Fréttablaðið - 26.05.2020, Qupperneq 56
Orðabækur eru þarfa-þing, og ekki síst veforðabækur sem nota má að vild endurgjaldslaust. Ein slík, norræna
veforðabókin ISLEX (islex. is), fékk
nýlega veglegan styrk sem nemur
79.000 evrum, eða rúmlega 12
milljónum íslenskra króna. Þór-
dís Úlfarsdóttir er ritstjóri ISLEX-
orðabókarinnar og verkefnisstjóri
er Halldóra Jónsdóttir, en báðar
eru starfsmenn Stofnunar Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum.
Mikilvægur styrkur
„ISLEX-orðabókin er afsprengi nor-
rænnar samvinnu og er fjármögnuð
af öllum Norðurlöndunum. Hún er
50.000 orða íslensk orðabók sem
lýsir íslensku eins og hún er nú á
okkar dögum. Þarna eru líka þýð-
ingar á íslenskum orðum og orða-
samböndum á dönsku, norsku,
sænsku, færeysku og finnsku. Með
því að smella á tengil má svo sjá
beygingar íslensku uppf lettiorð-
anna. Það er einnig hægt að hlusta
á framburð orða og er þetta eina
íslenska orðabókin þar sem boðið
er upp á það. Útlendingar sem nota
ISLEX eru mjög hrifnir af því að geta
hlustað á framburð orðanna,“ segir
Halldóra.
Halldóra og Þórdís hafa unnið
að ISLEX-orðabókinni um árabil.
„Hún var opnuð árið 2011 og við
erum stöðugt að þróa hana,“ segir
Halldóra. „Orðabókin er gífurlega
mikið notuð, ekki síst í skólakerf-
inu. Fyrir utan að vera mikilvæg
fyrir Íslendinga sem vilja tjá sig á
skandinavískum málum þá skiptir
hún miklu máli í íslenskukennslu
erlendis. Fólk um allan heim, sem
er að læra íslensku, notar hana.“
Halldóra segir nýlegan styrk mjög
mikilvægan. „Hann verður nýttur
til að stækka orðabókina um 10 pró-
sent og bæta við nýjum orðaforða.“
Fyllt upp í eyður
Halldóra og Þórdís eru einnig rit-
stjórar Íslenskrar nútímamálsorða-
bókar sem er á vefnum. Orðabókin
hefur sína eigin heimasíðu, islensk-
ordabok.is, en hana má einnig
finna á málið.is. Þar eru sjö gagna-
söfn um íslenskt mál, meðal annars
stafsetningarorðabókin og Íslensk
orðsifjabók.
„Íslensk nútímamálsorðabók
byggir á efniviði ISLEX og notendur
hennar eru um 330 þúsund á ári,“
segir Þórdís. Vinna Halldóru og Þór-
dísar við þá orðabók felst að stórum
hluta í því að bæta þar inn nýjum
orðum og búa til orðskýringar. „Við
erum að vinna við þetta alla daga og
þetta er ekki nærri búið. Á undan-
förnum níu árum, frá því að ISLEX
var opnað, hafa fjöldamörg orð
bæst við orðaforðann. Við höfum
aðgang að tíðnilistum úr stórum
textasöfnum frá máltæknideild
Árnastofnunar og það hefur komið
sér vel til að fylla upp í eyður í orða-
forðanum,“ segir Þórdís.
Spurðar hversu langt þær gangi í
því að skrá slanguryrði og tískuorð
sem skjóta upp kollinum hverju
sinni segir Þórdís: „Það er ákveðin
tregða í því, samkvæmt orðabóka-
hefð á Íslandi. Maður gleypir ekki
við orði um leið og það kemst í
tísku. Orðið þarf að fá að sanna sig í
einhvern tíma áður en það er tekið
inn í orðabók.“
Upplýsingar á netinu
Ítrekað skal að aðgangur að ISLEX
og Íslenskri nútímamálsorðabók er
gjaldfrjáls. „Þessar orðabækur eru
mikilvægar fyrir almenning sem
flettir ekki lengur upp í prentuðum
orðabókum heldur vill fá upplýs-
ingar á netinu, og notar þá til þess
snjalltæki í vaxandi mæli,“ segir
Halldóra.
Jafnframt þessu hafa Halldóra og
Þórdís umsjón með nýrri íslensk-
franskri veforðabók sem byggir á
ISLEX (lexia.arnastofnun.is), en
auk þess eru íslensk-þýsk og íslensk-
pólsk orðabók í undirbúningi.
Mikilvægar orðabækur
Norræna veforðabókin ISLEX fékk nýlega veglegan styrk. Þar
er meðal annars hægt að hlusta á framburð og sjá beygingar.
Halldóra og Þórdís vinna af metnaði við að gera orðabækur á netinu sem aðgengilegastar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ylur frá Mexíkó er yfirskrift málverkasý ningar Sig ur-borgar Stefánsdóttur sem
nú stendur yfir í Kirsuberjatrénu,
Vesturgötu. Á sýningunni eru 14
myndir, f lestar málaðar í Mexíkó í
desember síðastliðnum.
Sigurborg segist líta á myndirnar
eins og nokkurs konar ljóð án orða.
„Mér finnst skemmtilegt ef mér
tekst að tjá húmor eða absúrdisma
í verkum mínum. Eitthvað sem
dregur fram bros eða tilfinningu
um að hlutirnir séu ekki alveg réttir,
villa í kerfinu, en samt harmonía í
útfærslu. Myndirnar þurfa ekki
að líkjast einhverju kunnuglegu,
myndflöturinn er hvort sem er sjón-
ræn blekking. Að mínu viti er mynd-
list eilíf leit að jafnvægi og það er
líka það sem gerir hana spennandi.“
Sigurborg nam myndlist við
Skolen for Brugskunst – Danmarks
designskole í Kaupmannahöfn og
útskrifaðist frá teikni- og grafík-
deild skólans. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum námskeiðum, meðal
annars í Bandaríkjunum, Japan og
Mexíkó. Hún starfaði um árabil sem
kennari við Myndlista- og handíða-
skóla Íslands og Listaháskóla Íslands
en vinnur nú eingöngu að myndlist.
Ylur frá Mexíkó
Eitt verkanna á sýningunni, en þau
voru flest máluð í Mexíkó í fyrra.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞESSAR ORÐABÆKUR
ERU MIKILVÆGAR
FYRIR ALMENNING SEM FLETT-
IR EKKI LENGUR UPP Í PRENT-
UÐUM ORÐABÓKUM.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
SMELLTU Á VÖRU OG
ÞÚ FERÐ BEINT INN Í
VEFVERSLUN
DORMA.IS
SUMAR
tilboðin
Sumarið er
komið í DORMA
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r það frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM BÆKLINGINN OKKA
R
Zone og Affari og smávara
2-11 | RÚM 12–23 | Mjúkv
ara og dúnn 24–27 | Stólar
28–29 | Sófar 30–37 | Sve
fnsófar 38–39
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
Þú finnur
nýjan
bækling
á dorma.is
Sumarið er komið í DORMA
Verslaðu á dorma.is
LICATA
2ja og 3ja sæta sófar
Sófarnir eru í tvennskonar litum af Kentucky áklæði. Annarsvegar
koniak og hinsvegar steingráu. Svartir nettir járnfætur. Stærð 2ja
sæta: 159 x 94 x 82 cm. Stærð 3ja sæta: 199 x 94 x 82 cm
2ja sæta Dormaverð: Aðeins 119.990 kr.
3ja sæta Dormaverð: Aðeins 149.990 kr.
VERÐ
ER GOTT
VERÐ
DORMA
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING