Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 15
KYNNINGARBLAÐ
Heilsa
Þ
R
IÐ
JU
D
A
G
U
R
2
6.
M
A
Í
20
20
Ítalinn Cornel G. Popa segist nú þegar hafa komið auga á mögulega meistarakokka framtíðarinnar á kaffistofunni hjá Samhjálp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Allt verður gott með ást
Ítalski matreiðslumeistarinn Cornel G. Popa ætlar næsta hálfa árið að kenna
heimilislausum á Íslandi að elda góðar og heilnæmar krásir fyrir lítið fé.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Ég hef búið í Reykjavík undan-farin ár og hef hugsað mér að gera borgina að heimili mínu
til æviloka. Því fannst mér skylda
mín sem samfélagsþegn að leggja
mitt af mörkum til að hjálpa þeim
sem af einhverjum ástæðum hafa
ekki verið eins lánsamir í lífinu
og ég,“ segir ítalski matreiðslu-
meistarinn Cornel G. Popa sem um
næstu mánaðamót fer af stað með
ókeypis matreiðslunámskeið fyrir
heimilislausa á kaffistofu Sam-
hjálpar.
„Ég rakst á grein um heimilis-
lausa á Íslandi og komst að því að
þeir eru yfir 600 talsins. Þá fór ég
að hugsa að með dálítilli hjálp og
góðum vilja væri hægt að fækka
umtalsvert í hópi heimilislausra,“
segir Cornel.
Í greininni kom fram að heim-
ilislausir á Íslandi héldu meðal
annars til á kaffistofu Samhjálpar í
Borgartúni.
„Því setti ég mig í samband við
Jónu Björk Howard, verkefna-
stjóra kaffistofunnar, í því skyni
að bjóða fram krafta mína sem
sjálf boðaliði nokkra daga í viku
en þegar þangað var komið varð
mér fljótt ljóst að kaffistofan væri
tilvalinn vettvangur til að koma
á legg gömlu hugarfóstri mínu.
Upprunalega hafði ég hugsað mér
að leigja eldhús og bjóða heimilis-
lausum ókeypis matreiðslunám-
skeið þar sem unnið væri gegn
matarsóun, en þegar ég sagði Jónu
frá hugmyndinni bauð hún mér
að nota eldhús Samhjálpar. Sú
tilhögun hentaði mér fullkom-
lega; nú hafði ég stað til að byrja á,
fullan af áhugasömu og lærdóms-
fúsu fólki,“ segir Cornel kátur og
fullur tilhlökkunar.
Fyrirmyndarsamfélag
Í upphafi ætlaði Cornel að kenna
heimilislausum að elda ódýran
og heilsusamlegan mat en sú hug-
mynd tók fljótt á sig aðra mynd
þegar hann var kominn í samstarf
með Samhjálp.
„Þá varð til annað verkefni; að
ekki einungis kenna heimilis-
lausum að elda sér mat með lítið
á milli handanna, heldur líka að
gefa einstaklingum sem vinna
á kaffistofunni í gegnum Vernd
eða samfélagsþjónustu á vegum
Fangelsismálastofnunar tækifæri
til að auka færni sína í matreiðslu,“
segir Cornel og vísar í sex mánaða
ókeypis matreiðslunámskeið
sem hefst 1. júní og stendur til
1. desember.
„Á þessu hálfa ári munu þátt-
takendur sækja tvo til þrjá mat-
reiðslutíma á dag og einn dag í
viku kemur til okkar gestur sem