Fréttablaðið - 26.05.2020, Page 22
Askja opnaði nýtt atvinnu-bílaverkstæði Mercedes-Benz á Krókhálsi 11 haustið
2019. Í dag eru þar rekin tvö
sérhæfð atvinnubílaverkstæði á
einum stað. Annað verkstæðið er
sérstaklega útbúið fyrir sendibíla
og minni atvinnubíla og á hinu
verkstæðinu er fullkomin aðstaða
fyrir þjónustu við stærri gerðir
vöru- og hópferðabíla.
„Askja veitir viðurkennda þjón-
ustu, sem þýðir að starfsmenn eru
sérþjálfaðir til greininga, viðhalds
og viðgerða á Mercedes-Benz
atvinnubifreiðum og eingöngu er
notast við varahluti og olíu sem er
sérhönnuð fyrir þessa bíla,“ segir
Helga Friðriksdóttir, forstöðu-
maður þjónustusviðs Öskju.
Nýtt sendibílaverkstæði
fyrir Mercedes-Benz
Helga segir að nýja sendibílaverk-
stæðið sé glæsilegt og búið öllum
fullkomnasta búnaði sem völ er á.
„Með nýja verkstæðinu er
af kastagetan allt að helmingi
meiri og þjónustan enn sérhæfð-
ari, viðameiri og skilvirkari,“ segir
hún. „Fullkominn tækjabúnaður
tryggir hraða og örugga þjónustu
og öll vinnuaðstaða er til fyrir-
myndar, þar sem lyftur og allur
búnaður er af nýjustu gerð. Meðal
nýjunga á verkstæðinu sem eru
sérsniðnar að þörfum Mercedes-
Benz sendibíla má nefna þrí-
víddar hjólastillingarbúnað og
hemla- og fjöðrunarprófun.“
Endurbætt vöru- og
hópferðabílaverkstæði
„Vöru- og hópferðabílaverk-
stæðið hefur líka verið stækkað
og endurbætt og allur lyftubún-
aður og smurgryfja á verkstæði
fyrir stærri atvinnubíla hafa verið
endurnýjuð,“ segir Helga. „Ýmsar
nýjungar hafa verið innleiddar,
stæðum hefur verið fjölgað og
aðstaðan til járnsmíðavinnu
verið bætt. Verkstæðið hefur
verið endurskipulagt með það að
markmiði að uppfylla betur þarfir
viðskiptavina og nýta tíma þeirra
sem best.“
Fjölbreytt þjónusta sniðin
að þörfum viðskiptavina
„Atvinnubílaverkstæði Mercedes-
Benz er einstaklega vel búið
tækjum sem eru sérhæfð fyrir
þjónustu við Mercedes-Benz. Þar
eru m.a. framkvæmdar reglu-
bundnar þjónustuskoðanir,
olíuskipti, hjólastillingar, bremsu-
prófanir og bilanagreiningar,“
segir Sigurður Grétar Ágústsson,
þjónustustjóri atvinnubílaverk-
stæðis Öskju. „Þar er ástand
undirvagna, ljósa- og öryggisbún-
aðar líka kannað og uppfærslur á
hugbúnaði framkvæmdar.“
Sigurður Grétar segir að þegar
komið er með bíl á verkstæði til
þeirra sé hann tengdur við grein-
ingartölvu sem les ástand bílsins.
„Þar kemur fram hvort það sé
nauðsynlegt að framkvæma upp-
færslur sem hafa áhrif á bílinn og
við vinnum þær uppfærslur sam-
hliða heimsókninni.“
Löggilding allra ökurita
Atvinnubílaverkstæði Öskju fjár-
festi nýlega í fullkomnum búnaði
til löggildingar á nýjustu gerð
stafrænna ökurita. „Staðfesta þarf
með prófunum á tveggja ára fresti
að ökuriti allra bíla yfir 3.500 kg
sé rétt kvarðaður og vinni rétt,“
segir Sigurður Grétar. Á verk-
stæðinu er tekið á móti bílum frá
öllum framleiðendum til að fram-
kvæma löggildingu á ökuritum og
hraðatakmörkunum.
Bremsuprófanir í boði
„Öryggi viðskiptavina skiptir
okkur öllu máli og því var það
okkur mjög mikilvægt við hönn-
un á nýju verkstæði að komið yrði
fyrir búnaði af nýjustu gerð til
bremsuprófunar fyrir bæði sendi-
, vöru- og hópferðabíla,“ útskýrir
Sigurður Grétar. „Bremsuprófar-
inn fyrir stærri bílana er þannig
að hægt er að binda bíla niður á
prófarann og því er hægt að fá
nákvæma bremsuprófun á bílana
þó að það sé ekki þyngd á þeim.“
Þjónustuver og forgreining
flýta fyrir þjónustunni
Sigurður Grétar segir að nýtt
þjónustuver Öskju tryggi við-
Við þekkjum bílinn þinn
Askja er umboðsaðili fyrir Mercedes-Benz atvinnubíla á Íslandi og þjónustar allar stærðir og
gerðir Mercedes-Benz atvinnubíla. Nýlega var nýtt verkstæði opnað og annað endurbætt.
Á fullkomnum
verkstæðum
sínum þjón-
ustar Askja
allar gerðir
Mercedes-Benz
atvinnubíla,
allt frá minni
leigubifreiðum
til stærstu vöru-
bifreiða.
Með nýja verk-
stæðinu er afkasta-
getan allt að helmingi
meiri og þjónustan enn
sérhæfðari, viðameiri og
skilvirkari.
Helga Friðriksdóttir
Starfsmenn Öskju veita viðurkennda þjónustu og eru sérþjálfaðir til greininga, viðhalds og viðgerða á Mercedes-
Benz atvinnubifreiðum. Eingöngu er notast við varahluti og olíu sem er sérhönnuð fyrir bílana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR