Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Malbikun Norðurlands var stofnuð í fyrra sem sjálf-stætt fyrirtæki til hliðar
við jarðvinnuverktakafyrirtækið
Finn ehf., sem Finnur Aðalbjörns-
son stofnaði árið 2003.
„Við vildum bjóða viðskipta-
vinum okkar breiðari heildar-
lausnir í malbikun og höfum frá
upphafi verið staðráðnir í að vinna
eingöngu með ný og góð tæki til
malbikunar og ávallt með nýjustu
mögulega tækni á hverjum tíma.
Gps-tæknin frá Topcon er stórt
skref í þá átt,“ segir Kristinn H.
Svanbergsson, framkvæmdastjóri
hjá Malbikun Norðurlands.
Það er fyrsta fyrirtækið á
Norðurlöndum til að taka í notkun
Topcon vegskönnunartæki til
undirbúnings malbikunarfram-
kvæmda.
„Vegskönnunartækni Topcon
er nýjung í malbikunarfram-
kvæmdum á Íslandi. Hún hefur
verið notuð af stórfyrirtækjum
eins og Colas í Evrópu og í Banda-
ríkjunum, þar sem Topcon er
japanskt/amerískt fyrirtæki,
en við sem nýtt og lítið íslenskt
fyrirtæki erum fyrst á Norður-
löndunum til að taka þessa tækni
til framkvæmda. Það er út af fyrir
sig merkilegt því búnaðurinn er
mjög dýr og þess vegna hafa menn
verið hræddir við að taka þennan
séns en við teljum að það skapi
okkur sérstöðu og sé einmitt í
okkar anda, því við viljum vera
leiðandi í nýjungum. Þess vegna
ákváðum við að brjóta ísinn og
verða fyrstir til að taka gps-tækni
Topcon í notkun,“ segir Kristinn,
sem er einn fjögurra eigenda Mal-
bikunar Norðurlands en hinir þrír
eru Finnur Aðalbjörnsson, Þórir
Arnar Kristjánsson og Hrannar
Sigursteinsson.
„Þórir Arnar, verkefnastjóri
Malbikunar Norðurlands, leiðir
hóp starfsmanna sem flestir hafa
mjög mikla reynslu af malbikun og
hafa unnið við fagið í jafnvel tugi
ára. Það er okkur mikill fengur að
hafa svo sterkan og reynslumikinn
hóp starfsmanna sem kunna vel til
verka,“ segir Kristinn.
Sparað með nákvæmnisvinnu
Þórir segir gps-tækni Topcon vera
mjög gott framfaraskref í íslensk-
um malbikunarframkvæmdum.
„Vegskönnunartæknin mun
breyta miklu fyrir alla sem eru í
vegaframkvæmdum, hvort sem
það eru sveitarfélögin eða Vega-
gerðin. Hún mun auðvelda þeim
alla hönnun á vegum ásamt því að
auka gæði og nákvæmni í endan-
legum frágangi á yfirborði vega.“
Þórir tekur dæmi um fræsingu á
malbiki í aðdraganda nýrrar mal-
bikunar.
„Við fræsingu rífa stór tæki upp
yfirborð gatna til að taka upp
hjólför eða halla. Þá hefur þurft
að stilla tækin á ákveðna dýpt en
með því að nota upplýsingar úr
vegskanna má lesa ástand mal-
biksins upp á millimetra. Þau
gögn setjum við í tölvu og þaðan í
fræsarann sem vinnur úr nákvæm-
um gögnum sem sýna að á einum
stað þarf kannski að fræsa tvo
sentimetra en á öðrum stað fimm.
Þannig verður til hagræðing og
sparnaður,“ upplýsir Þórir.
Hann segir efniskostnað
stóran hluta af malbikunarfram-
kvæmdum.
„Með nýrri vegskönnunar-
tækni verður auðveldara að halda
utan um kostnaðinn sem hlýst
af verkinu. Hægt verður að
spara stórar fjárhæðir því með
nákvæmnisvinnu nýrrar tækni
getur sparast umtalsvert magn af
malbiki. Vélar stilltar með gps-
nákvæmni elta ekki lengur ójöfnur
í undirlagi vegarins heldur laga
þær veginn þannig að hann verður
mun sléttari, yfirborðið verður
betra og magn malbiks sem sett
er í götuna getur orðið minna og
leggst með nákvæmari hætti. Þá
verður malbikunarfræmkvæmdin
Með nýrri vegskönnunartækni frá Topcon er auðvelt að skanna ástand gatna áður en malbikunarframkvæmdir hefjast. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN NÍELSSON
Vegskönn-
unartækið frá
Topcon aflar
hárnákvæmra
gagna um
ástand malbiks
og gatna. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/AUÐUNN
Verkfæri ehf. er umboðsaðili fyrir Topcon á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
í heild sinni umhverfisvænni því
auðveldara verður að vinna verkin
með meiri nákvæmni en ella.“
Það sem koma skal
Kristinn og samstarfsmenn hans
hjá Malbikun Norðurlands hafa
undanfarið verið í lærdómsferli á
nýju tæknina ásamt starfsmönn-
um Verkfæra ehf., umboðsaðila
Topcon á Íslandi.
„Við höfum bæði tekið próf
og leyst verkefni og skönnuðum
meðal annars þjóðveg 1 sem liggur
í gegnum Akureyri til að sýna
öðrum aðilum hvernig tæknin
virkar. Þá erum við að fara í mjög
stórt og spennandi verkefni fyrir
Bílaklúbb Akureyrar sem ætlar
að leggja nýja kvartmílubraut á
aksturssvæði sínu ofan við Akur-
eyri. Þar munum við leggja 20.000
fermetra af malbiki og höfum
boðið þeim að skanna undirlag
brautarinnar þegar búið verður að
jafna undir malbikið til að skoða
hvort nákvæmnin sé eins og hún
á að vera. Út frá því getum við
borið okkar mælingu saman við
mælingu verkfræðistofunnar sem
segir til um hvernig malbikið á að
vera og lagt brautina með nýju gps-
tækninni í kjölfarið. Það verður
til þess að yfirborðið verður bæði
sléttara og betra og minni líkur
á misfellum í malbikinu,“ segir
Kristinn.
Hann segir gps-tækni Topcon
nýtast í öllum vegaframkvæmdum.
„Þegar við skönnuðum þjóðveg
1 í gegnum Akureyri sýndi mynda-
vélin með mikilli nákvæmni allar
mishæðir, skemmdir og holur
í malbikinu. Tæknin safnar og
myndgreinir upplýsingar um
ástand vega með gríðarlegri
nákvæmni áður en farið er út í
framkvæmdir. Hún gefur ótrúlega
möguleika og er meðal annars
hægt að sjá stöðu á nýjum vegi
núna og skanna svo aftur eftir tvö
ár til að sjá hvað hefur gerst í milli-
tíðinni; hvernig vegurinn hagar
sér, hvað hefur gerst upp á milli-
metra, allar breytingar og í hvaða
endurbætur þarf að fara, hvort
sem það er að hækka veginn hér og
þar, laga halla eða annað.“
Nýja vegskönnunartæknin á
eftir að bæta enn frekar malbik-
unarframkvæmdir hér á landi.
„Búast má við að þetta sé það
sem koma skal í malbikun hér á
landi,“ segir Kristinn.
Malbikun Norðurlands er á Óseyri
2 á Akureyri. Sími 848 9114. Sjá
nánar á Facebook undir Malbikun
Norðurlands.
Þórir Arnar Kristjánsson er verkefnastjóri Malbikunar Norðurlands.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RMALBIKUN