Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 11
Ríkisstjórnin þarf ekki frekari hvatningu. Þegar ríkið er farið að borga fyrirtækjum fyrir að reka fólk hljóta allar góðu hugmyndirnar að vera búnar. Með hlutabóta-leiðinni átti að borga fyrirtækjum fyrir að reka ekki fólk. En skömmu síðar ákvað ríkisstjórnin að borga laun starfs- fólks einkafyrirtækja… í uppsagn- arfresti. Sem sagt: að borga fyrir- tækjum fyrir að reka fólk. Hlutafé bjargað Ef fyrirtæki geta ekki greitt laun í uppsagnarfresti eru þau í reynd gjaldþrota og þá er þegar til sjóður, Ábyrgðasjóður launa, sem gerir upp vangoldin laun við slíkar aðstæður. Þegar ríkið ákveður að greiða laun í uppsagnarfresti án kröfu um gjaldþrot er það því varla að verja atvinnu eða tekjur launafólks. Það er að verja hlutafé. Hlutafélög með takmarkaða ábyrgð eru stórkostleg uppfinning. Þau gera fólki mögulegt að fara út í rekstur án þess að hætta á að tapa aleigunni ef reksturinn gengur ekki vel. En þeir sem leggja til eða kaupa hlutafé vita líka að þetta er alltaf áhættufjárfesting sem getur auðveldlega glatast öll. Það gerist líka oft. Ef þeir sem fyrirtækið skuldar hafa trú á því að það geti starfað áfram og greitt til baka þá geta þeir samið um af borganir og haldið fyrirtækinu lifandi. En ef kröfu- hafarnir hafa sjálfir ekki slíka trú er ekki sjálfgefið að ríkið eigi að leysa þá af hólmi og gefa fyrirtæk- inu peninga til að það geti haldið sér á f loti. Raunar ætti það helst aldrei að gera það. Markaðslögmálin skekkt Mörgum aðgerðum ríkisins er ætlað hvort tveggja: að a) bjarga stöndugum fyrirtækjum og b) ekki gefa pening til fyrirtækja sem þurfa hann ekki (sem sagt: stöndugra fyrirtækja). Þetta er augljós inn- byrðis mótsögn sem skapar furðu- legar leikreglur á markaði. Ímyndum okkur tvö fyrirtæki: Vel rekið ehf. og Illa rekið ehf. sem eru í samkeppni hvort við annað. Vel rekið ehf. hefur safnað í sjóði til að bregðast við breyttum aðstæðum en Illa rekið ehf. ekki. Nú kemur kreppa og ríkið hleður í aðgerðapakka sem fyrirtækin ráða hvort þau þiggja. Við vitum að: Illa rekið ehf. fer á hausinn án ríkisaðstoðar en tórir með því að nýta sér hana. Vel rekið ehf. tórir án ríkisað- stoðar en dafnar með því að nýta sér hana. Stjórnendur Illa rekins ehf. sækja augljóslega um ríkisaðstoð. Enginn segir neitt við því. En stjórnendur Vel rekins ehf. eru í vanda. Stjórn- endurnir átta sig á því að það kunni að vekja neikvætt umtal ef sótt er um ríkisaðstoð sem fyrirtækið þarf Góðu hugmyndirnar búnar Pawel Bartoszek borgarfulltrúi Viðreisnar strangt til tekið ekki. Niðurstaðan er að bæði fyrir- tækin tóra. Ríkið hefur því tekið að sér að auka jöfnuð milli þeirra. En þótt maður geti hafa þá skoðun að ríkið eigi að tryggja ákveðinn jöfnuð milli fólks af holdi og blóði hefur ríkið einfaldlega ekkert að gera með að auka jöfnuð milli fyrirtækja á frjálsum markaði. Þar á samkeppnin ein að ríkja. Almenn lækkun opinberra gjalda er sann- gjarnari leið en einhverjar matar- gjafir til bágstaddra hlutafélaga. Nóg af þessu í bili Auðvitað er rétt að reyna að halda uppi atvinnustigi og tryggja að velferðarkerfið geti tekið á móti þeim sem nú missa vinnuna. En aðgerðir ríkisvaldsins eru þegar orðnar mjög dýrar. Það sem kynnt hefur verið kostar 350 milljarða. Stór hluti þeirra aðgerða miðar að því að breyta leikreglum frjáls markaðar og að lágmarka tap vegna áhættufjárfestinga. Það má spyrja sig hvort það sé til lengdar skynsamlegt. Kæli- og frystiskápar á tilboði. Ferskari matvæli og minni matarsóun með Siemens og Bosch kæliskápum. Með hyperFresh tækni heldur kæliskápurinn ávöxtum, grænmeti og nýjum kjötvörum ferskum allt að tvisvar til þrisvar sinnum lengur. Matarsóun minnkar, peningar sparast og umhverfisvitund eykst. Allt að 26% afsláttur af völdum kæliskápum í maí. Fimm ára ábyrgð á öllum heimilistækjum. Einfalt að versla í netverslun okkar. Tilboð gilda til og með 5. júní eða á meðan birgðir endast. Smith & Norland er bæði Siemens og Bosch-umboðið á Íslandi og sinnir varahluta- og viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði á eigin verkstæði. Þegar ríkið ákveður að greiða laun í uppsagnar- fresti án kröfu um gjaldþrot er það því varla að verja at- vinnu eða tekjur launafólks. Það er að verja hlutafé. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11Þ R I Ð J U D A G U R 2 6 . M A Í 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.