Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 18
Mikil óánægja með grásleppustopp Og þá er kominn maí, tíminn líður áfram og ekkert fær hann stöðvað. Margir smábátasjómenn gleðjast yfir þessum tíma því þá hefst strandveiðitímabilið. Reyndar eru veðurguðirnir ekkert á því að taka þátt í þessari gleði því 4. maí, þegar tímabilið mátti hefjast, var haugabræla fyrir minni bátanna og þeir komust ekkert á sjóinn. Það var nú kannski ekki það eina sem hrellti smá- bátasjómenn því Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegsráðherra, skrifaði undir reglugerð þess efnis að grásleppuveiðar yrðu bannaðar frá og með 4. maí síðastliðnum. Hafrannsóknarstofnunin gaf það út að hámarks- kvóti á þessari vertíð ætti að vera um 4.646 tonn. Bátar frá norður- og norðausturlandi byrjuðu fyrstir á þessum veiðum og var mokveiði allan þann tíma. Kannski einum of mikil veiði því að loksins þegar að bátarnir frá Suðurnesjum náðu að komast af stað þá var svo mikið búið af kvótanum að setja varð bann á veiðarnar. Reyndar má segja að Hafró hafi vanmetið stærð grásleppustofnsins og líka það að þeir breyttu reiknireglu sinni. Viðmiðunargildi ráðgjafareglu var áður 0,75 en var lækkað niður í 0,67 og þessi munur er um 550 tonn, sem þýðir að hefði gildið verið 0,75 þá hefði kvótinn verið um 550 tonnum meiri. Það voru ekki margir bátar komnir á grásleppu- veiðar frá Suðurnesjum, pistlahöfundur veit að t.d. útgerðareigandi Guðrúnar GK ætlaði að róa á báðum bátunum sínum í allt sumar en hann á tvo báta sem báðir heita Guðrún GK. Vegna þess að núna er komið bann þá er það plan allt farið í vaskinn. Þar sem ég er eigandi af Aflafrettir.is þá leitaði ég álits nokkura útgerðarmanna við þessu banni. Einn þeirra gerir út grásleppubát frá Sandgerði og þetta hafði hann að segja um málið: „Þetta sýnir okkur bara hvað Hafró veit lítið um hvað er í sjónum. Það er miklu meira af grásleppu núna í kringum landið en undanfarin ár og það mætti alveg tengja það við engar veiðar á loðnu með flottrolli. Það er auðsjáanlega að hafa mikil áhrif til betri vegar. Það hefði gert það að fleiri hefðu fengið að veiða og það hefðu verið færri dagar á hvern bát. Svo erum við erum að sjá ljósa, nýgengna og mjög stóra grásleppu og talsvert af rauðmaga núna síðustu daga sem þýðir að það er að koma ganga úr hafinu.“ Já, þetta eru ekki góðar fréttir því grásleppusjó- menn frá Suðurnesjum voru margir svo til rétt svo byrjaðir en vera mátti 44 daga á veiðum. Þeir bátar sem hafa landað grásleppu á Suðurnesjum eru: Að ofan er minnst á Adda Afa GK en sá bátur á sér ansi langa sögu á Suðurnesjum. Báturinn er smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði og er af gerðinni Cleopatra sem er mjög þekkt merki frá Trefjum. Addi Afi GK er með elstu slíkum bátum hér á landi og hefur verið viðloðandi Suðurnes síðan árið 1998, þó aðallega í Sandgerði og Grindavík. Á þessum 22 árum hefur báturinn samt aðeins heitið fimm nöfnum; var Siggi Bjarna GK 104 í þrjú ár, Gísli Einars GK 104 í fjögur ár, Óli Gísla GK 112 í rúmt eitt ár, Bergvík KE og GK í tvö ár og síðan Addi Afi GK síðan árið 2009 eða í ellefu ár. Stutt myndband er einmitt með og er það með Adda Afa GK að koma til hafnar í Sandgerði sem og fleira af bátnum eftir löndun. Bátur Veitt Róðrar Tryllir GK 27,2 tonn 17 róðrar Garpur RE 27,7 tonn 11 róðrar Líf GK 9,1 tonn 5 róðrar Guðrún GK 21,5 tonn 11 róðrar Addi Afi GK 17,1 tonn 10 róðrar Guðrún Petrína GK * 12,3 tonn 7 róðrar Svala Dís KE * 7,5 tonn 5 róðrar Alli GK 8,9 tonn 6 róðrar * nýbyrjuð á veiðum Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg. 18 // aFLaFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.