Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 6
Segir Hallgrím Helgason særandi og tilfinningalausan Jóhann Friðrik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sendir Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, tóninn í færslu á fésbókinni um helgina. Hallgrímur vill hafa Leifsstöð opna fyrir burtþyrstan landann og leyfa honum að spranga um salina, láta leita á sér, taka einn öllara, spjalla og skella sér svo í Fríhöfnina, svo vitnað sé í færslu Hallgríms. Þetta skrifaði Hallgrímur: „Hugmynd í Kófinu, um leið og Víðir leyfir: Hafa Leifsstöð opna fyrir burtþyrstan landann, og leyfa honum að spranga um salina, láta leita á sér, taka einn öllara, spjalla og skella sér svo í Fríhöfnina. Hún væri í raun aðal-attraksjónin í þessu dæmi, og verðið yrði lækkað þar enn meir til að draga að. Eða jafnast eitthvað á við það að versla áfengi drukkinn? Vopnaleitinni yrði breytt í lottó, allir fengju miða í vasann við inn- ganginn og einn af hverjum þúsund miðum myndi svo bípa í hliðinu við mikinn fögnuð. Stemmningin yrði mikið stuð, allir hressir og brandar- arnir kæmu sjálfkrafa. "Ha-æ. Hvert eruð þið að fara?!" Á fimmtudögum væri svo menningarveisla, tónleikar og upplestrar. Það er reynsla mín að Íslendingum finnst í raun fallegasti staður landsins vera Leifsstöð, þar líður þeim best, enda sést það, við erum alltaf svo glöð þar. Þar er fólk annaðhvort að koma heim til lands- ins sem það elskar eða fara burt frá landinu sem það hatar. Held að fólk langi alltaf í Leifsstöð, líka þótt engin séu flugin. Til að auka stemmningu yrðu svo tilkynningar í kallkerfi um að þessi eða hinn væri nú búinn með tímann sinn, fólk væri kallað upp úr eins og í sundinu í den. "Farþegi á leið til Amsterdam, djók, Anna Björk Ingimarsdóttir, gjörðu svo vel að hafa samband við afgreiðslu." Svo er þetta allt saman atvinnuskapandi og íslenska kiljumarkaðnum yrði bjargað. Þetta myndi að auki redda rútufyrirtækjunum því enginn gæti ekið heim... Ég er líka kominn með nafnið á þetta: Lukkustund í Leifs- stöð - Happy Hour in Leifsstöð.“ Forseta bæjarstjórnar Reykjanes- bæjar var ekki skemmt yfir færslu Hallgríms og sendir honum tóninn og segir frumhlaupið vera Hallgrími til skammar. „Kæri Hallgrímur. Mér er ekki skemmt. Hundruðum starfsmanna hefur verið sagt upp í FLE eða eru í skertu starfshlutfalli. Allur húmor hefur sinn tíma og er vandmeðfarinn. Ég verð að segja að ég upplifi skrif þín sem særandi og tilfinningalaus. Kannski er ég við- kvæmur en það verður þá bara að vera svo. Þetta frumhlaup er þér til skammar og væri þér hollast að nýta listamannalaunin til uppbyggilegri skrifa,“ skrifar Jóhann Friðrik Frið- riksson, forseti bæjarstjórnar Reykja- nesbæjar, á fésbókina. Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-14 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is „Endum þetta með góðri rokkveislu“ „Við höldum ótrauð áfram og stefnum á glæsilega tónleika,” segir Kristján Jóhannsson einn skipuleggjanda „Með blik í auga“ sem hefur gengið fyrir fullu húsi síðustu níu ár. „Þetta hefur alltaf verið þema­ tengt og í ár verður slegið í stór­ veislu þegar við gerum upp sögu rokksins. Já, við ákváðum að slá vel í og ljúka Blikinu með góðri rokk­ veislu.“ Einvalalið söngvara mætir til leiks að venju, þau Stefanía Svav­ ars, Stebbi Jak, Matti Matt og Dagur Sigurðsson. „Við Guðbrandur Einarsson og Arnór Vilbergsson höfum rekið þetta frá árinu 2010 þegar fyrsta Blikið fór af stað og satt best að segja átti bara að gera þetta einu sinni en tónleikarnir eru allt í einu orðnir 28.“ – Má vænta tímamóta nú, 2020? „Já, Blikið hættir eftir þessa tón­ leika. Við erum búin að vera að í tíu ár og þetta hefur verið frábært verkefni en nú er þetta ákveðið og allir sáttir. Við höfum verið meira og minna sami hópurinn allan tímann og hann er orðinn þéttur. Þetta eru frábærir félagar,“ segir Kristján. „En það kemur eitthvað í staðinn. Það kemur alltaf maður í manns stað“ Tónleikarnir verða í Stapa í ár eins í fyrra. Frumsýning verður 2. september og síðan verða tvær sýningar 6. september. „Við erum bjartsýn á að búið verði að rýmka samkomubannið í september og það er nú þannig að undirbúningur tekur langan tíma. Nú, annars verður bara tekið fullt tillit til þeirra reglna sem munu gilda.“ Guðbrandur, Kristján og Arnór. 6 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.