap
vegna áhættufjárfestinga. Það má
spyrja sig hvort það sé til lengdar
skynsamlegt.
Kæli- og frystiskápar á tilboði.
Ferskari matvæli og minni matarsóun með Siemens og Bosch kæliskápum.
Með hyperFresh tækni heldur kæliskápurinn ávöxtum, grænmeti og nýjum
kjötvörum ferskum allt að tvisvar til þrisvar sinnum lengur. Matarsóun
minnkar, peningar sparast og umhverfisvitund eykst.
Allt að 26% afsláttur af völdum kæliskápum í maí.
Fimm ára ábyrgð á öllum heimilistækjum.
Einfalt að versla í netverslun okkar.
Tilboð gilda til og með 5. júní eða á meðan birgðir endast.
Smith & Norland er bæði Siemens og Bosch-umboðið á Íslandi og sinnir
varahluta- og viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði á eigin verkstæði.
Þegar ríkið ákveður að
greiða laun í uppsagnar-
fresti án kröfu um gjaldþrot
er það því varla að verja at-
vinnu eða tekjur launafólks.
Það er að verja hlutafé.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 2 6 . M A Í 2 0 2 0