Fréttablaðið - 26.05.2020, Side 62
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG ER SAMT EKKI
ALLTAF HRIFINN AF
ALLRI NOSTALGÍUNNI KRINGUM
ÞENNAN MAT, HÚN MÁ EKKI
HLAUPA MEÐ OKKUR Í GÖNUR.
TIL DÆMIS ÞAÐ LANGT AÐ
FÓLKI ER FARIÐ AÐ FINNAST
ORA GRÆNA BAUNIR GÓÐAR.
Fylgstu með!
Fylgstu með
á Hringbraut
Bærinn minn
- Blönduós
Bærinn minn er ný og vönduð þáttaröð
sem hefur göngu sína á Hringbraut í
kvöld þar sem sjarma og sérstöðu
bæjarfélaga á Íslandi er hampað.
Í fyrsta þættinum liggur leiðin til Blönduóss
þar sem perlur bæjarins og nærsveita eru
skoðaðar með augum ferðalangsins.
Ekki missa af fyrsta þætti kl. 21:30 í kvöld
aðeins á Hringbraut.
Í S L A N D
Bærinn minn
er í boði:
Kristinn Guðmunds-son frumsýnir sína nýjustu Soð-seríu í kvöld á RÚV, en hún heitir einfaldlega Mömmusoð. Svikinn
héri, grjónagrautur og kjötfars er
meðal þeirra rétta sem hann mun
reiða fram í eldhúsinu. Kristinn er
búsettur í Belgíu og er nýjasta serían
tekin upp í eldhúsinu hans þar.
„Eftir að ég kláraði meistaranám-
ið var ég eiginlega orðinn of boðs-
lega þreyttur á myndlistinni. Ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á matar-
gerð,“ segir Kristinn.
„Á þessum tíma var ég samt
orðinn smá þreyttur á matreiðslu-
þáttum. Mér finnst þeir oft geta
verið svo þvingaðir, ég er meira
tæpitungulaus. Svo finnst mér svo
óraunsætt þetta fullkomna eldhús
sem er alltaf verið að vinna með,
það eru mjög fáir í heiminum sem
hafa aðgang að svona flottum eld-
húsum þar sem allt er til.“
Tveir þættir enduðu í ruslinu
Kristin langaði því að fara nýstár-
legar leiðir í matreiðslu sinni, leyfa
mannlega þættinum að skína í gegn
og hikar ekki við að leyfa áhorf-
endum að verða líka vitni að mis-
tökunum.
„Það eru einungis tveir þættir
sem ég hef hent í ruslið. Þeir voru
ekki einu sinni skemmtilegir, það
snerist ekki bara um klúður. Það
kemur oft fyrir í þáttunum að ég
klúðri einhverju og þurfi að gera
það aftur,“ segir hann.
Kristinn hefur tekið á ýmiss
konar matargerð í Soði, hann hefur
meðal annars gert seríur tileinkaðar
samlokum, sveppum og baunum.
„Sveppir er svo skemmtilegt hrá-
efni en ekki síður svo áhugaverðar
lífverur, þannig ég tók þá alveg sér-
staklega fyrir. Síðan fór ein sería í
baunir. Mér finnst svo merkilegt
hvað við Íslendingar borðum lítið af
baunum. Og láttu mig ekki byrja á
grænum Ora-baunum, ég hef aldrei
skilið vinsældirnar, alveg frá því ég
var lítill strákur. Þær eru einfaldlega
vondar,“ segir Kristinn.
En óttast hann ekki að fá mömm-
ur landsins á móti sér svona rétt
fyrir Mömmusoð með þessari yfir-
lýsingu um eitt ástsælasta meðlæti
Íslendinga í gegnum árin?
„Nei, nei. Serían er ekki endilega
hugsuð fyrir mömmurnar, heldur
fyrir þá sem eru yngri og að byrja
að búa. Ég er samt ekki alltaf hrif-
inn af allri nostalgíunni kringum
þennan mat, hún má ekki hlaupa
með okkur í gönur. Til dæmis það
langt að fólki er farið að finnast Ora
grænar baunir góðar, það gengur
ekki,“ segir Kristinn glettinn.
Í þætti kvöldsins matreiðir Krist-
inn kjúkling í ofni.
„Sá réttur frá mömmu minni
var alltaf í miklu uppáhaldi hjá
mér. Ef hún spurði mig hvað ég
vildi í matinn nefndi ég undan-
tekningarlaust þennan rétt.
En ég bæti auðvitað við mínu
„twisti“ á réttina, eða ég í það
minnsta reyni það. Stundum
enda þættirnir á að ég átta mig
á að ég hefði betur sleppt því
og rétturinn sé betri án þess.
Stundum á nefnilega nost-
algían alveg rétt á sér líka,“
segir hann.
Nýir hlaðvarpsþættir
Hann segist enn ekki farinn að velta
fyrir sér hvort Pabbasoð verði síðar
á dagskrá hjá honum.
„Í mínu tilviki þá væri það þá í
mesta lagi bara soðnar pulsur, með
fullri virðingu fyrir pabba mínum,“
segir hann. „En hann er góður á
grillinu og það gæti vel verið að það
verði tekið fyrir síðar. Svona klassík
eins og lambakjöt á teini, sem pabbi
er að nostra við úti. En svo gerir
mamma náttúrlega allt meðlætið,“
segir Kristinn og hlær.
Kristinn var einnig að byrja með
hlaðvarpsþættina Suð.
„Það var einhvern veginn þann-
ig að allir byrjuðu með hlaðvarp
þegar COVID-19 skall á. Ég ákvað
að slást í hópinn þar sem ég hafði
ekkert betra að gera. Í þættina fæ
ég lista- og matreiðslumenn í spjall.“
Hann segist hafa haft það ágætt
úti í Belgíu á þessum fordæmalausu
tímum.
„Ég er alveg ótrúlega þakklátur
fyrir að hafa garð hérna, annars
hefði ég misst vitið. Ég vinn mikið
heiman frá þegar ég er hérna úti,
svo þetta hafði ekki teljanleg áhrif
á mig. Eini munurinn var að kær-
astan mín var meira heima sem
mér fannst mjög skemmtilegt. Ég
nýtti tímann í að hugsa hvað ég vil
gera í framtíðinni. Það er aldrei að
vita hvort það komi jafnvel út bók
frá Soð, hafi einhver áhuga á að gefa
hana út,“ segir Kristinn.
Mömmusoð hefst í kvöld á RÚV
klukkan 20.50.
steingerdur@frettabladid.is
Tilgerðarlaus kokkur
gerir mömmumat
Í kvöld hefst þátturinn Mömmusoð á RÚV, þar sem Kristinn
Guðmundsson gerir klassíska íslenska heimilisrétti en setur á þá
sinn brag. Nýverið byrjaði hann líka með hlaðvarpsþáttinn Suð.
Þættirnir Soð hafa vakið mikla lukku, þá sérstaklega fyrir tilgerðarlausa framgöngu þáttarstjórnandans. MYND/SOÐ
Síðar í seríunni gerir Kristinn brauð-
tertu með örlítið breyttu sniði.
2 6 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð