Fréttablaðið - 26.05.2020, Side 42
VÉLA-
& RENNI-
VERK-
STÆÐI
Alhliða lausnir
í viðgerðum
og þjónustu
MIÐHRAUN 2 · 210 GARÐABÆ · 587 1300 · KAPP@KAPP.IS · WWW.KAPP.IS
VÉLAVERKSTÆÐI
• Hedd plönuð og
þrýstiprófuð.
• Ventlar og ventilsæti
slípuð og skorin.
• Sveifarásar mældir,
renndir og slípaðir.
• og svo margt fleira.
RENNIVERKSTÆÐI
• Rennismíði og fræsivinna
á öllum tegundum plasts
og málma.
• CNC búnaður til
fjöldaframleiðslu.
• Verðtilboð í stærri verk.
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
• CARRIER
kæli- og frystibúnaður
• DHOLLANDIA
vörulyftur
• SCHMITZ CARGOBULL
flutningavagnar
Við leggjum ríka áherslu
á góða þjónustu og vandað verk
í stóru sem smáu.
Flutningaiðnaðurinn er afskap-lega mikilvægur hluti af markaðshagkerfi nútímans
og veltir gríðarlegum upphæðum.
Það er því til margs að vinna í
framtíðarþróun, ekki síst í breyttu
landslagi tækni og tækifæra. Þar
ber helst að nefna möguleikann á
sjálfkeyrandi f lutningabílum sem
færist æ nær raunveruleikanum
eftir því sem tækninni fleygir
fram. Ýmislegt er á döfinni þegar
kemur að sjálfkeyrandi vöru-
bílum. Fyrirtækjum, sem sýna
þessum nýju flutningsháttum
áhuga hefur fjölgað, tækninni
f leygir fram, lagaumhverfið er í
endurskoðun og dagurinn þegar
enginn kippir sér upp við að sjá
bílstjóralausa vörubíla á vegum úti
færist stöðugt nær.
Aukin hagkvæmni
Margir í f lutningsiðnaðinum eru
spenntir fyrir þessari framþróun
og segja að hún komi til með að
auka hagkvæmni í f lutningum,
spara bensín og minnka slit á
vegum auk þess sem öryggismál
muni batna umtalsvert, en aðrir
eru uggandi og finnst vegið að
starfsöryggi heillar stéttar auk
Sjálfkeyrandi flutningabílar framtíðin
Sjálfkeyrandi flutningabílar eru í stöðugri þróun og líklegt þykir að þeir verði komnir á göturnar á
suðlægum slóðum á næstu árum. Margir í flutningsiðnaðinum eru spenntir fyrir þróuninni.
Tilraunir með
sjálfkeyrandi
vörubíla eru í
fullum gangi í
mörgum ríkjum
Bandaríkjanna
og víðar.
MYNDIR/ GETTY
þess sem þeir telja að tölva muni
aldrei ná þeirri færni sem þarf til
að meta aðstæður nógu hratt og
örugglega.
Reynsluakstur hafinn
Mörg stórfyrirtæki eru um hituna
þegar kemur að sjálf keyrandi
f lutningabílum og eru prófanir
þegar hafnar, enda mikið í húfi
fyrir þá sem ná forskoti í þessari
grein og tæknileyndarmála er
gætt svo vel að lítið er um þessar
prófanir vitað. Meðal fyrirtækja
sem vinna að þróun sjálf keyrandi
f lutningabíla má nefna Waymo,
dótturfyrirtæki Google, hinn
gamalgróna bifreiðaframleiðanda
Daimler, tæknirisann og bíla-
framleiðandann Tesla, kínversk-
bandaríska fyrirtækið TuSimple,
sem notar myndavélatækni frekar
en leiserdrifna ratsjá, sem er
algengasta aðferðin við þróun á
sjálf keyrandi bílum, og Starsky en
það fyrirtæki sendi í vetur sjálf-
keyrandi f lutningabíla út á þjóð-
vegina í Flórída, án öryggisöku-
manna og án þess að láta nokkurn
vita af því. Flest fyrirtækin senda
þó bílstjóra með í reynsluakstur
og sum segjast jafnvel ekki ætla
að útrýma hlutverki bílstjórans
heldur gera það þægilegra og
öruggara.
Tilraunir með sjálfkeyrandi bíla
hafa staðið yfir í næstum áratug og
hafa gefist vel, í mörg þúsund til-
raunaferðum er slysatíðni afskap-
lega lág og aðeins eitt þekkt tilfelli
þar sem sjálfkeyrandi bíllinn var í
órétti. Það lítur því út fyrir að sjálf-
keyrandi fólksbílar muni innan
skamms leysa af hólmi flesta öku-
menn með tilheyrandi samfélags-
breytingum. En sjálfkeyrandi
fólksbíll er ekki það sama og sjálf-
keyrandi flutningabíll. Flutninga-
bílar eru að sjálfsögðu mun stærri
og því þyngri í vöfum, eru lengur
að bregðast við, hemla, beygja og
svo framvegis en minni ökutæki.
Ýmsar spurningar
Þá er enn ósvarað ýmsum tækni-
legum spurningum sem snúa að
staðsetningu skynjara, miðað
við ökusvið farartækisins og svo
stærsta atriðið fyrir okkur hér á
norðurhjara, sem er sú staðreynd
að illa gengur að kenna sjálf-
keyrandi bílum að aka í snjó og í
raun við allar aðrar aðstæður en
sól og sumaryl. Snjór og regn geta
bæði truflað skynjara og hrein-
lega lokað þeim, falið merkingar
á vegum sem ökutölva bílsins er
þjálfuð í að lesa og að auki eru
forrit sem eru hönnuð til að bera
kennsl á önnur farartæki og fót-
gangandi í björtu sólskini ekki vel
til þess fallin að þekkja bifreiðar
með snjóhrúgur á þakinu eða fólk
í bosmamiklum snjóklæðnaði úr
umhverfi sem einnig er síbreyti-
legt eftir því hvernig vindar blása
snjó til og frá.
Hvað með bílstjórana?
Þrátt fyrir þetta eru framleið-
endur sjálfkeyrandi f lutningabíla
vongóðir um að þessi stórskip
verði komin á göturnar í hlýju og
jöfnu loftslagi innan tíðar, jafn-
vel á næsta eða þarnæsta ári þar
sem auðvelt er að forrita tölvur
til að sinna þeim akstri sem best
er að viðhafa á þjóðvegum þar
sem flutningabílar verja mestum
aksturstíma. Sumir ganga jafnvel
svo langt að áætla að sjálfkeyrandi
f lutningabílar verði komnir á veg-
ina á undan sjálfkeyrandi fólks-
bílum. Það eru þó enn hnökrar á
tækninni sem þarf að leysa og lög
sem þarf að setja um hvernig akstri
slíkra farartækja skuli háttað.
Eitt álitamálið snýr einmitt að
stöðu bifreiðastjóra flutningabíla
og hvort tilkoma sjálfkeyrandi
f lutningabíla þýði sjálfkrafa að
sú starfsstétt sé liðin undir lok.
Eins og áður kom fram er bílstjóri
með í öllum æfingaferðum sem
eknar eru á vegum þróunaraðila,
tilbúinn að grípa inn í ef til þarf
því það er ýmislegt sem getur farið
úrskeiðis í f lutningabíl á ofurhraða
eftir þjóðvegi. Störf bílstjóranna
munu þó vissulega breytast.
Ekki verður ætlast til þess að þeir
keyri jafn mikið og áður sem ætti
sannarlega að vera til bóta. Starf
bílstjórans gæti mögulega orðið
eins og starf f lugstjóra í f lugvél.
Flutningabíllinn getur alveg keyrt
sjálfur en almenningur slakar
betur á ef vitað er af lifandi ein-
staklingi bak við stýrið, svona til
öryggis.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
10 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR