Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 37

Fréttablaðið - 26.05.2020, Síða 37
Hamraborg – miðbær. Fannborgarreitur og Traðarreitur – vestur. Vinnslutillaga II. Vakin er athygli á því að á fundi skipulagsráðs 18. maí 2020 var lögð fram tillaga á vinnslu- stigi að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 á miðbæjarsvæði Hamraborgar. Fyrir- hugað skipulagssvæði afmarkast af Vallartröð í austur, Digranesvegi í suður, Digranesvegi 1, Hálsatorgi og Hamraborg 8 í vestur og Hamraborg 10 til 38 (sléttar tölur) í norður. Í gildandi aðalskipulagi er landnotkun á umræddu svæði, sem er um 4,3 ha að flatarmáli, skilgreind sem miðbæjarsvæði fyrir íbúðir, verslun og þjónustu og að hluta íbúðarsvæði. Í fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu verður landnotkun svæðisins áfram skilgreind sem miðbæjarsvæði og að hluta íbúðarsvæði auk þess sem það verður skilgreint sem nýtt þróunarsvæði (þéttingar- svæði). Jafnframt er talnagrunni aðalskipulagsins breytt. Í kynntri vinnslutillögu II er miðað við að núverandi byggingar á lóðunum Fannborg 2, 4 og 6 (gömlu bæjarskrifstofurnar) á reit B1-1 í rammahluta aðalskipulagsins verði rifnar og nýjar byggingar reistar í þeirra stað fyrir allt að 270 íbúðir ásamt verslun og þjónustu alls um 18.000 m2. Nýtingarhlutfall ofanjarðar er áætlað um 2,04 og með bílastæðakjallara um 3,56. Miðað er við 1 bílastæði neðanjarðar á hverja íbúð. Í vinnslutillögu II er auk þess gert ráð fyrir breytingum á sk. Traðarreit - vestur, reit B4 í rammahluta aðalskipulagsins, þar sem núverandi íbúðarhús við Neðstutröð 2, 4, 6, 8 og Vallartröð 1, 3, 5 og 7 verði rifin og nýtt húsnæði byggð í þeirra stað fyrir allt að 280 íbúðir auk húsnæðis fyrir verslanir og þjónustu alls um 22.000 m2. Nýtingarhlutfall ofanjarðar er áætlað um 2,42 og með bílastæðakjallara um 3,9. Gert er ráð fyrir bílastæðum neðanjarðar, einu bílastæði á hverja íbúð. Í fyrirhugaðri skipulagsvinnu eru ekki ráðgerðar breytingar við Hamraborg 10 til 38 (sléttar tölur), við Fannborg 1 til 9 (oddatölur) og Digranesvegi 5 og 7 þ.e. á reitum B1-3 og B2 í rammahluta aðalskipulagsins. Vinnslutillaga II er sett fram í greinargerð þar sem m.a. er fjallað um núgildandi stefnu skipulagsins, tengsl við aðrar skipulagsáætlanir s.s. svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, forsendur og markmið fyrirhugaðra breytinga, umhverfisáhrif, samráð og kynningarferli. Er vinnslutillagan dags. 14. maí 2020. Skipulagsráð samþykki að framlögð vinnslutillaga verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Stefnt er að því að ofangreind vinnslutillaga verði samþykkt í formlega auglýsingu inna fárra vikna. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á vinnslutillögu I, sem kynnt var í mars/apríl sl. og koma fram í vinnslutillögu II eru í stórum dráttum eftirfarandi: Á Fannborgarreit B1-1 var byggingarmagn 28.000 m2 í vinnslutillögu I og verður 18.000 m2 í vinnslutillögu II. Áætlað byggingarmagn á reitnum er því dregið saman um 10.000 m2. Áætlaður fjöldi íbúða var í vinnslutillögu I 300 en verðu 270 í vinnslutillögu II. Nýtingarhlutfall á reitnum breytist frá vinnslutillögu I úr 3.17 í 2.04 ofanjarðar og 6.46 í 3.56 ofan- og neðanjarðar í vinnslutillögu II. Á Traðarreit-vestur B4 var áætlað byggingarmagn 25.000 m2 í vinnslutillögu I en er áætlað um 22.000 m2 í vinnslutillögu II. Áætlað byggingarmagn dregst því saman um 3.000 m2. Fjöldi íbúða var áætlaður 300 íbúðum í vinnslutillögu I en verður 280 íbúðir í vinnslutillögu II. Nýtingarhlutfall á reitnum breytist frá vinnslutillögu I úr 2.75 í 2.42 ofanjarðar og 4.73 í 3.9 ofan- og neðanjarðar í vinnslutillögu II. Krafa um bílastæði á báðum reitunum er breytt úr 1 bílastæði fyrir hverja 100 m2 í húsnæði í 1 bílastæði fyrir hverja íbúð. Við það fjölgar bíla- stæðum á báðum reitum þrátt fyrir fækkun íbúða. Jafnframt hefur byggingarreitir fyrirhug- aðra bygginga verið þrengdir sem og dregið úr hæðum húsa. Ofnagreind vinnslutillaga að breyttu aðalskipulagi ásamt vinnslutillögu að deiliskipulagi ofan- greinds svæðis eru aðgengilegar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 30. júní 2020. Vakin er sérstök athygli á því að á heimasíðu bæjarins www.kopavogur.is undir íbúar, skipu- lagsmál og síðan skipulag og framkvæmdaleyfi í kynningu eru gögn málsins. En frá og með 27. maí nk. verður upptaka af kynningu á ofangreindri vinnslutillögu II jafnframt aðgengileg á heimasíðunni þar sem tillagan er útskýrð nánar. Fimmtudaginn 25. júní 2020 milli kl. 17:00 og 18:00 verða síðan starfsmenn skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs ennfremur með opið hús í Safnaðarheimili Kársnessóknar Borgum við Hábraut 1A þar sem tillagan verður kynnt sérstaklega þeim sem þess óska. Skipulagsstjóri Kópavogs Auglýsing um breytingu á aðalskipulag í Kópavogi. Tillaga á vinnslustigi. kopavogur.is         Skráðu fyrirtækið þitt á alfred.is Launafulltrúar, gjaldkerar, þjónustufulltrúar hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.