Víkurfréttir - 07.05.2020, Side 18
Mikil óánægja með grásleppustopp
Og þá er kominn maí, tíminn líður áfram og ekkert fær hann stöðvað. Margir smábátasjómenn
gleðjast yfir þessum tíma því þá hefst strandveiðitímabilið. Reyndar eru veðurguðirnir ekkert
á því að taka þátt í þessari gleði því 4. maí, þegar tímabilið mátti hefjast, var haugabræla fyrir
minni bátanna og þeir komust ekkert á sjóinn.
Það var nú kannski ekki það eina sem hrellti smá-
bátasjómenn því Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegsráðherra, skrifaði undir reglugerð þess efnis
að grásleppuveiðar yrðu bannaðar frá og með
4. maí síðastliðnum.
Hafrannsóknarstofnunin gaf það út að hámarks-
kvóti á þessari vertíð ætti að vera um 4.646 tonn.
Bátar frá norður- og norðausturlandi byrjuðu
fyrstir á þessum veiðum og var mokveiði allan
þann tíma. Kannski einum of mikil veiði því að
loksins þegar að bátarnir frá Suðurnesjum náðu að
komast af stað þá var svo mikið búið af kvótanum
að setja varð bann á veiðarnar.
Reyndar má segja að Hafró hafi vanmetið stærð
grásleppustofnsins og líka það að þeir breyttu
reiknireglu sinni. Viðmiðunargildi ráðgjafareglu
var áður 0,75 en var lækkað niður í 0,67 og þessi
munur er um 550 tonn, sem þýðir að hefði gildið
verið 0,75 þá hefði kvótinn verið um 550 tonnum
meiri.
Það voru ekki margir bátar komnir á grásleppu-
veiðar frá Suðurnesjum, pistlahöfundur veit að
t.d. útgerðareigandi Guðrúnar GK ætlaði að róa
á báðum bátunum sínum í allt sumar en hann á
tvo báta sem báðir heita Guðrún GK. Vegna þess
að núna er komið bann þá er það plan allt farið í
vaskinn. Þar sem ég er eigandi af Aflafrettir.is þá
leitaði ég álits nokkura útgerðarmanna við þessu
banni.
Einn þeirra gerir út grásleppubát frá Sandgerði
og þetta hafði hann að segja um málið:
„Þetta sýnir okkur bara hvað Hafró veit lítið um
hvað er í sjónum. Það er miklu meira af grásleppu
núna í kringum landið en undanfarin ár og það
mætti alveg tengja það við engar veiðar á loðnu
með flottrolli. Það er auðsjáanlega að hafa mikil
áhrif til betri vegar. Það hefði gert það að fleiri
hefðu fengið að veiða og það hefðu verið færri
dagar á hvern bát. Svo erum við erum að sjá ljósa,
nýgengna og mjög stóra grásleppu og talsvert af
rauðmaga núna síðustu daga sem þýðir að það er
að koma ganga úr hafinu.“
Já, þetta eru ekki góðar fréttir því grásleppusjó-
menn frá Suðurnesjum voru margir svo til rétt svo
byrjaðir en vera mátti 44 daga á veiðum.
Þeir bátar sem hafa landað
grásleppu á Suðurnesjum eru:
Að ofan er minnst á Adda Afa GK en sá bátur á
sér ansi langa sögu á Suðurnesjum. Báturinn er
smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði og er af gerðinni
Cleopatra sem er mjög þekkt merki frá Trefjum.
Addi Afi GK er með elstu slíkum bátum hér á
landi og hefur verið viðloðandi Suðurnes síðan
árið 1998, þó aðallega í Sandgerði og Grindavík. Á
þessum 22 árum hefur báturinn samt aðeins heitið
fimm nöfnum; var Siggi Bjarna GK 104 í þrjú ár,
Gísli Einars GK 104 í fjögur ár, Óli Gísla GK 112
í rúmt eitt ár, Bergvík KE og GK í tvö ár og síðan
Addi Afi GK síðan árið 2009 eða í ellefu ár.
Stutt myndband er einmitt með og er það með
Adda Afa GK að koma til hafnar í Sandgerði
sem og fleira af bátnum eftir löndun.
Bátur Veitt Róðrar
Tryllir GK 27,2 tonn 17 róðrar
Garpur RE 27,7 tonn 11 róðrar
Líf GK 9,1 tonn 5 róðrar
Guðrún GK 21,5 tonn 11 róðrar
Addi Afi GK 17,1 tonn 10 róðrar
Guðrún Petrína GK * 12,3 tonn 7 róðrar
Svala Dís KE * 7,5 tonn 5 róðrar
Alli GK 8,9 tonn 6 róðrar
* nýbyrjuð á veiðum
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.
18 // aFLaFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR