Fréttablaðið - 26.05.2020, Blaðsíða 60
2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1 The ShiningÞótt Stephen King hafi hatast
við þessa sýn Kubricks á þriðju
skáldsögu hans verður höfundur
inn að bíta í það súra epli að
myndin er sígilt meistaraverk og
tímamótahryllingsmynd sem er
þar fyrir utan mun betri en bókin.
2 Shawshank RedemptionLeikstjórinn og handrits
höfundurinn Frank Darabont tók
magnaðan snúning á hinni stór
góðu nóvellu Rita Hayworth and
The Shawshank Redemption úr
Different Seasonssafninu þannig
að úr varð ein allra besta bíó
myndin byggð á sögu eftir King.
Þessi átakanlegi og á köflum
ruddalegi óður til gleðinnar og
mannsandans með þá Morgan
Freeman og Tim Robbins í broddi
gríðarlega öflugs hóps leikara
hefur heldur betur staðist tímans
tönn og hefur árum saman trónað
á toppi lista notenda IMDb.com
yfir 250 bestu myndirnar.
1-2 Kathy Bates Misery
Það reyndist sterkur leikur hjá Rob
Reiner að tefla Kathy Bates fram
í hlutverki Annie Wilkes sem geð
sveiflaði sleggjunni eftirminnilega
með tilþrifum sem valda enn ógn
og skelfingu. Hún hreppti enda
verðskulduð Óskarsverðlaun fyrir
hlutverkið.
1-2 Jack Nicholson The Shining
Það er eiginlega ómögulegt að
gera upp á milli Kathy Bates og
Jack Nicholson þegar Kingmyndir
eru annars vegar enda þarf varla
að deila um að hvorki Misery né
The Shining væru það sem þær eru
ef þau gnæfðu ekki hvort yfir sinni
mynd.
Helst er hægt að halda því gegn
Nicholson að hann birtist í The
Shining sem ýkt og ofleikin út
gáfa af sjálfum sér en hins vegar
þurfti hvorki meira né minna en
snældubilaðan Nicholson til að
líma margbrotið verkið saman og
ljá sturlun Jack Torrance ískaldan
trúverðugleika.
3 River Phoenix Stand by Me
River Phoenix var aðeins sextán
ára gamall, fæddur 1970, þegar
hann sýndi með afgerandi hætti
í Stand By Me fram á að í honum
væri kominn fram einhver allra
efnilegasti leikari sinnar kyn
slóðar. Að öðrum ólöstuðum
vegur þáttur hans þyngst þegar
kemur að tilfinningadýpt og styrk
myndarinnar og hann hélt áfram
að festa sig í sessi þar til hann lést
aðeins 23 ára gamall. Öllum harm
dauði.
4 Sissy Spacek Carrie
Spacek tókst sem unglingsstúlk
unni Carrie að fá áhorfendur til að
ríghalda sér í sætunum um leið og
þeir óskuðu þess að hún hefndi
sín rækilega á skólafélögunum
sem beittu hana grófu einelti. Hún
skilaði vel hinni umkomulausu og
einmanalegu hlið á Carrie en tókst
jafnvel að sýna hana sem hroll
vekjandi refsinorn.
5 Morgan Freeman Shawshank Redemption
Leikur Freemans í þessari mynd er
skólabókardæmi um það hversu
áhrifamikill lágstemmdur leikur
getur verið. Freeman ljómar af
göfgi og reisn í hlutverki fangans
Ellis, sem er vinur og hjálparhella
aðalsöguhetjunnar.
6 Michael Clarke Duncan Green Mile
Það er ekki auðvelt að stela
senunni frá Tom Hanks en Michael
Clarke Duncan tókst það eftir
minnilega í The Green Mile þar
sem hann lék af innlifun fanga
sem bíður aftöku og er með
yfirnáttúrulega hæfileika. Allir
áhorfendur héldu með honum í
vonlausri stöðu hans.
7 Danny Lloyd The Shining
King er meistari á mörgum
sviðum, ekki síst þegar kemur að
því að lýsa börnum sem hið illa
vill hremma. Danny litli Lloyd var
frábær og heillandi í hlutverki hins
skyggna Danny Torrance, sem
horfir upp á föður sinn missa vitið
um leið og alls kyns ill öfl sækja að
honum.
3 MiseryÞessi háspennumynd um
stórslasaðan rithöfund, sem
liggur rúmfastur í afskekktu húsi
þar sem heitasti aðdáandi hans
hjúkrar honum í vafasamri sjálf
boðavinnu, hefur ekki misst slag
kraftinn á þeim 30 árum sem liðin
eru frá frumsýningu hennar.
4 Stand by MeThe Body er önnur nóvellan
af fjórum úr Different Seasons,
sem varð að bíógullmola í
höndum rétts leikstjóra. Þarna
gerði Rob Reiner, leikstjóri Misery,
sína fyrstu atrennu að King og
gerði fallega sögu um vináttu
fjögurra tólf ára stráka að harm
rænni en undurfagurri og sígildri
þroskasögu um ævintýri og háska
frumgelgjuáranna.
5 The Green MileFrank Darabont náði álíka
flugi og í Shawshank Redemption
með The Green Mile sem hvílir
fyrst og fremst á stórum herðum
Michael Clarke Duncan, heitins,
í hlutverki Jesúgervingsins John
Coffey sem er tekinn af lífi fyrir
syndir annarra.
6 CarrieÞessi fyrsta útgefna skáld
saga Kings varð eitthvað annað
og miklu meira en bara hryllings
mynd í meðförum Brians De
Palma þótt það sé fyrst og fremst
magnþrungnum leik Sissy Spacek
að þakka að Carrie White varð
sígilt hryllingsíkon á pari við Mic
hael Myers og Freddie Krueger.
7 The Dead ZoneDavid Cronenberg leikstýrði
stórgóðri mynd um mann með
skyggnigáfu sem veit að stjórn
málamaður á eftir að verða forseti
og steypa heiminum út í kjarn
orkustyrjöld. Christopher Walken
smellpassar í hlutverk manns sem
veit að hann verður að aðhafast.
kolbrunb@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
LÍFIÐ
Stephen King
skín úr kófinu
Sambíóin brjótast úr kófinu með endur-
sýningum The Shining og Shawshank Re-
demption, ólíkra mynda sem rýnar Frétta-
blaðsins telja þó báðar með því besta sem
gert hefur verið eftir bókum Stephens King.
Myndir Myndir MyndirLeikarar Leikarar
námskeið
Skráning í síma
581 1281
"Crash course"
í júní
Einkatímar
2x í viku í 4 vikur
Skráning er hafin
www.gitarskoli.is